Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
Korputorg
112 Reykjavík
Sími 551 5600
utilegumadurinn.is
FERÐAVAGNAR
Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16
Ægis
tjaldvagn
Ægis tjaldvagn með fortjaldi
Tilboð 990.000 kr.
aðeins 3 vagnar í boði.
Í nýjasta hefti Þjóðmála, sem ÓliBjörn Kárason ritstýrir, er að
vanda margt áhugavert að lesa.
Fjallað er um sviptingar á vett-
vangi stjórnmálanna, aðför Rík-
isútvarpsins að Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, eignarhald banka
og margt ann-
að sem máli
skiptir fyrir þá
sem láta sig
þjóðmálin
varða.
Eitt af þvísem tekið
er til umfjöll-
unar er sú ógn
sem steðjar að skattgreiðendum í
aðdraganda þingkosninganna.
Vakin er athygli á að flest bendi til
þess að fyrir árslok verði komin á
ný ríkisstjórn vinstri flokkanna og
að yfirlýsingar forsprakka þessara
flokka bendi til að skattastefna
Vinstri grænna og Samfylkingar
frá 2009-2013 verði tekin upp á nýj-
an leik.
Áform um frekari skattalækk-anir verði þannig að engu
gerðar.
Þetta er skuggalegt útlit og batn-aði ekki við það að formenn
Samfylkingar, Vinstri grænna og
Pírata hafa allt að því myndað
kosningabandalag með því að lýsa
því yfir að ekki komi til greina að
starfa með Sjálfstæðisflokknum eft-
ir kosningar.
Þar með er augljóst í hvað stefnirí skattamálum eftir kosningar
ef skoðanakannanir gefa ein-
hverjar vísbendingar – sem þær
gera yfirleitt.
Landsmenn ættu þess vegna aðbúa sig undir minnkandi kaup-
mátt og á allan hátt þrengri fjárhag
á komandi kjörtímabili.
Skattgreiðendur
grípi um budduna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.7., kl. 18.00
Reykjavík 18 léttskýjað
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk 17 heiðskírt
Þórshöfn 11 súld
Ósló 22 skúrir
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 19 rigning
Helsinki 23 heiðskírt
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 18 skúrir
Glasgow 15 skúrir
London 21 léttskýjað
París 23 skýjað
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 24 léttskýjað
Berlín 28 heiðskírt
Vín 26 léttskýjað
Moskva 26 léttskýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 24 skýjað
Montreal 24 skýjað
New York 29 léttskýjað
Chicago 25 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:21 22:48
ÍSAFJÖRÐUR 4:01 23:19
SIGLUFJÖRÐUR 3:43 23:03
DJÚPIVOGUR 3:45 22:24
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er ofsalega flott, ég hef
aldrei séð annað eins. Akrarnir eru
svo þéttir. Það stefnir í algera met-
framleiðslu á hvern hektara, ef
uppskera næst í haust,“ segir Ólaf-
ur Eggertsson, bóndi á Þorvalds-
eyri undir Eyjafjöllum og formað-
ur Landssambands kornbænda. Vel
lítur út með kornuppskeru um
meginhluta landsins, ef ekkert
óvænt gerist. Bændur eru farnir að
reikna með metuppskeru.
Það er ekki aðeins bygg og aðr-
ar korntegundir sem spretta vel.
Repjan vex betur en flest ár. Gras-
spretta hefur verið með eindæmum
góð. „Það er mikil spretta í öllum
gróðri, grasi og trjágróðri, upp um
allar heiðar,“ segir Ólafur. Hann
segir að bændur á Þorvaldseyri
séu að ljúka öðrum slætti og geti
þurft að fara í þriðja slátt þótt þeir
hafi ekkert við uppskeruna að
gera. Ástæðan fyrir gróskunni er
vitanlega sérlega gott vor og sum-
ar. „Hér hefur verið frábært sumar
alveg frá því 4. apríl. Ekkert
kuldakast kom í vor. Kornið fór vel
af stað. Það var að vísu þurrkur
frá miðjum apríl og að mestu út
maí. Það hafði engin áhrif á korn-
ið, nema til góðs. Því var sáð í raka
jörð um 10. apríl. Það spratt og
skreið um miðjan júní. Það er ótrú-
legt að sjá þetta,“ segir Ólafur.
Honum verður hugsað til síðustu
tveggja ára sem voru erfið fyrir
kornbændur. Uppskera var yfir-
leitt undir meðallagi þótt misjafnt
gengi hafi verið eftir landshlutum.
Margir kornbændur voru orðnir
svartsýnir á framtíðina, vegna þess
og vegna mikils ágangs fugla í akr-
ana, og minnkuðu við sig eða
slepptu því að sá í vor. Ólafur segir
að árið í ár ætti að vera þeim
áminning. „Það þýðir ekki að
hugsa svona. Það koma lakari ár
inn á milli. Svo koma toppár, eins
og útlit er fyrir núna, og þau bæta
margfalt upp það sem miður hefur
farið áður,“ segir Ólafur sem er
með reyndustu kornbændum lands-
ins.
Ólafur reiknar með að geta byrj-
að að þreskja korn eftir mánuð,
undir lok ágústmánaðar. Það er
hálfum mánuði fyrr en venjulega
og algert einsdæmi. Von er á met-
uppskeru, ef hægt verður að
þreskja á eðlilegan hátt.
Bændur reikna með metuppskeru
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Úti á akri Ólafur Eggertsson inni á fallegum hveitiakri á Þorvaldseyri.
Kornið skreið um miðjan júní Ólafur á Þorvaldseyri reiknar með að þreskja í
lok ágúst Er að ljúka öðrum slætti og stefnir í þann þriðja sem engin þörf er fyrir
Páll Gunnar Páls-
son, forstjóri
Samkeppniseftir-
litsins, segir að
það hafi ekki ver-
ið skoðað sérstak-
lega hjá stofnun-
inni, hvort það
brjóti í bága við
samkeppnislög,
að greiðslukorta-
fyrirtæki leigja út
posa til viðskiptavina sinna en meina
mönnum að eiga sína eigin posa, og
losna þannig undan því að greiða
greiðslukortafyrirtækjunum leigu
fyrir posana. „Þetta mál kann að
koma til skoðunar hjá Samkeppnis-
eftirlitinu á grundvelli samkeppnis-
laga,“ sagði Páll Gunnar í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hann segir að Guðmundur Óm-
arsson, framkvæmdastjóri og eig-
andi Eldhafs á Akureyri, sem fjallað
var um í frétt hér í Morgunblaðinu í
gær, vegna óánægju hans með svör
Valitors um að hann geti ekki keypt
sinn eigin posa, geti að sjálfsögðu
snúið sér til Samkeppniseftirlitsins
með umkvörtunarefni sitt. „Berist
slíkt erindi, verður það skoðað út frá
stöðu Valitors á þessum tiltekna
markaði, en að öðru leyti er ekkert
hægt um málið að segja, að svo
stöddu,“ sagði Páll Gunnar.
agnes@mbl.is
Málið skoðað
berist erindi
Lögmæti posaleigu ekki verið skoðað
Páll Gunnar
Pálsson