Jólakver - 01.12.1928, Blaðsíða 19
JÓLAKVER 1928
17
eins og til þess að ergja hann. í þetta sinn horfði hann
hatursfullum augum á vel búna manninn, sem sat í
bílnum bak við gljáfægðu rúðuna. Bíllinn nam skyndi-
lega staðar fyrir framan bekkinn, sem flækingurinn
sat á. Bifreiðarstjórinn hljóp niður úr sæti sínu og
opnaði vagnhurðina. Vel búni maðurinn kom út úr
bílnum og gekk í hægðum sínum yfir að bekknum.
„Gott kvöld, vinur minn“, sagði hann hægt og vin-
gjarnlega. „Það lítur út fyrir, að jólin ætli að verða
köld og daufleg hjá yður“. Flækingurinn glotti og
þagði. Komumaður settist á bekkinn við hlið hans og
hjelt áfram: „Jeg hefi veitt yður eftirtekt um stund
og mig langar til að tala við yður nokkur orð. En hjer
er kalt og hráslagalegt og þjer eruð frakkalaus. —
JÚLÍUS' BJÖRNSSON
Raftækjaverslun, Austurstræti 12.
Jólagfafír:
Ilmvatnslampar, fjölda margar gerðir.
Therma Straujárn, afbragðs jólagjöf.
Borðlampar með Silkiskerm.
Krónur og Skálar (postulín og alabast).
„Ondulerjám“, hituð með rafmagni.
Ofnar til að hita í „Ondulerjárn“.
P R O T O S ryksugur og P R O T O S bónvjelar.
Verðmætar og kærkomnar
jólagjafir handa konum.