Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 64
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Það er mjög spennandi að vera hjá Ríkisendurskoðun og greini-lega ýmislegt sem þarf að fylgjast með í rekstri hins opinbera,“segir Svanborg Sigmarsdóttir sem hóf störf sem upplýsinga-
fulltrúi Ríkisendurskoðunar í maí síðastliðnum. Hún hafði áður starfað
sem upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara og þar áður var hún
blaðamaður á Fréttablaðinu.
„Ég er í sumarfríi núna og er búin að fara í eitt stórafmæli í fjölskyld-
unni, eitt brúðkaup í fjölskyldunni og annað á leiðinni svo þetta er búið
að vera veislusumar. Svo hef ég fylgst með manninum mínum sem er
búinn að vera voða duglegur að reisa pall úti í garði og hef veitt honum
mikinn andlegan stuðning í því,“ en Svanborg og sambýlismaður henn-
ar, Þórhallur Guðmundsson, búa í Bústaðahverfinu.
„Fjölskylda mín er að vinna í dag en ég vonast til að geta boðið henni
í mat í kvöld í tilefni afmælisins. Ég ætla einnig að prufukeyra súkku-
laðiköku sem ég ætla að baka fyrir næsta brúðkaup. Hún er örugglega
fyrir 12 manns, þannig að það er eins gott að einhver komi.“
Svanborg er stjórnmálafræðingur að mennt og reynir að fylgjast
með fræðunum. „Ég var að lesa bók Karls Th. Birgissonar um forseta-
kosningarnar fyrir fjórum árum, Alltaf einn á vakt, sem er mjög lipur-
leg og skemmtileg frásögn. Fyrir utan lestur góðra bóka þá er ég að
reyna að ala upp geðveikan kött og svo hef ég gaman af því að elda fyrir
fjölskylduna.“ Dóttir Svanborgar er Þórhildur Dagbjört Sigurjóns-
dóttir 21 árs og sonur Þórhalls er Vilhjálmur 22 ára.
Við Þórufoss í Kjós Svanborg og Þórhallur eftir fína ferð upp á Akra-
nes þar sem þau lentu á skemmtilegum tónleikum í vitanum þar.
Reynir að ala upp
geðveikan kött
Svanborg Sigmarsdóttir er 44 ára í dag
H
alldór Gunnar Eyj-
ólfsson fæddist í
Reykjavík 27. júlí
1966. Hann ólst upp
í Bólstaðarhlíð í
Reykjavík en fluttist í Vestur-
bæinn og gekk þar í Hagaskóla. Í
fimm sumur var Halldór strákur í
sveit á bænum Borg í Mývatns-
sveit.
„Ég hafði mjög gaman af að
vera í sveit og hef haldið í það í
seinni tíð með því að fara norður í
Aðaldal til bróður míns í sauðburð
á vorin og göngur á haustin. Það
er mjög skemmtilegt að takast á
við sveitastörfin og ganga þar í
flest störf.“
Halldór G. Eyjólfsson verkfræðingur – 50 ára
Á Ítalíu Eyjólfur Ásberg, Ásdís Karen, Steinunn Solveig ásamt Karen, móður Halldórs, og afmælisbarninu á Rimini.
Veit fátt betra en
að vera í sveitinni
Hjónin Halldór og Solveig stödd í Lissabon.
Birta Kristín Jökulsdóttir og Rakel Lea Einarsdóttir héldu tombólur í anddyrinu
á Nettó í Borgarnesi og gengu hús úr húsi og söfnuðu fyrir Rauða krossinn á
Íslandi 14.275 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
www.kvarnir.is
20 ÁRA
1996
2016
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Vinnupallar
margar
stærðir
og gerðir
Álstigar og tröppur
fyrir iðnaðarmenn
Íslensk framleiðsla í 32 ár