Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Side 26
MATUR Blandið saman 2 dl af majónesi, 2 msk af sýrðum rjóma, skvettu afWorcestershire-sósu, smá skvettu af Tabasco og smá sítrónusafa.
Frábært á samlokur og með grillmat og borgurum.
Eðal kokteilsósa
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.6. 2016
Fyrir 2
afgangar af cordon bleu
4 egg
Til að hleypa fjögur egg þarf
lítra af vatni með örlitlu
salti og 1 msk. af eplaediki.
Þegar suðan er komin upp,
hrærið með teskeið í vatn-
inu þannig að hringiða
myndast. Brjótið eggið var-
lega út í og sjóðið í 2-3 mín-
útur. Eggjarauðan á að vera
fljótandi, ekki yfirgefa pott-
inn á meðan þið eruð að
gera þetta, það á að létt-
sjóða í pottinum, ekki bull-
sjóða. Takið eggin varlega
upp úr pottinum og geymið
á meðan þið eruð að hita af-
gangana upp í örbylgjunni.
Kjötið er sett á diskinn, róf-
urnar/gulræturnar ofan á
kjötið og eggin síðan ofan á.
Cordon bleu m/hleyptu eggi
Fyrir 2
2 panini-brauð
4 salatblöð
1 tómatur, í sneiðum
½ paprika, í sneiðum
Dijon-sinnep, smá til að
smyrja með
afgangar af Cordon Bleu
smá ólífuolía
Skerið brauðið í tvennt
og léttristið í ofni. Hell-
ið nokkrum dropum af
ólífuolíu á neðripartinn
af brauðinu og smyrjið
síðan örlitlu Dijon-
sinnepi á. Setjið svo
salatið, tómatsneiðar
og paprikusneiðar ofan
á. Hitið afganga af Cor-
don Bleu í örbylgjuofni
í 1-2 mínútur. Setjið of-
an á grænmetið og lok-
ið.
Cordon Bleu í panini-brauði
Svínahnakkifylltur meðskinku og
osti, eða Cordon
Bleu eins og það
kallast á frummál-
inu, er það sem
Óskar töfrar fram í
þætti vikunnar af
Korter í kvöldmat.
Cordon Bleu er án
efa nokkuð sem
margir hafa séð
tilbúið í frystinum í
verslunum, en það
er ótrúlega auðvelt
að gera þennan rétt sjálfur. Óskar sýnir ein-
falda og ljúffenga útgáfu af þessum vinsæla
rétti og er hann borinn fram með rjómalög-
uðum gulrótum og rófum. Gott er að elda ríf-
lega og eiga afganga til að borða daginn eftir
og sýnir Óskar hvað hægt er að gera til að
setja réttinn í nýjan búning.
Cordon Bleu á einfaldan máta
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM
Óskar Finnsson kemur
sífellt með nýjar og
sniðugar uppskriftir
sem allir geta farið eft-
ir. Í vikunni kenndi
hann okkur að elda
Cordon Bleu á einfald-
an og fljótlegan hátt.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar auðveldar okkur
eldamennskuna.
Morgunblaðið/Ásdís
Þú færð öll hráefnin
úr þáttunum hjá okkur
Cordon bleu
Fyrir 4
6-700 g svínahnakki
4 skinkusneiðar
8 ostsneiðar
1 rófa
3-4 stórar gulrætur
brauðrasp
1 egg
2 tsk. hunang
1 góð tsk. dijon-sinnep
½ dl rjómi
ólífuolía
salt og pipar
Flysjið og skerið rófuna og
gulræturnar í grófa bita.
Setjið í pott og sjóðið með
smá salti í 15-20 mínútur
eða þar til tilbúið.
Brjótið egg í skál og
hrærið ásamt salti, pipar
og örlitlum rjóma. Hellið
brauðraspinu í vítt fat eða
eldfast mót svo auðvelt sé
að vinna með það.
Skerið kjötið í þunnar
sneiðar og setjið í plast-
poka. Berjið með potti þar
til þær eru orðnar þunnar
og nokkuð jafnar. Kryddið
kjötið með pipar og örlitlu
salti og yfir það eru lagðar
sneið af osti og sneið af
skinku. Önnur kjötsneið er
lögð yfir og þrýst létt á.
Takið „kjötsamlokuna“
og setjið varlega í eggin og
í brauðraspið. Þekið með
raspinu og þrýstið því vel
á.
Hitið olíu á pönnu og
brúnið kjötið báðum meg-
in.
Ef sneiðarnar eru þykk-
ar getur svo borgað sig að
setja lok á pönnuna til að
vera viss um að kjötið nái
að eldast í gegn.
Þegar rófurnar og gul-
ræturnar eru soðnar er
80-90% af vatninu hellt úr
pottinum og við bætast 2
tsk. af hunangi og 1 tsk. af
sinnepi. Potturinn fer aftur
á helluna, ½ dl af rjóma
bætt við og þetta soðið
saman svo bragðið af hun-
anginu og sinnepinu bland-
ist vel saman. Þetta ætti
að taka nokkrar mínútur,
eða þar til kjötið er full-
eldað.
Þegar kjötið er komið
með stökka skorpu og
orðið eldað í gegn er það
svo borið á borð með
grænmetinu. Einfaldari
cordon bleu en þennan er
ekki hægt að gera!