Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 32

Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 32
32 Bókasafnið 39. árg. 2015 þær voru birtar. Tuttugu rit voru á bak við áskriftarvegg (grein- ar aðeins aðgengilegar á prenti gegnum áskrift til bókasafna og einstaklinga). Hin fimmtán ritin sem eftir eru gerðu greinar sínar aðgengilegar á opinn hátt á rafrænu formi á netinu eftir mislanga birtingartöf (e. embargo) eftir að prentútgáfan kemur út. Sólveig Þorsteinsdóttir birti grein í Sciecom Info 1 (2014) um 969 greinar eftir íslenska vísindamenn sem voru birtar í opnum aðgangi í erlendum vísindatímaritum árið 2013. Í heild var opinn aðgangur að 305 erlendum vísindagreinum það ár eða um 30%. Opinn aðgangur að vísindagreinum íslenskra vísindamanna er minni en meðaltalið hjá öðrum þjóðum. Grein Sólveigar byggði á leit í Web of Science gagnagrunn- inum (WOS) og Directory of Open Access Journals (DOAJ). Bent skal á að íslensku tímaritin í könnun Ians Watson og Guð- mundar Þórissonar höfðu flest ekki fengið DOI auðkenni og eru þar af leiðandi ekki að finna í WOS. vi Aðeins tveir háskólar á Íslandi hafa samþykkt stefnu um opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum starfsmanna sinna. Í janúar 2012 samþykkti Háskólinn á Bifröst stefnu um opinn aðgang, fyrstur íslenskra háskóla. (Sú stefna var hins vegar ekki birt á vef skólans fyrr en í maí 2012.)vii Í nóvember 2011 setti Háskóli Íslands saman starfshóp með fulltrúa frá hverju fræðasviði. Hópurinn skyldi skila drögum að stefnu um opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum og lokaverkefnum fyrir há- skólann fyrir 1. apríl 2012. Í hópinn voru valin Eiríkur Rögn- valdsson (Hugvísindasviði), sem var formaður hópsins, Elín Soffía Ólafsdóttir (Heilbrigðisvísindasviði), Gunnhildur Björns- dóttir (Menntavísindasviði), Jóhanna Gunnlaugsdóttir (Félags- vísinda sviði) og Viðar Guðmundsson (Verkfræði- og náttúru- vísindasviði). Einnig átti undirrituð sæti í hópnum sem fulltrúi Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Með hópnum starfaði Baldvin Zarioh deildarstjóri á Vísindasviði. Í þessari grein verður stefnumótunarferlið rakið og gerð grein fyrir viðbrögðum akademískra starfsmanna Háskólans við fyrirhugaðri stefnu. Hópurinn hittist fyrst snemma árs 2012 og fundaði eftir það nokkuð oft. Hann kynnti sér stefnu ýmissa annarra háskóla, bæði í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, því langflestir há- skólar á þeim slóðum voru þegar búnir að móta sér stefnu um opinn aðgang. Ákveðið var að hafa stefnu Harvard-háskóla sem fyrirmynd. Starfshópurinn lauk störfum á tilskildum tíma og drögum að stefnu var skilað til Vísindasviðs í lok mars sama ár. Það var þó ekki fyrr en tæpum tveimur árum síðar að end- anleg stefna var samþykkt af háskólaráði, nánar tiltekið 6. febrúar 2014, og skyldi hún taka gildi 1. júlí 2014. Á fundum starfshópsins ríkti almennt einhugur um áherslu- atriði stefnunnar og gekk hratt og vel að semja drög sem allir voru sáttir við. Drögunum fylgdu tillögur og ábendingar frá starfshópnum um nokkur atriði sem honum þótti nauðsyn- legt að tekið yrði tillit til. Þær náðu til óhjákvæmilegs kostn- aðar sem kæmi til og bent var á að háskólinn yrði að móta reglur um hvernig sá kostnaður yrði greiddur og tryggja fé til þess. Einnig var bent á að höfundarréttarmál væru oft flókin Stefna Háskóla Íslands um opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum og lokaverkefnum ásamt verklagsreglum Rætt á 10. háskólaþingi 19. apríl 2013 og samþykkt í háskólaráði 6. febrúar 2014. Háskóli Íslands leggur áherslu á að sem flestir geti notið afurða þess vísindastarfs sem unnið er innan háskólans. Há- skólinn hvetur því starfsmenn til að birta fræðigreinar sínar á vettvangi þar sem aðgangur er opinn, svo sem í tímaritum í opnum aðgangi, safnvistun, forprentagrunnum, eða á annan hátt. Stefna Háskóla Íslands um opinn aðgang tekur ekki til bóka eða bókarkafla. Starfsmenn skulu veita vísinda- og nýsköpunarsviði án endurgjalds rafrænan aðgang að lokaútgáfu vísindagreina sinna ekki seinna en við birtingu. Þetta má gera með því að afhenda greinarnar á viðeigandi formi (svo sem PDF), senda krækju á veffang opins aðgangs að greinunum, eða á annan viðeigandi hátt. Háskóla Íslands er heimilt að vista greinarn- ar og gera þær aðgengilegar í opnu rafrænu varðveislusafni. Gildir þetta um allar vísindagreinar ritaðar af starfsmönnum háskólans, einum eða með fleiri höfundum, á þeim tíma sem þeir eru ráðnir við háskólann. Undanskildar eru vísindagreinar sem lokið var við fyrir gildistöku þessarar samþykktar og greinar sem vinna var hafin við fyrir gildistökuna og um gilda skilmálar sem ekki falla að samþykktinni. Vísinda- og nýsköpunarsvið er jafnframt heimilt að undanskilja einstakar vísindagreinar frá samþykktinni, eða seinka birtingu þeirra um tiltekinn tíma, beri viðkomandi starfsmaður fram rökstudda skriflega ósk þess efnis, sbr. verklags- reglur þar um. Afrakstur vísindastarfs innan Háskóla Íslands kemur einnig fram í lokaverkefnum stúdenta, bæði í grunn- og fram- haldsnámi. Skólinn leggur áherslu á að þessi verkefni séu gerð öllum aðgengileg eftir því sem kostur er. Um rafræn skil lokaritgerða gildir samþykkt háskólaráðs frá 21. febrúar 2008 og viðeigandi ákvæði í reglum Háskóla Íslands. Vísinda- og nýsköpunarsvið ber ábyrgð á túlkun stefnu og verklagsreglna um birtingar í opnum aðgangi, lausn ágrein- ingsmála og gerir tillögu um endurbætur þegar við á. Kennslusvið ber ábyrgð á túlkun og lausn ágreiningsmála þegar um lokaverkefni stúdenta er að ræða. Stefna þessi og viðeigandi verklagsreglur verða endurskoðuð innan þriggja ára og greinargerð um framkvæmdina kynnt fyrir háskólaráði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.