Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 65
Á unglingsárum gerðist Halldór
KR-ingur og hóf að æfa handbolta
og fótbolta með KR og varð m.a.
Íslandsmeistari með 2. flokki KR í
knattspyrnu 1985.
Náms- og starfsferill
Eftir Hagaskóla lá leiðin í
Menntaskólann við Hamrahlíð og
því næst í vélaverkfræði við Há-
skóla Íslands. Sumarið 1992 lauk
Halldór síðan Civil Ingeniör-prófi
í rekstrarverkfræði frá Danmarks
Tekniske Höjskole.
Halldór var starfsmaður Sam-
starfsnefndar atvinnurekenda í
sjávarútvegi (SAS) 1992-1994,
deildarstjóri hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna 1994-1998,
framkvæmdastjóri Kristján Guð-
mundsson hf. 1998-1999, fram-
kvæmdastjóri Sæmark 1999-2000,
framkvæmdastjóri hjá Sjóvá – Al-
mennum 2000-2006, forstjóri Sjó-
klæðagerðarinnar 66° Norður
2006-2011, framkvæmdastjóri Tor-
Nets 2012-2014 og útgerðarstjóri
Brim 2014-2016.
Halldór sat í stjórn Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar 2002-2005, í
stjórn Varðar trygginga 2007-
2009, sat í stjórn Knattspyrnu-
deildar KR 1999-2001 og Körfu-
knattleiksdeildar KR 2012-2015.
Fjölskyldan í fyrsta sæti
„Ég var heppinn með vinnu eftir
að námi lauk, þá fór ég að vinna
fyrir afar góð fyrirtæki og með
fólki sem ég lærði mikið af fyrstu
15 árin í atvinnulífinu.
Ég hef alltaf unnið mikið og haft
mjög gaman af öllum þeim störf-
um sem mér hefur verið treyst
fyrir á hverjum stað. Í dag er vin-
sæll frasi að vera „all-in“ og það
lýsir mér kannski best hvað vinnu
varðar.
Þó að vinnan hafi alltaf verið
ofarlega hjá mér og ég hef unnið
langa vinnudaga þá er fjölskyldan
alltaf í fyrsta sæti og erum við
hjónin svo lánsöm að hafa eignast
þrjú frábær börn.
Ég er alæta á íþróttir og fylgist
vel með þeim. Sjálfur spila ég inn-
anhússfótbolta einu sinni í viku og
fer í ræktina nokkrum sinnum í
viku. Ég hef verið byrjandi í golfi í
nokkurn tíma en ekki tekist að
helga mig því sporti almennilega.
Eldri börnin eru á fullu í íþróttum
og fór frítími hér áður fyrr að
mestu í að fylgja þeim á íþrótta-
mót um allt land. Nú síðustu ár
hafa bæst við landsliðsverkefni er-
lendis sem einnig er gaman að fá
að taka þátt í sem áhorfandi. Önn-
ur áhugamál hjá mér eru stang-
veiði, fjallgöngur og ferðalög.
Við erum búin að koma okkur
upp sumarbústað í landi Haga í
Holta- og Landsveit, þaðan sem ég
er ættaður í föðurætt. Ég hef haft
virkilega gaman af því verkefni,
bæði við smá trjárækt síðustu tíu
árin og að vinna við bústaðinn og
umhverfið þar í kring. Ég veit
reyndar fátt betra en að vera í
sveitinni með fjölskyldunni eða
vinum og njóta náttúrunnar.“
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Solveig
H. Sigurðardóttir, f. 10.10.1967,
lyfjafræðingur og framkvæmda-
stjóri hjá Icepharma. Foreldrar
hennar: Sigurður Georgsson, f.
27.9. 1946, d. 27.3. 2006, hæsta-
réttarlögmaður í Reykjavík, og
Ásdís Ásbergsdóttir, f. 5.9. 1946,
kennari í Reykjavík.
Börn Halldórs og Solveigar eru
1) Eyjólfur Ásberg, f. 9.1. 1998,
nemi, 2) Ásdís Kare,n f. 20.12.
1999, nemi, 3) Steinunn Solveig, f.
9.12. 2010, leikskólanemi.
Alsystkin Halldórs eru Anna
Björg Eyjólfsdóttir, f. 13.8. 1958,
hjúkrunarfræðingur á Seltjarnar-
nesi, og Auður Guðrún Eyjólfs-
dóttir, f. 20.3. 1962, tannlæknir í
Reykjavík. Hálfbróðir samfeðra er
Bjarni Eyjólfsson, f. 9.8. 1956,
bóndi á Hvoli í Aðaldal, áður skip-
stjóri.
Foreldrar Halldórs eru Eyjólfur
Halldórsson, f. 27.3. 1927, d. 29.1.
2000, stýrimaður, og Karen Lísa
Guðmundsdóttir, f. 7.4. 1934,
bankastarfsmaður og húsfreyja í
Reykjavík.
Úr frændgarði Halldórs G. Eyjólfssonar
Halldór Gunnar
Eyjólfsson
Anna Jónína Bjarnadóttir
húsfreyja í Dýrafirði
Guðmundur Eiríkur
Engilbertsson
bóndi í Dýrafirði
Jósabet Katrín Guðmundsdóttir
kennari og húsfreyja í Haga
Halldór Guðbrandsson
bóndi í Haga í
Holtahreppi, Rang.
Eyjólfur Halldórsson
stýrimaður í Reykjavík
Guðríður Þorláksdóttir
húsfreyja á Vindási
Guðbrandur Halldórsson
bóndi Vindási í Landsveit, Rang
Ingibjörg Jóna Sigurlínadóttir
húsfreyja í Lambadal
Arnfinnur Kristján
M. Jónsson
bóndi í Lambadal í Dýrafirði
Auður Guðrún Arnfinnsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Guðmundur Gunnar
Sigurðsson
sjómaður á Ísafirði
Karen Lísa Guðmundsdóttir
bankastarfsmaður og húsfreyja
í Reykjavík
Þorbjörg Elín Pálsdóttir
húsfreyja í Skötufirði
Sigurður Gunnarsson
bóndi í Skötufirði
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Baðaðu þig í gæðunum
Opið virka daga frá kl. 8-18
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Sigurður Hersteinn ÁrnasonHafstað fæddist 27. júlí 1916 íVík, Staðarhreppi, Skaga-
fjarðarsýslu. Foreldrar hans voru
Árni Jónsson Hafstað, búfræðingur
og bóndi í Vík, f. 23.5. 1883, d. 22.6.
1969, og k.h. Ingibjörg Sigurðar-
dóttir húsfreyja, f. 16.7. 1893, d. 4.10.
1932.
Foreldrar Árna voru Jón Jónsson,
bóndi og hreppstjóri á Hafsteins-
stöðum í Staðarhreppi, og k.h.,
Steinunn Árnadóttir húsfreyja. For-
eldrar Ingibjargar voru Sigurður
Sigurðsson, bóndi á Geirmund-
arstöðum í Sæmundarhlíð, Skaga-
firði, og k.h. Ingibjörg Halldórs-
dóttir húsfreyja. Sigurður var
næstelstur tíu systkina sem upp
komust og var Valgerður Hafstað
myndlistarmaður þeirra yngst.
Sigurður lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1937,
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Ís-
lands 1942 og lögfræðiprófi frá HÍ
1944.
Sigurður hóf störf í utanríkisráðu-
neytinu 1944 og starfaði á vegum ut-
anríkisráðuneytisins hér heima og
erlendis, einkum í Ósló, Stokkhólmi,
Moskvu og París, í rúma fjóra ára-
tugi og hlaut fjölda viðurkenninga
fyrir störf sín. Sigurður var m.a.
deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu
1954 til 1960 og gegndi störfum for-
setaritara. Hann var sendiherra Ís-
lands í Ósló er hann lét af störfum
árið 1986.
Vorið 1940 kvæntist Sigurður
Ragnheiði Ragnarsdóttur Hafstað,
f. Kvaran 23.7. 1919, d. 9.8. 2008,
húsfreyju. Foreldrar hennar voru
Ragnar Einarsson Kvaran, prestur
Sambandssafnaðarins í Winnipeg,
síðar landkynnir hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins, og k.h., Þórunn Hannes-
dóttir Kvaran, f. Hafstein, húsfreyja
og fulltrúi á Hafnarskrifstofu
Reykjavíkur.
Börn þeirra eru Þórunn Kielland,
Ingibjörg Hafstað, Hildur Hafstað,
Ragnar Hafstað og tvíburarnir
Sigríður og Árni Hafstað.
Sigurður lést 21. febrúar 2003.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Hafstað
90 ára
Einar Guðmundsson
Höskuldur Þórðarson
Kristín Guðvarðardóttir
85 ára
Steinfríður Ólafsdóttir
Þorsteinn K. Guðmunds-
son
80 ára
Hlíf Samúelsdóttir
Jón E. Böðvarsson
Sigrún Guðmundsdóttir
Þuríður Dóra Hjaltadóttir
75 ára
Guðmundur Sigurþór B.
Hervinsson
Jón Dagbjartsson
Sigríður Guðnadóttir
70 ára
Björgvin Jensson
Danielle Bisch
Guðrún Bjarnadóttir
Jón Ármann Einarsson
Leifur Guðmundsson
Páll Heimir Hannesson
Sigríður Gunnarsdóttir
60 ára
Anna Peggy A.
Friðriksdóttir
Björgvin R. Kjartansson
Daníel Hafsteinsson
Danuta Pecek
Elínborg G. Vilhjálmsdóttir
Jaroslaw Kozlowski
Jónas Guðmundsson
Kristjana Ólöf Fannberg
Svanfríður Elín
Jakobsdóttir
50 ára
Guðrún Harðardóttir
Guðrún Smáradóttir
Gunnar Örn Hauksson
Gylfi Þór Guðmundsson
Halldór Gunnar Eyjólfsson
Hörður Valsson
Jónas Guðmundsson
Kári Steinar Karlsson
Kristinn Þór Geirsson
Snæbjörn Haukur
Kristjánsson
Unnur Lea Pálsdóttir
Þröstur Árni Gunnarsson
40 ára
Angeline Theresa Thomas
Eyþór Einarsson
Friðrik Magnús Friðleifsson
Guðlaugur Víðir Guð-
laugsson
Gunnar Berg Viktorsson
Íris Ósk Lárusdóttir
Joanna Igiel
Jórunn Lilja Jónasdóttir
Kristín Halla Magnúsdóttir
Malin Eriksson
Stefán Þór Helgason
Sturlaugur Friðrik
Sveinsson
30 ára
Elísa Fönn Grétarsdóttir
Erla Snædís
Sveinbjörnsdóttir
Guðmundur Stefán
Guðmundsson
Gunnar Magnús
Halldórsson Diego
Helga Björk Helgadóttir
Valberg
Jhonatan Cano Escobar
Jónína Íris Ásgrímsdóttir
Katarzyna Anna Oleszczuk
Kristjana Sif Haraldsdóttir
Kristrún Ólöf Sigurð-
ardóttir
Marko Cupic
Mateusz Tomasz Koziol
Til hamingju með daginn
40 ára Stefán er Reykvík-
ingur og nemi í viðskipta-
fræði við Háskólann í
Reykjavík.
Maki: Karen Rakel Ósk-
arsdóttir, f. 1979, félagsliði
í Tækniskólanum.
Börn: Rebekka Rut, f.
1997, Mikael Gunnar, f.
2002, Matthías Nökkvi, f.
2004, og Eiður Arnar, f.
2013.
Foreldrar: Helgi Helgason,
f. 1956, og Hólmfríður
Eggertsdóttir, f. 1958.
Stefán
Þór Helgason
30 ára Gunnar er Reyk-
víkingur, tók ferðamála-
fræði við Ferðamálaskóla
MK og vinnur í hópadeild
Icelandair Hotels.
Maki: Ragnhildur Stein-
grímsdóttir, f. 1991, ný-
bökuð móðir.
Börn: Gunnar Lárent, f.
2012, og óskírður, f. 2016.
Foreldrar: Halldór Diego
Guðbergsson, f. 1954, og
Dagný Gunnarsdóttir, f.
1962. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Gunnar
Magnús Diego
30 ára Jónína er Akur-
eyringur og er þjónustu-
ráðgjafi hjá ríkis-
skattstjóra á Akureyri.
Maki: Baldvin Ólafsson, f.
1985, tryggingaráðgjafi
og sölumaður hjá Sjóvá.
Börn: Andri Bjartur, f.
2011, og Jóhanna Björt, f.
2014.
Foreldrar: Ásgrímur Sig-
urðsson, f. 1953, d. 2002,
sjóm., og Snjólaug Kristín
Helgadóttir, f. 1958, vinn-
ur hjá Íþróttaf. Þór.
Jónína Íris
Ásgrímsdóttir