Náttúrufræðingurinn - 2014, Síða 13
13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
hafs var reiknað um 350.000 km2.34
Árlegur meðallífmassi milliátu í Ís-
landshafi verður því um 3,5 milljónir
tonna þurrvigt, sem jafngildir um 17
milljónum tonna í votvigt, miðað
við 20% þurrefnisinnihald. Líf-
massi stórátu (ljósátu og marflóa) er
áætlaður 12 milljónir tonna votvigt,
á grundvelli mælinga í Barentshafi.35
Heildarlífmassi átu í Íslandshafi er
því áætlaður 29 milljónir tonna. Líf-
massi helstu fisktegunda var metinn
með bergmálsmælingu og nam sam-
tals 988.000 tonnum, þar af var síld
566.000 tonn, kolmunni 284.000 tonn
og loðna 138.000 tonn.
Umræða
Frá lokum síðustu aldar hefur
sjór hlýnað í Íslandshafi og á
nálægum hafsvæðum allt norður til
Svalbarða.32,36–40 Hærri og stöðugri
sjávarhiti á stöð 4 á Kögursniði
síðustu ár bendir til þess að hitaskilin
norðan Íslands, milli hlýs Atlants-
sjávar og kaldari sjávar Austur-
Grænlandsstraums, hafi færst
til norðurs. Með hliðsjón af vel
þekktu straumakerfi Noregshafs
og Norður-Grænlandshafs, sem og
hlýnun millisjávar í Íslandshafi, er
sú ályktun nærtæk að breytingar
í hita og seltu vestur af Svalbarða
hafi leitt til breytinga í millisjó í
Norður-Grænlandshafi41 og að-
streymis hlýnandi millisjávar inn
í Íslandshaf. Því virðist hlýrri sjór
hafa borist inn í Íslandshaf bæði að
sunnan og norðan á síðustu árum
og valdið hlýnun í hafinu öllu.
Vöxtur kísilþörunga hófst í apríl í
Íslandshafi, en magn þeirra jókst lítið
fyrst í stað vegna lítillar lagskiptingar.
Þegar lagskipting jókst í síðari hluta
maí varð snarpur vöxtur, en aðeins í
stuttan tíma þar sem magn kísils var
af skornum skammti og takmarkaði
því fljótlega vöxt. Með aukinni
lagskiptingu eftir því sem leið á
sumarið voru litlir möguleikar á að
vöxtur kísilþörunga næði sér á strik
á nýjan leik nema með uppbroti lag-
skiptingar og aðfærslu kísils. Niður-
stöður mælinga í þessu verkefni
frá sumrunum 2006 til 2008 sýndu
að slíkt gerðist ekki.16 Svipuð fram-
vinda kísilþörunga virðist eiga sér
stað í Noregshafi42,43 og á svæðum í
Norður-Atlantshafi.44,45,46 Smáir svif-
þörungar (<10 µm) mynduðu stóran
hluta af lífmassa svifþörunga í Ís-
landshafi frá vori til hausts ekki ólíkt
því sem gerist í Noregshafi,43 Græn-
landshafi46 og Barentshafi47. Skoru-
þörungar eru mikilvægir í Íslands-
hafi og hafa þá eiginleika fram yfir
t.d. kísilþörunga að vera ýmist frum-
bjarga, ófrumbjarga eða bæði frum-
og ófrumbjarga. Þetta þýðir að þeir
eru ekki eingöngu háðir uppleystum
næringarefnum í sjó eins og kísil-
þörungar heldur geta tekið til sín
næringu á fleiri vegu. Þeirra hlutur
innan svifþörunga er því mjög mikil-
vægur í sumarsvifinu eins og sýnt
hefur verið fram á í Noregshafi.43
Af tegundum milliátu í Íslands-
hafi voru fáar algengar en margar
sjaldséðar. Aðeins rauðátan fannst
í öllum 247 sýnum og einungis
sex tegundir fundust í fleiri en 200
sýnum. Þetta er í samræmi við mörg
norðlæg vistkerfi þar sem megin-
hluta lífrænnar framleiðslu er haldið
11. mynd. Niðurstöður RDA-hnitunargreiningar á milliátu og helstu umhverfisþáttum
(blaðgrænu, hita og seltu, botndýpis og árs) að sumarlagi 2006–2008. Ár eru skilgreind
sem flokkunarbreytur, og táknaðar með þríhyrningum. Til að taka tillit til breytileika
vegna sýnatöku á mismunandi árstíma (í júlí 2006 en ágúst 2007 og 2008) er dagnúmer
sett inn sem fylgibreyta. Rauðu örvarnar og rauði þríhyrningurinn hafa marktæk áhrif
á röðunina, en gráar örvar og þríhyrningar tákna hlutlausar breytur.33 Sjá nánar í
megintexta. – Mesozooplankton. RDA biplot of mesozooplankton species abundances
(numbers m-3, 0–50 m, thin black arrows) and environmental variables (red and grey
arrows) in the Iceland Sea during 2006 (July), 2007 and 2008 (August). Environmental
variables are chlorophyll a, temperature and salinity (means from 0–50 m), bottom
depth and year. Year is a categorial variable denoted as triangles (centroids). Day of year
is a covariable to subtract variability due to different sampling times. Red arrows or
triangles significantly explain variation in community structure. Grey arrows and tri-
angles are insignificant variables. Arrows point in the direction of steepest increase of
a variable. The angles between arrows reflect correlations. Taxa with <10 fit value to
the first axis are not shown.33
-1.0 1.0
-1
.0
1.
0
Acartia
Bivalvia
Calanus
finmarchicus
Calanus
glacialis
Calanus
hyperboreus
Chaetognatha
Cirripedia
Coelenterata
Foraminifera
Limacina
Microcalanus
Oithona
Oncaea
Ophiuroidea
Podon leuckarti
Polychaeta
Pseudocalanus
Temora
longicornis
Themisto
abyssorum
Dýpi
Hiti
Selta
Blaðgræna
2008
Breidd
Lengd
20062007
Ás 1 – Axis 1 (58,2%)
Á
s
2
–
A
xi
s
2
(2
6,
6%
)
Fig11 íslensk