Jólakver - 01.12.1928, Qupperneq 23
JÓLAKVER 1928
21
sátuð nákvæmlega í sama stað og jeg var vanur að
sitja, og jeg vissi, hvernig mundi vera ástatt fyrir yður.
Mjer var ljóst, að ef jeg hefði ekki orðið fyrir þessu
láni, sæti jeg máske enn á sama bekknum og áður.
En segið þjer mjer nú, munduð þjer ekki vilja koma
heim með mjer og vera hjá mjer um jólin?“
Flækingurinn virtist eiga í stríði við sjálfan sig.
Hann tók um ennið og gaut hornauga til þessa nýja
fjelaga síns. „Atvikin eru undarleg", tautaði hann.
,,Fyrir nokkrum mínútum sat jeg á bekknum þarna og
formælti yður. Jeg formælti bæði yður og öllum þeim,
sem eru sólarmegin í lífinu, meðan jeg og önnur úr-
hrök mannfjelagsins verða að þola hungur og kulda.
Mjer hafði aldrei dottið í hug, að auðmenn gætu verið
góðir. En það er ef til vill vegna þess, að þjer hafið
HÚSMÆÐUR!
Biðjið um vörur frá h.f. Efnagerð
Reykjavíkur, þegar þjer pantið til
J Ó L A N N A.
Salan á okkar vörum fer altaf vax-
andi, og er það best trygging fyrir
gæðum varanna.
H.f. Efnagerð Reykjavíktír.