Morgunblaðið - 27.07.2016, Side 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Sæng og koddi kr. 12.936
Rúmföt kr. 6.742
Ullarteppi
kr. 8.245
25% afsláttur af
fermingargjöfum
VIÐTAL
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Kvartett bassaleikarans Sigmars
Þórs Matthíassonar kemur fram á
tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í
Hörpunni klukkan 21 í kvöld. Þetta
eru síðustu tónleikar í sumardag-
skrá klúbbsins, sem er á sínu 19.
starfsári.
Klúbburinn heitir í höfuðið á
Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt
var heiðursfélagi og verndari Múl-
ans. Múlinn er samstarfsverkefni
Félags íslenskra hljómlistarmanna
og Jazzvakningar. Klúbburinn er
styrktur af Reykjavíkurborg, Tón-
listarsjóðnum og SUT-sjóðnum, og
er í samstarfi við Heimstónlistar-
klúbbinn og Hörpu.
Sigmar, sem er 29 ára gamall, er
nýfluttur heim frá New York en
hann lauk tónlistarnámi við The
New School for Jazz and Contemp-
orary Music í vor.
„Það var frábær reynsla, ég var
þarna í þriggja ára löngu námi. Það
er frábært að læra í New York,
sem er suðupottur alls konar tón-
listar,“ segir Sigmar.
Blandar saman
ævintýraþrá og heimþrá
Ásamt Sigmari eru meðlimir
kvartettsins þeir Andrés Þór Gunn-
laugsson gítarleikari, píanóleik-
arinn Kjartan Valdemarsson og
Einar Scheving sem leikur á
trommur.
„Þetta verða að mestu leyti lög
eftir mig, frumsamið efni í bland
við íslensk þjóðlög og svo nokkra
svokallaða djass-standarda úr am-
erísku söngbókinni,“ segir Sigmar.
Mörg frumsömdu laganna voru
samin áður en Sigmar fór út í nám
en hann mun einnig spila nokkur
lög sem hann samdi í New York.
„Þau litast svolítið af veru minni í
New York en hafa auk þess keim
af íslenska manninum, blanda af
heimþrá og ævintýraþrá.“
Spilar með þekktum
djassleikurum
Sigmar þekkir vel til Andrésar,
Kjartans og Einars og hefur leikið
með þeim öllum áður, en þeir hafa
aldrei áður leikið saman í kvartett.
„Ég þekki þá alla mjög vel, þeir
eru gríðarlega reynslumiklir djass-
leikarar hér á landi og ættu allir
sem hafa sótt djasstónleika hér-
lendis að þekkja þá.“
Það er fremur sjaldgæft að píanó
og gítar spili saman í djasshljóm-
sveit. Yfirleitt er annað hvort hljóð-
færanna notað í hljóðfæraskipan
með blásturshljóðfæri eins og saxó-
fón eða trompeti sem er laglínu-
hljóðfærið. „Í þessari hljóðfæra-
skipan verður gítarinn að laglínu-
hljóðfærinu sem býr til mjög
skemmtilegt hljóð, hljóð sem heyr-
ist ekki endilega alltaf,“ segir Sig-
mar. „Það má eiginlega segja að
gítarinn, eða hlutverk hans, breyt-
ist í blásturshljóðfæri.“ Þá segir
Sigmar að píanóið og gítarinn muni
einnig koma til með að spila laglín-
una saman í sumum lögum.
Sigmar þekkir þessa hljóðfæra-
skipan vel þar sem hann var í
hljómsveit úti með sömu skipan. „Í
lok júní spiluðum við á Nordic Jazz
Festival í Washington sem nor-
rænu sendiráðin standa fyrir og
þar vorum við með svipaða dagskrá
og verður á tónleikunum í Hörpu.
Við spiluðum fyrir Íslands hönd en
hinir meðlimir hljómsveitarinnar
komu frá öllum heimshornum.
Þarna var ég frá Íslandi, einn frá
Kósóvó, einn frá Túnis og annar frá
Venesúela.“ Þessum alþjóðlega
kvartett tókst vel að fanga íslenska
andann í tónlistinni að mati Sig-
mars.
Múlinn hefur staðið fyrir reglu-
legum tónleikum frá byrjun sumars
og verða tónleikarnir í kvöld þeir
síðustu í tónleikaröð sumarsins.
„Ég hef spilað nokkrum sinnum áð-
ur í klúbbnum en þeir Kjartan,
Andrés og Einar eru alltaf að spila
þarna,“ segir Sigmar. Múlinn
stendur ekki aðeins fyrir sumartón-
leikum heldur snýr klúbburinn aft-
ur með nýja dagskrá í október.
Dagskrá vetrarins verður í Björtu-
loftum, á 5. hæð í Hörpu, eins og
sumardagskráin.
Litast af
verunni í
New York
Morgunblaðið/Marino Thorlacius
Á bassanum Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari leikur í kvartett á Múlanum
í Hörpu í kvöld. Sigmar er nýútskrifaður úr The New School í New York.
Sigmar Þór Matthíasson leikur
frumsamin lög í bland við þjóðlög
á tónleikum Múlans í Hörpu
Bryggjan Brugghús efnir til veg-
legra hljómleika í kvöld klukkan 21
en þá munu Júníus Meyvant, Bjart-
ey og Gígja úr Ylju, Snorri Helga-
son, Teitur Magnússon og Elín Ey
stíga á svið. Með viðburðinum er
verið að hita upp fyrir verslunar-
mannahelgina og er hann skipu-
lagður í samstarfi við Innipúkann
sem fram fer í fimmtánda skiptið í
Kvosinni á skemmtistöðunum
Húrra og Gauknum um helgina.
Júníus Meyvant gaf út sína fyrstu
plötu í sumar og Bjartey og Gígja
eru með tvær plötur á bakinu og
þrjár tilnefningar til Íslensku tón-
listarverðlaunanna eins og segir í
tilkynningu. Snorri Helgason var
að gefa út sína fjórðu plötu, Vittu
til, á dögunum og Teitur Magn-
ússon gaf út verkið 27 síðla árs
2014 sem var tilnefnt til Norrænu
tónlistarverðlaunanna. Þá segir
ennfremur í tilkynningu að Elín Ey
sé að vinna að nýrri plötu um þess-
ar mundir. Bryggjan Brugghús er
til húsa að Grandagarði 8 í Reykja-
vík.
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæll Platan 27, sem Teitur Magnússon skapaði, nýtur mikilla vinsælda.
Hitað upp á Granda
Teitur Magnússon og Júníus Meyvant
meðal þeirra sem stíga á svið í kvöld
Söngkonan, píanóleikarinn og tón-
skáldið Kristín Anna flytur eigin
lög og texta í Mengi annað kvöld.
Kristín Anna sendi nýverið frá sér
raddskúlptúrvínylplötuna Howl
sem Bel-Air Glamour Records gaf
út. Þá er einnig væntanleg plata hjá
sömu útgáfu með tónlist Kristínar
fyrir píanó og rödd eins og segir í
tilkynningu.
Kristín Anna, sem lengi starfaði
undir listamannaheitinu Kría
Brekkan, var liðsmaður hljómsveit-
arinnar múm til margra ára og hef-
ur að auki starfað með stórum hópi
tónlistar- og listamanna á borð við
Animal Collective, Mice Parade,
The National, Skúla Sverrissyni,
Ragnari Kjartanssyni og Hrafnhildi
Arnardóttur. Mengi verður opnað
klukkan 20 annað kvöld og hefjast
leikar klukkan 21.
Listakona Kristín Anna var liðsmaður
hljómsveitarinnar múm til margra ára.
Kristín Anna flytur
eigið efni í Mengi
Hitað verður
upp fyrir tónlist-
arhátíðina
Norðanpaunk,
sem fer fram á
Laugarbakka í
Húnaþingi
vestra um
helgina, á
Gauknum við
Tryggvagötu 22
annað kvöld. Þar
munu sænska hljómsveitin Martyr-
död, svissneska sveitin Cold Cell,
hin danska Extended Suicide og
Norn meðal annars stíga á svið.
Dagskráin kemur til með að hefj-
ast klukkan 20 og mun hún standa
til miðnættis.
Rokk Gaukurinn
hýsir dagskrána.
Harðkjarna tón-
leikar á Gauknum