Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Page 17
26.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Linsunni snúið
að ferðalanginum
Ferðamaðurinn er ýmist talinn bjargvættur efnahagsins
eftir hrunið, boðari óteljandi nýrra tækifæra eða
miskunnarlaus niðurtraðkari náttúru og menningar.
Ómar Óskarsson ljósmyndari skrapp í nokkrar ferðir
á sjö helstu ferðamannastaði suðvesturhornsins utan
borgarinnar til að skoða betur hvað ferðalangar
aðhafast meðan þeir dvelja meðal okkar.
Yndislegt er í Almannagjá og upplagt að bregða á leik.
Kínversk fjölskylda við öllu búin í úðanum og rigningunni við Gullfoss.
Gérard Bossin frá Suður-Frakklandi var hér á ferð með fjölskyldu
sinni. Gérard er enginn aðdáandi knattspyrnu, svo hann saknaði Evr-
ópumótsins ekki hið minnsta. Hann er mjög heillaður af náttúrufeg-
urðinni, en verðlagið hér á landi fannst honum ekki alveg í lagi.
Erlendir ferðamenn stilla sér upp við gamla góða Geysi.
’Hinn gullni hringur, það erÞingvellir, Gullfoss og Geysir,eru dæmi um fjöldaferðamanna-staði sem mikill meirihluti ferða-
langa leggur undir fót.
Nauðsynlegt er að vera með nesti og nýja skó á ferðalögum. Ekki er verra að geta grípið í rammíslenska flatköku.
Ljósmyndir
ÓMAR ÓSKARSSON