Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Qupperneq 52
FURÐUR Fólk leggur sitthvað á sig til að ná sjálf- um (selfies) en fyr- ir liggur að sjálfur urðu fleira fólki að fjörtjóni á síðasta ári en hákarlar. Fleiri hafa þó hlotið skaða af en mannfólkið en svanur nokkur fannst dauður í Makedóníu á dög- unum eftir að ferðakona hafði rifið hann upp úr vatni til að taka af þeim sjálfu. Aumingja svaninum varð svo um þetta að hann stein- drapst. Hermt er af þessu í breska blaðinu Metro en þar kemur einnig fram að höfrungur hafi drepist undir svipuðum kringumstæðum í Argentínu fyrir skömmu. Það er þó óstaðfest. Drap svan 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.3. 2016 LESBÓK KVIKMYNDIR Daniel Craig hefur gefið sterklega í skyn að hann hafi leikið njósnara hennar hátignar, James Bond, í hinsta sinn. Enda þótt aldrei eigi að segja aldrei verður umræðan um arftaka hans æ fyrirferðar- meiri. Breska blaðið The Guardian velti þessu fyrir sér í vikunni og komst að þeirri niðurstöðu að Idris Elba væri heppilegasti kosturinn. Um það eru veðbankar blaðinu sammála. Tími sé kominn á hörundsdökkan Bond. Þá þykir blaðinu tímabært að endurvekja kynþokka Bonds og láta hann vefja veikara kyninu um fingur sér, líkt og Roger Moore gerði forðum. Það eina sem The Guardian þykir vinna gegn Elba er aldurinn. Leikarinn sé orðinn 43 ára sem þýði að hann verði líklega 45 ára þegar fyrsta myndin verði frumsýnd. Elba upplagður Bond Idris Elba. AFP TÓNLIST Enda þótt Madonna hafi í áratugi verið eitt mesta ólíkindatól poppheima tókst henni að koma áhangendum sínum í opna skjöldu í vikunni þegar hún hjólaði inn á svið- ið á tónleikum í Ástralíu á þríhjóli, klædd í trúðsbúning. Hlóð síðan í Send in the Clowns eftir Stephen Sondheim. Vel lá á söngkon- unni þetta kvöld og ófáar skrítlur fengu að fjúka. Meðal annars þessi: „Ef ykkur líkar ekki við skartið í munni mér, þá eru útidyrn- ar þarna!“ Alvaran varð þó ekki alfarið eftir heima en eitt laganna tileinkaði Madonna 15 ára syni sínum, Rocco, en hún hefur staðið í forræðisdeilu við föður hans, Guy Ritchie. Trúðurinn Madonna á þríhjóli Madonna blessunin er augljóslega til alls vís. Reuters Donald Trump á kosningafundi. Jafnaldri Trumps á safn? FURÐUR Kynlífssafn nokkurt í Las Vegas hefur skorað á auðkýf- inginn og forsetaframbjóðandann Donald Trump að láta sér í té eftir- mynd af skökli sínum en það ágæta líffæri barst fyrir skemmstu óvænt í tal í kappræðum þeirra er sækjast eftir útnefningu repúblikanaflokks- ins. Gaf Trump þar í skyn að hann væri hreint ekki illa vaxinn niður. Talsmenn kynlífssafnsins krefjast þess að hann sanni það með þessum hætti. FURÐUR Hávaði í kringum Reag- an-flugvöllinn í Washington hefur verið til umræðu undanfarin miss- eri. Þeim sem krefjast úrbóta brá þó nokkuð í brún þegar upplýst var að 6.500 af 8.670 kvörtunum sem bárust í fyrra komu frá sömu mann- eskjunni. Það jafngildir því að við- komandi hafi kvartað átján sinnum á dag. Flugvallaryfirvöld hafa eigi að síður ennþá áhuga á að ná sátt- um við íbúa í grenndinni. 6.500 kvartanir Ég held að allir sem eitthvertskynbragð bera á popp-tónlist sjöunda áratugarins séu sammála um að George Martin hafi skipt sköpum. Ekki bara fyrir Bítlana, heldur fyrir breska popp- tónlist í heild sinni. Hann mótaði hljóm áratugarins.“ Þetta segir Sveinn Guðjónsson blaðamaður og tónlistarmaður, oft kenndur við Roof Tops, um upp- tökustjórann góðkunna, sem féll frá í vikunni. Sveinn segir að þegar Bítlarnir sneru sér fyrst til hans hafi Martin ekki verið ýkja hrifinn af lögunum sem þeir voru með í pokahorninu. Það hafi hann látið hafa eftir sér. „En hann heillaðist strax af per- sónutöfrum þessara drengja og fann kraftinn sem þeir höfðu komið sér upp á rokkárunum í Hamborg, þar sem þeir spiluðu klukkutímum saman á hverju einasta kvöldi.“ Sveinn segir Martin hafa þótt „Love Me Do“ skásta lagið sem Bítlarnir bjuggu að á þessum tíma og fann leið til að útsetja það og taka upp. „Úr varð lag sem mörg- um þykir alveg prýðilegt og gaf tóninn fyrir það sem Bítlarnir stóðu fyrir. Það má með góðri samvisku segja að George Martin hafi skapað hljóminn sem Bítlarnir urðu þekkt- ir fyrir. Áður en þeir kynntust hon- um voru þeir bara hráir rokkarar.“ Sveinn er ekki í vafa um að Bítl- arnir hefðu aldrei náð eins langt og þeir gerðu án Martins. Þeir hefðu alltaf orðið frambærileg rokk- hljómsveit en ekkert mikið meira. „Hann kom auga á hæfileika þeirra og þroskaði þá hjá hverjum og ein- um. Martin skynjaði til dæmis strax að Bítlarnir yrðu að fá sér annan trommara; skipta Pete Best út fyrir Ringo Starr. Menn hafa mikið verið að stúdera trommuleik Ringos í seinni tíð og komist að þeirri niðurstöðu að hann sé frábær trommuleikari sem eigi mikinn þátt í velgengni hljómsveitarinnar.“ Klassískur bakgrunnur Martin var með klassískan bak- grunn í tónlist og segir Sveinn hann hafa haft áhrif á lagasmíðar Bítlanna. „Hann skynjaði að undir niðri var þetta klassísk tónlist, eins og fáir efast um í dag. Þegar reynslu Martins og ferskleika Bítl- anna var blandað saman varð þetta útkoman. Að mínu mati er það fyrst og fremst George Martin að þakka að tónlist Bítlanna varð sí- gild og á eftir að lifa miklu lengur en við. Mörg lög Bítlanna eru ódauðleg.“ Auk áhrifanna bendir Sveinn á að Martin eigi frasa í einstökum lögum, s.s. í „Eleanor Rigby“. Þá hafi hann þróað hjá þeim fals- ettutæknina. Afar kært var með Bítlunum og Martin, ekki síst Paul McCartney, sem kallað hefur hann sinn annan föður. Þá minntist hann upptöku- stjórans á samskiptamiðlum í vik- unni með þeim orðum að ef einhver ætti rétt á að vera kallaður „fimmti Bítillinn“ væri það Martin. „Þeir gerðu ýmsar tilraunir, félagarnir, og það var fyrst og fremst samstarf Martins og McCartneys sem skóp meistaraverkið „Sgt. Pepper’s“,“ segir Sveinn. Hann vekur einnig athygli á því að Martin hafi verið flinkur við að raða upp lögum á stórar plötur og fengið þær þannig til að virka sem best. Þann hæfileika megi ekki van- meta; sjaldnast dugi að setja bak- verðina í senterinn. Martin starfaði með mörgum fleirum, svo sem Cillu Black, Gerry and the Pacemakers og seinna Elton John og The Police. „Hann hafði gríð- arleg áhrif og margt af því sem hann kom nálægt hefur slegið í gegn og lif- að.“ George Martin ásamt Bítlunum árið 1964. Getty Images Gerði Bítlana sígilda Upptökustjórinn George Martin sálaðist í vikunni, níræður að aldri. Hann hafði mikil áhrif á popp- tónlist 7. áratugarins og leiða má líkum að því að án Martins hefðu Bítlarnir aldrei náð eins langt. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is George Martin fæddist í Lundúnum árið 1926. Hann lærði á slaghörpu og óbó í Guildhall School of Music and Drama og starfaði við klassísku tónlistardeildina hjá breska ríkisútvarpinu, BBC, eftir útskrift. Árið 1950 gerðist hann upp- tökustjóri hjá EMI og tók meðal annars upp efni með Peter Sellers og Spike Milli- gan. Martin er þekktastur fyrir samstarf sitt við Bítlana en hann tók upp allar breið- skífur þeirra nema þá síð- ustu, Let it Be. Það kom í hlut Phils Spectors. Ferill Martins í tónlist, við upp- tökur og stjórn- unarstörf, spann- ar meira en sex ára- tugi. Meira en sex- tíu ára ferill Sveinn Guðjónsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.