Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Morgunblaðið/Heiddi Lyftingabekkur Það þarf að lyfta þungum lóðum til að fá vöðva. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Í nýrri breskri rannsókn kemur fram að eftir efnahagshrunið árið 2008 hafi sífellt fleiri ungir karlmenn mætt í líkamsræktarstöðvar og keppst við að birta fullkomnar myndir af vel þjálfuðum líkama sín- um á samfélagsmiðlum. Samhliða þessu hafi neysla á fæðubótarefnum sem eiga að auka vöðvamassa og minnka líkamsfitu snaraukist ásamt aukinni neyslu á fjölmiðlaefni tengdu líkamsmótun. Þetta kemur fram í rannsókn Ja- mie Hakim við háskólann í East Anglia (UEA) og birtist í gær m.a. í tímariti um kynjarannsóknir. Í rannsókninni kemur m.a. fram að þessi hópur karlmanna byggir sjálfstraust og sjálfsmynd sína á út- liti sínu, vöðvastæltum líkama. „Áhugaverðasti punkturinn er hvernig valdið innan samfélagsins er að breytast,“ segir Hakim. Vald karlmanna er ekki lengur tekið sem gefið heldur telja þeir að þeir þurfi að uppfylla ákveðna staðla, að vera stórir og sterkir til að verða metnir að verðleikum. Rannsökuð voru m.a. gögn frá Íþróttasambandi Englands sem sýndu að ungum karlmönnum, á aldrinum 16 til 25 ára, sem mættu í ræktina fjölgaði á hverju ári frá 2006 til 2013. Yfir sama tímabil jókst sal- an á fæðubótarefnum sem eiga að auka vöðvamassa og minnka líkams- fitu um 40% í Bretlandi í tíu stærstu lágverðsverslunum landsins. Á þessu tímabili jókst salan á fjöl- miðlaefni um heilsu, t.d. var tímarit- ið Heilsa karlmanna söluhæsta tíma- ritið árið 2009 í Bretlandi. Einnig varð sprenging á samfélagsmiðlum í notkun á svokölluðum myllumerkj- um sem tengdust fitness með einum eða örðum hætti. Hakim starfar við fjölmiðladeild háskólans East Anglia og í titli rann- sóknarinnar notar hann orðið „Spornosexual“ til að ná utan um þennan hóp karlmanna. Þetta enska orð er sett saman úr tveimur orðum, íþróttastjarna og klámstjarna, og kom fyrst fram í grein sem birtist í tímaritinu The Daily Telegraph árið 2014. Greinin fjallaði um aukinn fjölda ungra karlmanna sem mæta í ræktina eingöngu til þess að mæta frekar en að leggja áherslu á hreysti og heilbrigði. Ferðin í ræktina var að sjálfsögðu mynduð í bak og fyrir. Vöðvastæltari karlmenn eftir hrun  Bresk rannsókn bendir til að ungir karlmenn mæti í ræktina til að ná tilteknu útliti frekar en hreysti FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Við stefnum að kosningum 29. október, að því gefnu að þetta gangi allt saman upp,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra eftir upplýsingafund með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna í fyrra- dag. Þá liggur það fyrir að nýtt Al- þingi verður kosið þennan tiltekna dag, reyndar með vissum fyrirvör- um. Umboð núverandi alþingismanna rennur ekki út fyrr en næsta vor og því liggur fyrir að rjúfa þarf þing og boða til nýrra kosninga. Forseti gefur út þingrofsbréf Samkvæmt núgildandi lögum mega ekki líða meira en 45 dagar frá útgáfu þingrofsbréfs þar til kosningar fara fram. Því má leiða að því líkum að Guðni Th. Jóhannesson gefi út forsetabréf hinn 14. sept- ember um að þing verði rofið 29. október og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag. Þetta mun hann gera að tillögu Sig- urðar Inga Jóhannssonar forsætis- ráðherra sem fer með þingrofsrétt- inn. Það er með skírskotun til 13. greinar stjórnarskrá Íslands þar sem segir: Forsetinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Forsætisráð- herra les upp forsetabréfið á þing- fundi. Alþingi kemur saman á ný næst- komandi mánudag eftir sumarleyfi þingsins, kl. 3 miðdegis eins og seg- ir á heimasíðu Alþingis. Samkvæmt starfsáætlun mun þingið starfa dagana 15. ágúst til 2. september og alls eru áformaðir 13 þingfundir auk eldhúsdagsum- ræðna. Síðasti þingfundur fyrir sumarhlé var haldinn 8. júní. Fyrir liggur að yfirstandandi lög- gjafarþing, 145. þing, verði lengt. „Að öðrum kosti yrði að setja nýtt löggjafarþing 13. september, með öllu því umstangi sem því fylgir. Þá féllu jafnframt niður öll þingmál sem nú liggja fyrir þinginu og rík- isstjórninni væri skylt að leggja fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017 skv. stjórnarskránni. Ég held að allir vilji hafa þetta einfaldara,“ sagði Helgi Bernódusson skrifstofu- stjóri í samtali við Morgunblaðið. Þar sem þingmenn halda umboði sínu allt til kjördags gæti þingið þess vegna setið til 29. október. Auðvitað mun það ekki sitja svo lengi því gefa þarf stjórnmálaflokk- unum svigrúm til að heyja kosn- ingabaráttu. Síðast þegar þing var rofið, vorið 2009, starfaði Alþingi frá 13. mars, þegar þingofsboðskapurinn var les- inn, fram til 17. apríl, þ.e. í meira en mánuð fram yfir útgáfu þingrofs- boðskapar. Þingstörfum var því frestað aðeins rúmri viku fyrir kjör- dag 25. apríl 2009. Ef við gefum okkur að á þessu hausti fái flokkarnir hálfan mánuð til að heyja kosningabaráttuna, gæti þingið starfað frá 15. ágúst til 14. október, eða í heila tvo mánuði. Enda bíða mörg brýn mál af- greiðslu, eins og fram hefur komið hjá oddvitum stjórnarflokkanna, þeim Sigurði Inga Jóhannssyni og Bjarna Benediktssyni. Líklegra er þó talið að þingið muni ekki starfa svo lengi. Hinn 13. mars 2009 gaf Ólafur Ragnar Grímsson út forsetabréf um þingrof og almennar kosningar til Alþingis. Þar stóð m.a.: „Forseti Ís- lands gjörir kunnugt: Forsætisráð- herra hefur tjáð mér að vegna þess mikla efnahagsáfalls, sem þjóðin hefur orðið fyrir, hafi þeir flokkar sem nú standa að ríkisstjórninni orðið ásáttir um við myndun hennar að efna sem fyrst til almennra al- þingiskosninga.“ Fróðlegt verður að sjá hvaða rök núverandi forsætisráðherra færir fyrir ákvörðun um þingrof nú. Nýtt þing gæti komið saman upp úr miðjum október Alþingi skal koma saman eigi síð- ar en 10 vikum eftir alþingiskosn- ingar. Allt frá árinu 1991 hefur regl- an verið sú að nýtt þing hefur verið kallað saman u.þ.b. þremur vikum eftir kosningar. Samkvæmt upplýs- ingum blaðsins er líklegt að þessi háttur verði einnig hafður á að þessu sinni. Samkvæmt því gæti nýtt þing, 146. löggjafarþingið, kom- ið saman upp úr miðjum október. Tíminn fram að þingsetningu verður notaður til að undirbúa nýtt þing, skipa í fastanefndir, prenta fjárlagafrumvarp o.fl. Fjárlaga- frumvarp ársins 2017 verður að leggja fram á nýju löggjafarþingi. Líklegt að þingrof verði tilkynnt 14. september  Alþingi kemur saman á mánudaginn eftir sumarleyfi  Þingið verður lengt Morgunblaðið/Golli Upplýsingafundur Forystumenn ríkisstjórnarinnar hittu formenn stjórnarandstöðuflokkanna í Stjórnarráðinu. „Undirbúningur að gerð fjárlaga- frumvarps hefur staðið yfir um nokkurra mán- aða skeið. Sú vinna hefur gengið vel og er á áætlun,“ segir Guðmundur Árnason, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Hinn 1. janúar síðastliðinn tóku gildi lög um opinber fjármál. Þau fela í sér mjög víðtækar breytingar á fjárlagaferlinu. Samkvæmt nýju lögunum leggur ríkisstjórnin fram, þegar hún tekur við völdum, þingsályktunartillögu um fjármálastefnu og árlega að vori þingsályktun um fjármálaáætlun sem tekur alltaf til næstu fimm ára. Að sögn Guðmundar var í maí í vor lögð fram slík áætlun sem fjár- laganefnd Alþingis var að afgreiða frá sér í vikunni. Það er grundvöllur- inn að undirbúningi fjármálaráðu- neytisins fyrir fjárlagafrumvarpið. Að hans sögn felur þetta í sér tölu- verðar breytingar að því leyti til að í fjárlagafrumvarpinu munu fjárveit- ingar skiptast niður á málaflokka. Meginvinnan í fjárlagagerðinni er í því fólgin að skipta fjárheimildum milli einstakra málaflokka, en þeir eru 102 talsins. Síðan skiptast þær fjárheimildir í fjárveitingar niður á stofnanir og verkefni. Sú skipting kemur í fylgiriti með fjárlaga- frumvarpinu. Breytt framsetning „Þetta fjárlagafrumvarp verður því töluvert frábrugðið fyrri fjár- lagafrumvörpum sem landsmenn þekkja. Útgjöldin renna áfram til sömu verkefna en framsetningin á fjárlögunum verður með þessum breytta hætti sem leiðir af nýjum lögum,“ segir Guðmundur. Undirbúningur fjárlaganna hófst fljótlega eftir síðustu áramót, að sögn Guðmundar. Ríkisstjórnin samþykkti í júní meginramma fjár- lagafrumvarpsins og við það er miðað. „Við það er miðað að grunn- dæmi fjárlagafrumvarps liggi fyrir þegar ný ríkisstjórn tekur við, en hún mun þurfa svigrúm til þess að skilgreina sínar áherslur í því fjár- lagafrumvarpi sem hún leggur fram,“ segir Guðmundur. sisi@mbl.is Fjárlaga- frumvarp í vinnslu  Frumvarpið verð- ur með nýju sniði Guðmundur Árnason Atkvæðagreiðslu utan kjör- fundar vegna áformaðra alþing- iskosninga í október skal hefja svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, þó ekki fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi, er heimilt að greiða atkvæði ut- an kjörfundar. Undirbúningur fyrir kosning- arnar getur ekki hafist fyrr en þingrof hefur verið tilkynnt, sem væntanlega verður gert hinn 14. september nk. Sú til- kynning raungerir kosningarnar, ef svo má segja. Því getur undirbúningur innanríkisráðuneytisins fyrir kosningarnar ekki hafist fyrr en sex vikum fyrir kosningadag að þessu sinni. Þingrofið stýrir för KOSNINGARNAR „Þetta bendir til að ungir karlar séu að nálgast hreyf- ingu sem aðferð til að ná fram ákveðnu útliti frekar en til að efla almenna heilsu og vellíðan. Þegar útlits- breytingar eru helsta markmið hreyfingar er hætta á því að hegðunin sé drifin áfram af slæmri líkams- mynd, kvíða og jafnvel átvandamálum og þá er auð- vitað ekki lengur um heilbrigt mynstur að ræða. Það sem mér fannst áhugaverðast við þessa um- fjöllun eru skýringar rannsakenda á þessari þróun, það er að með auknu jafnrétti og breytingum á stöðu karla innan samfélagsins þá gangi þeir ekki lengur að ákveðinni virðingarstöðu vísri bara fyrir það eitt að vera karlmenn heldur upplifi að þeir þurfi að uppfylla ákveðna staðla til að geta verið öruggir í eigin skinni. Þetta er auðvitað eitthvað sem konur hafa lengi búið við og hefur skapað ýmiskonar vandamál hjá þeim í tengslum við slæma líkamsmynd, megrun, átraskanir o.fl. Þetta er því síður en svo jákvæð þróun og mikilvægt að sporna við henni því auðvitað viljum við að öllum geti liðið vel í eigin skinni óháð kyni og líkamsvexti,“ segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur um rannsóknina. „Síður en svo jákvæð þróun“ GANGA EKKI LENGUR AÐ VIRÐINGARSTÖÐUNNI VÍSRI Sigrún Daníelsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.