Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Fjölskyldan Helgi og Valgerður eru skúlptúrlistamenn í grunninn, lærðu í skúlptúrdeild í Listaháskóla Íslands, en fást við ýmis listform, þrívíða hluti, ljósmyndir og vatnslitamyndir. Hér eru þau ásamt einkasyninum Eyjólfi Orra. Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is L istahjónin Helgi Hjaltalín Eyjólfs- son og Valgerður Guðlaugsdóttir hafa starfrækt opna vinnustofu í Skólanum, gamla skólahúsinu í Höfnum, allan júlímánuð. Þau hafa boðið gestum og gangandi að fylgjast með þeim að störfum, boðið verkin sín til kaups og kaffibolla er hægt að fá gegn vægu verði. Opna vinnustofan hefur laðað að fjölda gesta og ver- ið örvandi fyrir einkasoninn Eyjólf Orra sem er farinn að gera sínar eigin dúkristur með að- stoð mömmu sinnar og búa til kort og selja. Viðburðurinn í Skólanum er liður í að koma aukinni starfsemi í húsið og sér óform- legt félag skipað nokkrum heimamönnum, Menningarfélagið í Höfnum, um menningar- starfsemina í húsinu. Önnur umsjón er í hönd- um sóknarnefndar Kirkjuvogskirkju. Að und- anförnu hafa staðið yfir endurbætur á húsinu og er það orðið hin mesta prýði fyrir sam- félagið í Höfnum. Tónleikar komu menningarfélagi af stað „Þetta hófst allt með tónleikum Elízu [Geirsdóttur Newman] í kirkjunni hér í Höfn- um á Ljósanótt árið 2014. Hún var þá nýflutt í bæinn. Við höfðum alltaf verið að hugleiða þetta öðru hvoru og svo hefur Árni Hinrik Hjartarson, sem er sóknarnefndarformaður, verið að finna þessu húsi hlutverk. Við sem vorum að ræða þetta og höfðum áhuga á að koma að verkefninu fórum að kalla okkur Menningarfélagið í Höfnum þar sem allt ut- anumhald og styrkumsóknir kröfðust þess að við hefðum eitthvert nafn. Félagið er samt sem áður ekki með formlega starfsemi, en við hitt- umst og ræðum málin,“ segir Helgi. Valgerður bætir við að hugmyndir hafi verið uppi um að reka þar kaffihús en kröfurnar sem því fylgdi hafi verið skipuleggjendum ofviða og því hafi hún stungið upp á því að þau hefðu tilfallandi viðburði annað slagið, menningartengda við- burði sem gætu t.d. staðið yfir eina helgi eða svo. Opna vinnustofan hefur aftur á móti staðið yfir allan júlímánuð og alla daga hafa gestir sem eru á ferðalagi um Reykjanesið rekið inn nefið. Stutt er í útivistarperlur Reykjanessins frá Höfnum. Á Ljósanótt í fyrra var sett saman viða- meiri dagskrá en árið áður og tónleikar Elízu og eiginmanns hennar, Gísla Kjaran Krist- jánssonar, voru á sínum stað í Kirkjuvogs- kirkju og nú í félagi við Bjartmar Guð- laugsson. „Sigurjón Vilhjálmsson frá Merkinesi og Ketill Jósefsson, sem báðir ólust hér upp, sögðu sögur úr byggðarlaginu hér í Skólanum og það var alveg fullt á þann við- burð, eins og tónleikana í kirkjunni. Fólk stóð hér undir gluggunum og var að hlusta. Þá var listsýning í húsakynnum Bioprocess. Nú erum við farin að velta því á milli okkar hvað við eig- um að gera við húsið og einnig að ræða hvað við eigum að bjóða upp á næstu Ljósanótt. Það er voða gaman að fá fólk sem hefur búið hérna eða á einhverjar rætur hérna til að koma. Það er mikilvægt í þessu og við sáum það á síðustu Ljósanótt að hingað kom mikið af eldra fólki sem hafði búið hér og verið í skólanum og fannst gaman að geta komið inn og séð húsið í dag,“ segja Helgi og Valgerður. Skólinn orðinn hin mesta prýði Félagið hefur fengið styrk frá Uppbygg- ingarsjóði Suðurnesja, sem gekk út á að koma starfsemi í húsið. Í framhaldi voru tvö skilti smíðuð með einkennismerki Skólans, fánar með gamla bæjarmerki Hafna pantaðir og flaggað utan við húsið og orðið um starfsemina látið berast. Engu hefur verið eytt í auglýs- ingar enda hefur allur styrkur og allur ágóði af viðburðum í húsinu farið í endurgerð hússins bæði að utan og innan svo prýði er að. „Við þurfum að prófa okkur áfram með þetta, athuga hvort það sé raunhæfur mögu- leiki að fólki líti inn til að sjá hvað verið er að gera í húsinu. Það hefur bara gengið allt í lagi, alltaf einhver gestagangur á hverjum degi, en það er aldrei biðröð,“ segir Helgi kíminn. Valgerður segir þá viðburði sem Menn- ingarfélagið hefur staðið fyrir hafa gengið út á að safna fé til þess að laga húsið, auk þess sem sótt hefur verið um styrk í Jöfnunarsjóð sveit- arfélaga. „Húsið var orðið í mjög slæmu ástandi. Við höfum látið laga gluggana og ýms- ar endurbætur hafa átt sér stað hér innandyra. Þá erum við að fara að mála húsið að utan.“ Félagar í Menningarfélaginu notuðu nýliðna helgi til þessa verks, en auk Helga, Valgerðar, Árna Hinriks, Elízu og Gísla Kjaran eru í því Kolbrún Björk Sveinsdóttir og Lilja Dögg Bjarnadóttir, allt íbúar í Höfnum. Öll vinnan hefur verið unnin í sjálfboðavinnu þó verktaki hafi verið fenginn í endurbætur á þaki. Alltaf gestir en aldrei biðröð Gamla skólahúsið í Höfnum hefur á undanförnum tveimur árum fengið nýtt hlutverk sem menningarhús, Skólinn. Þetta hófst allt á litlum tónleikum á Ljósanótt fyrir tveimur árum og í framhaldi komu fleiri íbúar að og stofnuðu menningarfélag. Fjölskyldusmiðja Í Skólanum eru til sölu vatnslitaverk eftir bæði Helga og Valgerði, grafíkverk eftir Valgerði og Eyjólf Orra, verk úr pappamassa og postulínsleir eftir Valgerði og einnig heklað handverk eftir móður Helga, Ingi- björgu Helgadóttur. Þetta er því sannkölluð fjölskyldusmiðja. Ferðamenn Þýskir ferðamenn kíktu í kaffisopa í Skólanum. Á veggnum á bakvið er hluti af sprelli- konunum úr Eldhúsmellum sem gerðar voru fyrir sýningu á Ljósanótt í fyrra. Ungur listamaður Eyjólfur Orri með grafíkverkin sín sem urðu að kortum og eru til sölu í Skólanum. Hann teiknaði mynd af sjálfum sér að úða úr garðslöngu í glampandi sól. Valgerður aðstoðaði hann við dúkristuna. Vinsæll Lundinn er alltaf vinsæll hjá erlend- um ferðamönnum. Hér prýðir fuglinn kort eftir Helga Hjaltalín Eyjólfsson. Skólahúsið var teiknað af Guð- jóni Samúelssyni og byggt árið 1928. Kennslu var hætt í húsinu fyrir 50 árum þar sem ekki þótti lengur hagkvæmt að halda skól- ann í Höfnum, auk þess sem vegasamgöngur höfðu batnað. Skólabörnum var þá ekið í skóla í Njarðvík, að því er fram kemur í sögu Hafna eftir Jón Þ. Þór sem gefin var út árið 2003. Hafnir sameinuðust Njarðvík og Kefla- vík árið 1994 og úr varð sveitar- félagið Reykjanesbær. Kennslu hætt fyrir hálfri öld GAMLA SKÓLAHÚSIÐ Í HÖFNUM Prýði Skólinn nýmálaður og viðgerður að utan sem innan er hin mesta prýði fyrir byggðalagið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.