Morgunblaðið - 27.07.2016, Page 28
ÞJÓÐVEGURINN
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Línuvegurinn, sem liggur ofan
byggða í uppsveitum Árnessýslu,
er áhugaverð sumarfær hálendis-
braut. Leiðin liggur frá Brunnum á
Uxahryggjaleið til austurs að Sult-
artanga við Þjórsá. Þessu fylgir að
taka krók fyrir keldu, því þegar
komið er að Kjalvegi og Hvítá úr
vestri verður að aka fram að Brúar-
hlöðum og yfir brú þar. Þaðan svo
að Tungufelli í Hrunamannahreppi,
en þar nokkru ofar er komið aftur
inn á fyrrnefndan Línuveg. Alls er
þetta 75 kílómetra löng leið. Vest-
ari hlutinn er 45 kílómetrar en sá
eystri um 30 kílómetrar.
Á tunglinu
Uxahryggjaleið er frá Þingvöll-
um upp í Borgarfjörð. Á svipuðum
slóðum og ekið er niður í Lundar-
reykjadal er þar sem heita Brunnar
beygt til austurs inn á Línuveginn,
sem var lagður um 1980. Þar kom
til að rafmagn þurfti í járnblendi-
verksmiðju að Grundartanga. Því
var Hrauneyjafossvirkjun reist og
þaðan lögð háspennulína niður í
Hvalfjörð. Áður en línugerðin hófst
þurfti svo að leggja veginn góða,
sem hér er frásagnarefni.
Þegar komið er inn á Línuveginn
við Brunna er Skjaldbreið áber-
andi. Hér er brautin, sem fær er
smájeppum og þaðan af stærri bíl-
um, hlykkjótt og farið upp og niður
milli ása í sandi orpnu hrauni. Með
ímyndunarafli má láta sér detta í
hug að náttúran hér sé eins og á
tunglinu. Litla- og Stóra-Björns-
fell, sunnan undir Þórisjökli, eru í
norðri á vinstri hönd og svo blasir
Langjökull við. Fyrir austan
Skjaldbreið gnæfir Hlöðufell, mó-
bergsstapi sviplíkur Herðubreið,
drottningu íslenskra fjalla.
Myndrænar með afbrigðum
Þegar háspennulínan og vegur
þessi voru lögð fyrir um fjörutíu ár-
um voru viðmið í umhverfismálum
og náttúruvernd talsvert önnur en
nú. Framkvæmd eins og þessi
myndi í dag kalla á talsvert strögl,
ef ekki deilur. Raunar var bætt við
annarri háspennulínu á þessari leið
um aldamótin, en aukin umsvif í iðj-
urekstri við Hvalfjörð kölluðu þá á
meiri orku. Línur á háum möstrum
hér eru því nokkuð þéttur flóki,
sem hefur sterk sjónræn áhrif. Það
truflar sjálfsagt auga einhverra að
að sjá mannvirki þessi með hinar
svipsterku Jarlhettur að baki, sem
blasa raunar við á allri þessari leið.
Jarlhettum lýsir Gísli heitinn
Sigurðsson, sem í áratugi var um-
sjónarmaður Lesbókar Morgun-
blaðsins, í Árbók Ferðafélags Ís-
lands 1996. Segir þar að
„...tilsýndar verða þessir sjö tindar
ekki greindir frá þeim þrettán sem
standa í aftari röðinni, enda
skammt á milli þeirra. Jarlhettur
eru með sérstæðustu fjöllum á Ís-
landi og jafnframt myndrænar með
afbrigðum.“
Austan Hlöðufells er farið um
Lambahraun og síðan niður Mosa-
skarð, þar sem Haukadalsheiðin
blasir við. Fyrir nokkrum áratug-
um var hún sandauðn en hefur nú
verið grædd upp. Í því efni voru
miklir hagsmunir í húfi, því þegar
verst stóð á blés sandur af heiðinni
fram allar sveitir svo til mikilla
óþæginda var. Nú er það liðin tíð að
mestu.
„Fagurt er á fjöllum“
Þegar komið er austur fyrir
Hvítá í þessum leiðangri um Línu-
veginn komum við fyrst að bænum
Tungufelli. Þar vekur eftirtekt lítil
timburkirkja, sem byggð var árið
1856 og er í umsjón Þjóðminja-
safnsins. Tungufell hefur líka þá
landfræðilegu sérstöðu að vera
lengst allra bæja á Suðurlandi frá
sjó, 58 kílómetra frá Hvalfjarðar-
botni. Rétt fyrir ofan kjarri vaxinn
Tungufellsdal sést vatnsúði frá
Gullfossi stíga til himins, en frá
veginum og að fossinum „á
Sunnlenska hálendisleiðin
Áhugaverður vegur í óbyggðunum ofan byggðar í Árnessýslu 75 kílómetrar milli Uxahryggjaleiðar
og Hafsins við Þjórsá Sjö tindar tilsýndar Sterk sjónræn áhrif Gullfoss sést frá hinni hliðinni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jarlhettur sjást víða af Línuvegi. Háspennlínurnar hafa þó sterk og truflandi áhrif í mörgu í þessu umhverfi.
Laugarvatn
Geysir
Flúðir
Þjórsárdalur
Línuvegurinn
1
2
3
4
5
6 10
11
9
8
7
Tungufellskirkja í Hrunamannahreppi er snotur og þykir merk bygging.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
ALZAMA PROPERTIES LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
ELIZA LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
GLENALLA PROPERTIES LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
OSCATELLO INVESTMENTS LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
ROXINDA LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
THORSON INVESTMENTS LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
VIOLET CAPITAL GROUP LIMITED – IN LIQUIDATION (THE COMPANY)
NOTICE is hereby given that pursuant to Section 216(1) of the Insolvency Act, 2003, that creditors of the above named Companies
are required to submit their full names and addresses and full particulars of their claims by 18 August 2016 to the contact below or
be excluded from the benefit of any distribution.
Mark McDonald, Joint Liquidator
Contact for enquiries:
Name: Megan Farmer Telephone: +1 284 494 8520 Facsimile: +1 284 494 3529 Email: megan.farmer@uk.gt.com
Seint á 17. öldinni fóru prestar tveir, annar frá Húsafelli
í Borgarfirði og hinn úr Grímsnesinu, í dalina sunnan
við Þórisjökul til að kanna þar aðstæður. „Tilgangur
ferðar þeirra var gagngert að vinna á útilegumannatrú,
sem lengi var inngróin í þjóðarsálina.
Þessir vígðu menn urðu einskis varir
og tókst þar með að vinna bug á fá-
fræði sálnanna sem þeir sinntu.
Þarna heitir síðan Prestahnjúkur,“
segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, fjalla-
maður og rithöfundur, sem er vel
kunnugur á Línuveginum.
„Í raun getum við sagt að á þessari
fjallaleið sé hálendi Íslands í hnot-
skurn, en samt er þetta svæði mun
grónara en gerist á reginfjöllum.
Annars felst sérstaðan þarna í því
að sagan er við hvert fótmál og
kennileitum hafa jafnvel verið gefin
ný nöfn. Þýskir ferðamenn sem
hingað komu sögðu einhverju sinni
að Skjaldbreiður, þessi ávala og fal-
lega dyngja, væri eins og steingert
tröllkonubrjóst. Það er eftirtekt-
arverð lýsing.“
Kunnugum ber saman um að
Línuvegurinn sé mun greiðfærari að
vestan en austan Hvítár. Viðhald á
þeim legg er lítið sem ekkert og brautin er því grýtt og
gróf. En annars má einu gilda hvar fjallagarpar eru á
Línuveginum. Hvarvetna er margt áhugavert að sjá. „Á
austursvæðinu er ekki langt frá vegi að gljúfrum Stóru-
Laxár sem eru djúp og dimm. Þangað er gaman að
koma og eins að Háafossi, innst í Þjórsárdal. Svo verð-
ur að tiltaka að vöðin á ánum þarna eystra voru lag-
færð fyrir nokkrum árum og eru orðin greiðfærari en
var,“ segir Páll Ásgeir.
Hvíldi hugann með náttúrunni
Ólafur Íshólm Jónsson, sem í áratugi var varðstjóri í
lögreglunni á Selfossi, er vanur fjallamaður. „Ég fór í
áraraðir á haustin með bændum í Árnessýslu um þess-
ar slóðir til að smala fé af fjalli. Þannig fannst mér gott
að hvíla hugann með náttúrunni. Þá á ég með fleirum
fjallaskála norðan við Skjaldbreið svo ég þekki vel til á
Línuveginum sem er góð síðsumarsleið fyrir jeppa-
menn,“ segir Ólafur Íshólm.
Fjallkonubrjóst og útilegumenn við Þórisjökul
LÍNUVEGURINN SEM ER GÓÐ SÍÐSUMARSLEIÐ FYRIR JEPPAMENN
Páll Ásgeir
Ásgeirsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landamæralínan Komið af öræfum í Tungufellsdal
Ólafur Íshólm
Jónsson
30