Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Síða 51
13.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Þú gerir ekki
*samkvæmt dekkjaprófun
haustið 2014
Ipike W419Winter i'cept
Korna-
dekk
– Síðan 1941 –
Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi
Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080
betri kaup!
Áberandi gott
skv. FÍB*
Mest af mínum lestíma undanfarin
ár hefur farið í fræðirit enda hef ég
verið í fræðilegu námi, mér til
skemmtunar og yndis-
auka, en les annað inn
á milli. Ég hef alltaf
verið lestrarhestur og
lesið einhver ósköp,
bæði gott efni og vont.
Nú orðið nenni ég síður að lesa
vondar bækur, hætti jafnvel fyrir
miðja bók ef mér sýnist að hún
verði ekki skemmtileg eða fræð-
andi. Til afslöppunar hef ég lesið
talsvert af reyfurum –
áður fyrr ameríska en
nú er ég eiginlega bú-
inn að fá nóg af amer-
íska sjónarhorninu, það
er einhvern veginn allt
eins og ofsminkaðir amerískir
fréttaþulir.
Undanfarnar vikur hef ég verið
að lesa mig í gegnum
jólabækurnar –
skemmti mér stórkost-
lega með Jörundi Ein-
ars Más og Hans Jón-
atan Gísla Pálssonar,
ekki alveg eins vel
með Syndara Ólafs Gunnarssonar.
Er svo að byrja á Spámönnunum í
Botnleysufirði sem lofar góðu strax
á fyrstu síðunum. Inn á milli las ég
svo Avenue of Mysteries, nýjustu
bók Johns Irving, þess mikla meist-
ara (hann er undantekning frá hin-
um Ameríkönunum ásamt Jonathan
Franzen – snillingar báðir tveir).
Ómar
Valdimarsson
Valgerður Þórodds-
dóttir stofnaði útgáfu
með félögum sínum
Morgunblaðið/RAX
BÓKSALA 2.-8. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Í hita leiksinsViveca Sten
3 Einn af okkurÅsne Seierstad
4 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
5 UndirgefniMichel Houellebecq
6 Óvættaför 22 - LúnaAdam Blade
7 Síðasta ástarjátninginDagur Hjartarson
8 Ég ferðast einSamuel Bjørk
9 FyrirvariRenée Knight
10 HunangsgildranUnni Lindell
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Í hita leiksinsViveca Sten
3 Einn af okkurÅsne Seierstad
4 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
5 UndirgefniMichel Houellebecq
6 Síðasta ástarjátninginDagur Hjartarson
7 Ég ferðast einSamuel Bjørk
8 FyrirvariRenée Knight
9 HunangsgildranUnni Lindell
10 Lítil tilraun til betra lífsJ.M Meulenhoff/
Hendrik Groen
Allar bækur
Íslenskar kiljur
BÆKUR Í UPPÁHALDI
Helstu bókmnenntaverðlaun Bret-
lands eru Booker-verðlaunin sem
verða afhent í haust að vanda, en
einnig hafa reglulega verið veitt
svonefnd alþjóðleg Booker-
verðlaun fyrir ævistarf.
Nú hefur Booker-verðlaunaráðið
aftur á móti tekið upp samstarf við
breska dagblaðið Independent sem
veitt hefur verðlaun fyrir erlenda
höfunda, samnefnd blaðinu, en á
þessu ári og framvegis verða verð-
launin veitt fyrir staka bók höf-
undar sem á ekki ensku að móð-
urmáli. Svonefndur langlisti þeirra
verðlauna, sem bera mun Booker-
nafnið, var kynntur á dögunum.
Vekur athygli að á honum er bók
eftir höfund sem fer nánast huldu
höfði.
Á langlistanum 2016 eru A Cup
of Rage eftir Raduan Nassar, A
General Theory of Oblivion eftir
José Eduardo Agualusa, A Strange-
ness in my Mind eftir Orhan
Pamuk, A Whole Life eftir Robert
Seethaler, Death by Water eftir
Kenzaburo Oe, Ladivine eftir Marie
NDiaye, Man Tiger eftir Eka
Kurniawan, Mend the Living eftir
Maylis de Kerangal, The Four Bo-
oks eftir Yan Lianke, The Story of
the Lost Child eftir Elena Ferrante,
The Vegetarian eftir Han Kang,
Tram 83 eftir Fiston Mwanza
Mujila og White Hunger eftir Aki
Ollikainen.
Elena Ferrante er hinn dularfulli
höfundur, en þess má geta að The
Story of the Lost Child er í Napólí-
kvartett hennar. Tvær fyrstu bæk-
ur hans hafa komið út á íslensku.
Huldukona tilnefnd
ALÞJÓÐLEG BOOKER-VERÐLAUN