Morgunblaðið - 27.07.2016, Page 73

Morgunblaðið - 27.07.2016, Page 73
MENNING 73 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 Lagið „One Dance“ sem kom út á síðustu plötu Drakes, Views, er ekki lengur í efsta sætinu á Billboard Hot 100-listanum eft- ir 10 vikur á toppnum. Það var engin önnur en hin ástralska Sia sem fór upp fyrir Drizzy í gær með laginu „Cheap Thrills“ en hún syngur það í samstarfi við Sean Paul. Þetta er í fyrsta skipti sem Sia nær toppsæt- inu en meira en áratugur er síðan Sean Paul átti sætið. Sia og Sean Paul skáka Drake Sia Er á toppnum. Kvikmynda- og tónlistarunnendur geta nú svalað forvitni sinni en stikla fyrir myndina T2: Train- spotting 2, sem áætlað er að komi út í febrúar á næsta ári, er komin á netið. Myndinni er ætlað að fylgja eftir meistaraverkinu Trainspott- ing, sem kom út árið 1996 í leik- stjórn hins breska Danny Boyle, en sá hefur gert það gott síðan og meðal annars leikstýrt myndum á borð við 28 Days Later, Steve Jobs, 127 Hours og Slumdog Milli- onaire. Allir helstu leikarar gömlu myndarinnar fara með aðalhlutverk í þeirri nýju og má þar nefna Ewan McGregor sem Rent Boy, Renton Ewen Bremner sem Spud, Robert Carlyle sem Begbie og Jonny Lee Miller sem Sick Boy. Einn helsti kostur myndarinnar frá árinu 1996 er hversu frábærlega tónlistin er nýtt. Lög á borð við „Temptation“ með New Order, „Perfect Day“ með Lou Reed og „Born Slippy .NUXX“ með Underworld fengu þar að njóta sín. Lagið í stiklunni fyrir nýju myndina er einmitt tekið úr þeirri gömlu en það er „Lust for Life“ með eilífðarrokkaranum Iggy Pop. Stikluna má nálgast á Twitter- aðgangi myndarinnar, twitter.com/ T2Trainspotting. Költ Breska kvikmyndin Trainspotting var með betri myndum ársins 1996. Rent Boy, Spud og Sick Boy í nýrri stiklu  T2: Trainspotting 2 endurnýtir Iggy Pop Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Tónleikarnir eru á Loft Hosteli í Bankastræti 7. Þar verður stuð og stemming. Platan okkar kom náttúrlega út fyrir svolitlu síðan en tónleikarnir eru meira hugsaðir sem upphitun fyrir versl- unarmannahelgina,“ segir söngkona Boogie Trouble, Klara Arnalds, um viðburð sveitarinnar í kvöld og plötuna Í bænum sem kom út fyrr á þessu ári. Dagskráin framundan er þétt fyrir hljómsveitina en auk upphitunartónleikanna mun sveitin stíga á svið með Helga Björns á Innipúk- anum um helgina. Í samstarf við Helga Björns „Við munum eingöngu flytja okkar eigið efni á Loft en um helgina munum við flytja lögin hans Helga auk einhverra af okkar lögum. Við eigum enn eftir að hitta Helga, hann er á Ítalíu eins og er að njóta lífsins, en við erum byrjuð að þreifa á efninu og hlökkum til að tvinna þetta saman. Það er hefð fyrir því hjá skipuleggjendum Innipúk- ans að leiða saman gömul „letjend“ og nýrri sveitir. Það þótti við hæfi að setja okkur saman við Helga. Það verður spennandi. Við munum koma okkur í gírinn fyrir það með dansiballinu á Loft,“ segir Klara en auk hennar skipa bassa- leikarinn Ingibjörg Turchi, trommuleikarinn Þorvaldur Ingveldarson, gítarleikarinn Sindri Freyr Steinsson, hljómborðsleikarinn Sunna Karen Einarsdóttir og trymbillinn Arnar Birg- isson sveitina. Þau hafa öll komið víða við í ís- lensku tónlistarlífi, meðal annars með hljóm- sveitunum Bárujárn, Babies, Ylju og Soffíu Björg. Eins og að stjórna uppvakningaher Klara segir sumarið hafa gengið einkar vel og að almennt hafi verið tekið vel í nýju plötu sveit- arinnar. „Platan hefur fengið góðar viðtökur og er að seljast eins vel og von er á árið 2016. Við fórum síðan í svolítið langt hlé þar sem ég var alveg svakalega ólétt. Þú spilar ekkert diskó þegar þú ert kasólétt. Diskóið er alveg óléttuvæn tónlist sem slík en tónleikarnir hjá okkur ganga svo mikið út á það að fá fólk til að dansa og vera með læti og stæla. Það er því ekki hægt að hlamma sér bara niður á barstól með bakflæði upp í kok og gaula. Maður verður að geta verið með. Við þurftum því aðeins að salta þetta á meðan ég var í barneignarleyfi en svo hefur bolt- inn bara byrjað að rúlla aftur af stað núna upp á síðkastið,“ segir hún og bætir við að skemmtileg- ast sé að spila fyrir fólk sem sé búið að smyrja í sér mál- og dansbeinið. „Það er eins og að stjórna uppvakningaher. Það er ógeðslega skemmtilegt,“ segir Klara kím- in að lokum. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 21 og er frítt inn. Þess má geta að Boogie Trouble kemur einnig fram á Ísafirði um helgina sem og Iceland Airwaves í haust. Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir Sveitin Klara Arnalds segir að sumarið hafi gengið mjög vel hjá Boogie Trouble og að mikil ánægja ríki með plötuna Í bænum sem kom út fyrr á þessu ári. Alltaf nóg að gera í diskóinu  Boogie Trouble efnir til hljómleika á Loft í kvöld til að hita upp fyrir helgina  Þá kemur sveitin til með að stíga á svið ásamt Helga Björns á Innipúkanum Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is JASON BOURNE 5, 8, 10:35 GHOSTBUSTERS 5, 8 THE INFILTRATOR 8, 10:35 ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50 CENTRAL INTELLIGENCE 10:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.