Morgunblaðið - 27.07.2016, Blaðsíða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Nú á dögum getum við nálgast
næstum alla heimsins myndlist á
augnabliki í gegnum veraldarvef-
inn. Með eldsnöggri leit á Google
er hægt að rannsaka dularfullt
bros Monu Lisu, eða klóra sér í
höfðinu yfir ótrúlegu hugmynda-
flugi Hieronymus Bosch. En það
var örugglega ekki þannig sem
Leonardo Da Vinci og Hierony-
mus vildu að listaunnendur sæju
verkin þeirra.
Hvaða áhrif hefur dvínandi þörf
fólksins fyrir því að líta hið raun-
verulega listaverk berum augum á
upplifun okkar á myndlist, eða
sköpunargáfu myndlistarmann-
anna? Missum við af einhverju ef
áþreifanlegi hluti listarinnar
hverfur?
Að fara á listasýningu hefur
ávallt verið hluti af listaupplif-
uninni en stafræn tækni hefur
breytt listaupplifun að eilífu.
Heimildarmyndin #artoffline eftir
Manuel Correa skapar grundvöll
áhorfandans til þess að velta því
fyrir sér hvað sé gott.
Áhrif tækni
á myndlist skoðuð
Í #artoffline er rætt við heim-
spekinga, listamenn og sýn-
ingastjóra um samband verald-
arvefjarins og listarinnar. Myndin
verður sýnd í Mengi klukkan 21 í
kvöld. „Þessi mynd er svolítil
heilaleikfimi. Hún skoðar hvaða
áhrif tækni hefur á myndlist í dag,
hvernig við horfum á myndlist og
hugsum um hana og hvað sé frum-
eintak myndlistar og hvaða til-
gangi hún þjónar þegar við skoð-
um myndlist í gegnum netið eða í
gegnum símann okkar,“ segir
Hrafnhildur Helgadóttir myndlist-
arkona, sem skipuleggur sýn-
inguna í kvöld. „Ef þú ert málari
þá viltu að manneskjan horfi á
frumeintak málverksins þíns, ef
fólk lítur aldrei raunverulegu
myndina berum augum þá líður
málurum oft eins og eitthvað hafi
tapast.“
Hrafnhildur segir að myndin
fjalli um mismunandi fólk sem
skoðar hvaða áhrif tæknivæðingin
hefur haft á list.
Vildi kynna hugsunina
Hrafnhildur sá myndina á fyr-
irlestraröð í Amsterdam þar sem
hún á heima og henni fannst hún
opna fyrir hugmyndir og samræð-
ur sem hana langaði til þess að
kynna fyrir Íslendingum. „Mig
langaði til þess að fólk myndi taka
þátt í þessu, líka vegna þess að
annars staðar í heiminum er mikið
hugsað um netið í sambandi við
myndlist en hérlendis er umræðan
ekki alveg komin svo langt.“
Hrafnhildur segir að rafræn list
hafi verið til staðar í svolítinn
tíma erlendis og að hún hafi viljað
koma með hugmyndirnar sem
myndin vekur til landsins.
Fyrsta stóra myndin
Manuel Correa er listamaður
frá borginni Medellín í Kólumbíu.
Hann fór í kvikmyndagerðarnám í
Emily Carr-háskólanum í Vancou-
ver. Correa er einn af stofnendum
kvikmyndaframleiðslu- og list-
hópsins Atalier Bolombolo.
Önnur verk eftir hann hafa ver-
ið sýnd í Kólumbíu, Kanada og
Austurríki. „Ég held að þetta sé
fyrsta stóra myndin sem hann
gerir,“ sagði Hrafnhildur en hún
hafði uppi á Correa í von um að fá
leyfi til að sýna myndina á Ís-
landi.
#artoffline hefur verið sýnd á
kvikmyndahátíðum í Noregi,
Þýskalandi og Hollandi auk þess
sem hún var sýnd á listasöfnum í
Noregi og Mexíkó.
Hvaða áhrif hefur tækni á list?
Heimildarmyndin #artoffline eftir Manuel Correa verður sýnd í Mengi klukkan 21 í kvöld
Skoðar áhrif tækni á myndlist og frumeintak listaverks Vildi kynna umræðuna fyrir Íslendingum
Ljósmynd/Mengi
Á sýningu Það hefur alltaf verið stór hluti af listaupplifuninni að fara á listasýningar og sjá listaverkin með eigin augum. Tæknivæðingin hefur auðveldað
aðgengi að öllum listaverkum en þó mögulega á kostnað listaupplifunarinnar sjálfrar. Eiga veraldleg málverk sér stað í framtíð myndlistar?
Samsýningin Nálgun opnar í Graf-
íksalnum, Tryggvagötu 17, á morg-
un klukkan 17. Þar sýna þær Að-
alheiður Valgeirsdóttir, Anna Jóa,
Hulda Hrönn Ágústsdóttir og Ragn-
heiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir
verk sín.
Í tilkynningu segir að sýningin
hverfist um efnisleika og ásýnd
hluta er tengjast mismunandi rým-
um og stöðum. Verk listamannanna
spanna ólíkar aðferðir og miðla en
til sýnis verða meðal annars teikn-
ingar, olíumálverk, ljósmyndir og
skúlptúrar. Heiti sýningarinnar,
Nálgun, vísar til þess hvernig ein-
staklingurinn nálgast listsköpun
sína og fyrirhugaða sýningu, en
einnig til samtalsins við aðra sýn-
endur og sýningarrýmið – og til þess
gjörnings sem samsýning felur í sér.
Sýningin verður opin fimmtudaga
til sunnudaga klukkan 14 til 18 frá
morgundeginum til 14. ágúst næst-
komandi. Aðgangur er ókeypis, boð-
ið verður upp á léttar veigar og þess
skal getið að gengið er inn hafn-
armegin.
Nálgun Til sýnis verða m.a. teikningar, olíumálverk, ljósmyndir og skúlptúrar.
Efnisleiki og ásýnd
hluta í Grafíksalnum