Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Page 31

Bókasafnið - 01.06.2015, Page 31
31 Stefna Háskóla Íslands um opinn aðgang: Aðdragandi og viðhorf akademískra starfsmanna háskólans Áslaug Agnarsdóttir er bókasafnsfræðingur og starfar sem sviðsstjóri þjónustu og samskipta við Háskóla Íslands á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Opinn aðgangur (Open Access) er heiti yfir nýtt útgáfuform, það er ákveðna aðferð við birtingu og dreifingu fræðilegs efnis. Með hugtakinu „opinn aðgangur“ er átt við það að af- rakstur vísindastarfs, sem kostaður er af opinberu fé, sé að- gengilegur öllum á veraldarvefnum. Þar er fyrst og fremst um að ræða rannsóknir sem unnar eru af fræðimönnum og sér- fræðingum, meðal annars akademískum starfsmönnum há- skóla og þeim sem hljóta styrki úr opinberum rannsóknar- eða samkeppnissjóðum. Venjulega er hugtakið „opinn að- gangur” notað um birtingu tímaritsgreina, sjaldnar um bækur, skýrslur og annað efni. Helsti tilgangur opins aðgangs er að miðla þekkingu en höfundarréttur breytist hvorki né skerðist. Opinn aðgangur (eða OA) hefur nú verið til umræðu hér- lendis í þó nokkurn tíma en enn eru skiptar skoðanir um þetta form og það hefur átt erfitt uppdráttar innan fræðasamfélags- ins. Samanborið við mörg nágrannalönd okkar hefur hug- myndin um opinn aðgang verið lengi að skjóta rótum hér á landi en hefur þó hlotið aukinn meðbyr á undanförnum mán- uðum. Þeir fræðimenn, sem aðhyllast birtingu í opnum að- gangi, eru víðast hvar erlendis í miklum meirihluta. Opinn aðgangur er fyrst og fremst hagsmunamál háskóla og fræðimanna. Opinn aðgangur kemur þó einnig almenn- ingi að notum og getur sparað bókasöfnum mikil fjárútlát. Síðan hreyfingin um opinn aðgang hófst fyrir alvöru á tíunda áratugi síðustu aldar hafa margir háskólar á Vesturlöndum og víðar mótað stefnu um opinn aðgang. Sama á við um ýmis vísindaráð og aðra sem veita styrki til rannsókna, til dæmis Rannís. Undanfarið hefur reyndar verið tilhneiging til að tala um opin vísindi í stað opins aðgangs. Evrópusambandið álykt- aði til dæmis um opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum 2008 og breytti nýverið stefnu sinni í stefnu um opin vísindi.i Í október 2012 skrifaði Landsbókasafn Íslands – Háskólabóka- safn undir Berlínaryfirlýsinguna um opinn aðgang. ii Vísinda- og tækniráð, sem mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi, setti eftirfarandi klausu um opinn aðgang í stefnu sína fyrir 2010-2012: „Niðurstöður rannsókna koma að takmörkuðu gagni séu þær ekki aðgengilegar þeim sem vinna að rannsóknum eða nýsköpunarverkefnum.“iii Þar er líka gerð krafa um að niðurstöður rannsókna sem njóta opinberra styrkja verði birtar í opnum aðgangi og að mótuð verði opin- ber stefna þar að lútandi. Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís), sem hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi og starfar náið með Vísinda- og tækniráði, hefur kynnt reglur um opinn aðgang sem tóku gildi í janúar 2013. iv Nefna má grein eftir Ian Watson og Guðmund Á. Þórisson sem birtist í Samtíð: tímariti um samfélag og menningu í janúar 2013. v Greinin er yfirlitsgrein og fjallar um íslensk tímarit og opinn aðgang. Farið er yfir það hve mörg tímarit eru gefin út í opnum aðgangi á Íslandi og byggir rannsóknin á könnun sem gerð var í september 2013. Höfundar segja niðurstöðurnar hafa komið sér þægilega á óvart. Í greininni segir að 51 fræðirit hafi verið skoðað og af þeim hafi sextán verið alveg opin og greinarnar aðgengilegar á rafrænu formi á netinu um leið og

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.