Jólakver - 01.12.1928, Side 41
JÓLAKVER 1928
39
„Það er þá best að lofa honum að byrja strax,“ mælti
Poliver greifi.
Þareð greifinn var í miklum metum meðal stjettar-
bræðra sinna, og þeir vissu að hann gerði ekkert til-
gangslaust, — þá samsintu þeir honum allir, og Donatin
barón byrjaði nú að vekja upp vofurnar með þeirri ein-
földu aðferð, að hann kallaði á þær, til dæmis: „Sýndu
þig, Cæsar!“
Að augnabliki liðnu, sagði baróninn:
„Jeg hefi vakið Cæsar upp! Getið þið ekki sjeð
hann?“
„Jú, jú! Nei, þetta gengur fram af mjer, en hvað
hann er náttúrlegur og bráðlifandi!“
Þannig vakti baróninn upp um 30 afturgöngur,
þar til allir voru sannfærðir um hæfileika hans í þá
átt, og jafnvel Poliver greifi varð að játa þá.