Bókasafnið - 01.06.2015, Síða 4
4
Nýjar alþjóðlegar skráningarreglur, RDA (Resource Descrip-
tion and Access), hafa verið í þróun um alllangt skeið og koma
þær í stað AACR2 (Anglo-American Cataloguing Rules) sem
þykja úreltar. Ensk-amerísku skráningarreglurnar (AACR2)
eiga sér langa sögu og mikla útbreiðslu. Hér á landi voru þær
teknar upp í meginatriðum um 1970. AACR2 reglurnar eru
barn síns tíma. Í grunninn taka þær fyrst og fremst mið af
prentuðu efni, skráningu bóka og tímarita. Þótt reglum um
skráningu annarra útgáfuforma hafi verið bætt við í tímans rás
hefur þótt skorta samfellu og jafnvægi milli útgáfuforma.
Reglurnar voru mótaðar á tímum spjaldskráa með takmark-
aða leitarmöguleika. Plássið á skráningarspjaldi krafðist
skammstafana og styttinga sem gera upplýsingarnar fremur
óaðgengilegar aflestrar.
Arftaki AACR2 eru RDA reglurnar sem voru fyrst birtar á
vefnum RDA Toolkit árið 2010. Þær taka til skráningar á marg-
víslegum útgáfuformum, áþreifanlegum sem rafrænum. Regl-
urnar eru sveigjanlegar og sniðnar að möguleikum upplýs-
ingatækni til samtengingar og samnýtingar á gögnum í mis-
munandi upplýsingakerfum. Jafnframt er ástæða til að geta
þess að bókfræðifærslur samkvæmt RDA og AACR2 eru sam-
nýtanlegar. Þótt RDA reglurnar séu fyrst og fremst þróaðar
sem skráningarreglur bókasafna var leitað ráðgjafar og sam-
ráðs við tengda geira og hagsmunaaðila til að ná sem mestri
samsvörun milli lýsigagnastaðla. Þörf fyrir staðlaða skráningu
eykst í réttu hlutfalli við magn upplýsinga og helst einnig í
hendur við kröfur notenda um að finna fljótt og örugglega
upplýsingar sem leitað er. Meginmarkmið með RDA er að auð-
velda notendum gagnagrunna að nálgast það sem þeir þarfn-
ast.
Eins og gefur að skilja eru aðþjóðlegar skráningarreglur fjöl-
þjóðlegt samstarfsverkefni. Ábyrgðin á RDA reglunum er í
höndum stýrihóps, The Joint Steering Committee (JSC) for
Development of RDA. Að stýrihópnum standa veigamikil félög
bókasafna á borð við American Library Association (ALA) og
höfuðsöfn eins og British Library og Library of Congress. Yfir
öllu saman vakir IFLA (International Federation of Library
Associations and Institutions), alþjóðasamband bókasafna og
bókavarðafélaga. RDA reglurnar eru þróaðar af þjóðbókasöfn-
um í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu og hafa
verið innleiddar víða um heim. Þær taka mið af nýjum miðlum,
nýrri tækni og framsetningu efnis í stórum og fjölbreyttum
gagnasöfnum.
RDA reglurnar eru birtar í vefútgáfu á ensku, frönsku,
spænsku og þýsku. Birtingin er á vefnum RDA Toolkit og að-
gangur seldur í tímabundinni áskrift. Vefútgáfa gefur kost á
reglulegum uppfærslum eftir því sem reglurnar þróast í takt
við síbreytilega útgáfuhætti. Síðan vefurinn RDA Toolkit var
opnaður hafa allmargar uppfærslur verið birtar. Árið 2014 var
hann til að mynda uppfærður fjórum sinnum.
Innleiðing RDA skráningarreglnanna á Íslandi
Hildur Gunnlaugsdóttir er með BA próf í bókasafns- og
upplýsingafræði og gegnir starfi gæðastjóra skráningar á
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Magnhildur Magnúsdóttir er með BA próf í bókasafns- og
upplýsingafræði ásamt viðbótar diplómanámi í upplýsinga- og
skjalastjórn. Hún starfar sem skrásetjari á Landsbókasafni Íslands
– Háskólabókasafni og er verkefnisstjóri innleiðingar RDA.