Bókasafnið - 01.06.2015, Page 40
40
Undir lok árs 2014 urðu þau tímamót að lýsigögn úr menn-
ingarsögulega gagnasafninu Sarpi voru tengd inn í safnagátt-
ina leitir.is. Verkefnið átti sér nokkra forsögu og verða henni
gerð skil hér auk þess sem sagt verður frá verkefninu sjálfu í
stuttu máli.
Haustið 2013 tók gildi samningur Landskerfis bókasafna hf.
(Landskerfið) við Rekstrarfélag Sarps (Rekstrarfélagið) en hið
síðarnefnda hafði árinu áður óskað eftir samstarfi við Lands-
kerfið. Rekstrarfélagið stóð þá á tímamótum, en fráfarandi
framkvæmdastjóri var að hætta störfum og þótti stjórn
félagsins tímabært að skoða nýjar leiðir við reksturinn. Eftir-
Rúmlega milljón aðföng úr Sarpi í leitir.is:
Samstarf Landskerfis bókasafna og Rekstrarfélags Sarps
sóknarvert þótti að komast í samstarf við Landskerfið og
njóta góðs af þekkingu félagsins á notendaþjónustu og
rekstri upplýsingatæknikerfa og ekki síður áralangri reynslu
aðildarsafna Gegnis varðandi stöðlun og gæðaeftirlit skrán-
ingar. Stjórn Landskerfisins sá að samstarf félaganna gæti
greitt fyrir því að Sarpur kæmi inn í safnagáttina leitir.is líkt og
nú er orðið og réð það miklu um afstöðu félagsins.
Í samningi félaganna er kveðið á um að Landskerfið taki að
sér daglegan rekstur, fjármál og stjórnun Rekstrarfélagsins,
svo sem samningagerð, starfsmannahald, aðstoð við áfram-
haldandi kerfisþróun Sarps auk aðstoðar við notendaþjón-
Sveinbjörg Sveinsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna hf. frá árinu
2006 og frá árinu 2013 hefur hún jafnframt verið framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Sarps.
Hún er menntuð sem rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands (CS) og Technische
Hochschule Darmstadt (Dipl. Ing.). Hún er jafnframt vottaður IPMA verkefnastjóri (B-vottun)
og hefur lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Telma Rós Sigfúsdóttir er vefstjóri hjá Landskerfi bókasafna hf. og hefur umsjón með
safnagáttinni leitir.is. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2006 og sinnt þjónustu og
kennslu tengdri Gegni, krækjukerfinu SFX og leitir.is. Hún er menntuð sem bókasafns- og
upplýsingafræðingur (BA og Bibliotekar DB) frá Danmarks Biblioteksskole í Kaupmannahöfn
og kennari (B.Ed.) frá Kennaraháskóla Íslands.
Sigurður Trausti Traustason er fagstjóri Sarps og hefur verið starfsmaður Rekstrarfélags
Sarps frá árinu 2013. Hann er með próf í safnafræðum (MA) frá Háskólanum í Leicester, próf í
sagnfræði (BA) frá Háskóla Íslands og diplóma í margmiðlunarhönnun (AP) frá Köbenhavns
Tekniske Skole.