Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 22

Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Arctic Trucks Kletthálsi 3 110 Reykjavík sími 540 4900 info@arctictrucks.is www.arctictrucks.isEXPLORE WITHOUT LIMITS ® Vandaðar plasthlífar á flestar gerðir bifreiða. Hlífa bílnum gegn grjótkasti og varna lakkskemmdum. • Húddhlífar • Gluggavindhlífar • Ljósahlífar PLASTHLÍFAR 13. ágúst 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 118.59 119.15 118.87 Sterlingspund 153.87 154.61 154.24 Kanadadalur 90.94 91.48 91.21 Dönsk króna 17.764 17.868 17.816 Norsk króna 14.321 14.405 14.363 Sænsk króna 14.003 14.085 14.044 Svissn. franki 121.57 122.25 121.91 Japanskt jen 1.1692 1.176 1.1726 SDR 165.32 166.3 165.81 Evra 132.13 132.87 132.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3108 Hrávöruverð Gull 1336.7 ($/únsa) Ál 1630.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.78 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Gangi spár grein- ingardeilda við- skiptabankanna þriggja eftir mun ársverðbólga minnka enn frekar frá því sem nú er. Verðbólga er nú 1,1% samkvæmt síðustu mælingu Hagstofunnar. Arion banki og Íslandsbanki spá báðir að verðlag hækki í ágúst um 0,2% og ársverðbólga minnki í 0,8%. Landsbankinn spáir 0,1% hækkun verðlags í ágúst og að ársverðbólga minnki í 0,7%. Þá spáir Capacent r tæplega 0,3% hækkun verðlags í ágúst. Gangi það eftir mun ársverðbólga minnka úr 1,1% í 0,9%. Bent er á að Seðlabankinn hefur skilgreint neðri þolmörk verðbólgu við 1%. Hagstofa Íslands birtir verðbólgu- mælingu sína fyrir mánuðinn þann 26. ágúst næstkomandi. Greiningardeildir spá minni ársverðbólgu STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í lok árs 2021 munu skuldir rík- issjóðs nema 662 milljörðum króna, að því gefnu að hægt verði að selja allan hlut ríkisins í Íslandsbanka og að 30% hlutur verði einnig seldur í Landsbankanum. Sú skuldastaða mun leiða til þess að ríkissjóður verður að reiða fram 39 milljarða í vaxtagreiðslur af skuldum sínum á árinu 2021. Í nýju nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar, við fjármálaáætlun fyrir árin 2017 til 2021, er áhyggjum lýst af þessari stöðu. Bendir nefndin á að ef hagvöxtur reynist minni en spár gera ráð fyrir, og tekjur hins opinbera af þeim sökum minni en lagt er upp með, geti það hæglega valdið því að áætlaður afgangur af fjárlögum snúist í halla. Blóðugt fyrir ríkissjóð Guðlaugur Þór Þórðarson, vara- formaður fjárlaganefndar, segir vaxtakostnaðinn of háan. „Þeir pen- ingar sem við greiðum í vexti verða ekki notaðir í annað og það er blóð- ugt að þurfa að borga slíkt. Á árinu 2021 stefnir allt í að ríkissjóður greiði í vexti upphæð sem slagar í að vera jafnhá og rekstrarkostnaður Landspítalans.“ Samkvæmt tveimur sviðsmynd- um sem fjármálaráðuneytið stillir upp um þróun skulda og fjármagns- jafnaðar fram til ársins 2021 er ann- ars vegar gert ráð fyrir því að skuldir ríkissjóðs muni nema 799 milljörðum króna í lok tímabilsins og hins vegar að þær verði komnar niður í 662 milljarða. Fyrri sviðsmyndin, sem auðkennd er með bókstafnum A, gerir aðeins ráð fyrir því að Íslandsbanki verði seldur að öllu leyti, í fjórum skref- um, en að eignarhlutur ríkisins í Landsbankanum verði óraskaður. Í þeirri sviðsmynd er sömuleiðis gert ráð fyrir því að 80 milljarðar fáist greiddir í ríkissjóð vegna lækkunar eiginfjár bankanna tveggja. Þá gerir dæmið einnig ráð fyrir því að 60 milljörðum króna verði varið til lækkunar á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs. Gangi sviðsmynd A eftir munu skuldir ríkissjóðs lækka úr 1.079 milljörðum í ár í 799 milljarða í lok árs 2021 og jafngildir það 280 milljarða lækkun að nafnvirði. Síðari sviðsmyndin gengur lengra hvað mögulega eignasölu varðar og er þar gert ráð fyrir því að 30% eignarhlutur í Landsbankanum verði seldur, eins og áður segir. Þannig gengur sviðsmyndin, sem auðkennd er með bókstafnum B, út frá því að heildarskuldir muni lækka um 388 milljarða fram til ársloka 2021 og standi þá í 662 milljörðum. Í sviðsmynd B er einnig gert ráð fyrir því að 100 milljörðum verði varið til innágreiðslu á lífeyrisskuldbinding- ar ríkissjóðs. Gangi hreint til verks Guðlaugur Þór segir nauðsynlegt að stigin verði ákveðin skref, á grundvelli ríkisfjármálaáætlunar- innar, til að tryggja söluna á öllum hlut ríkisins í Íslandsbanka og 30% hlut í Landsbankanum. „Það verður að fylgja ítrustu til- lögum hvað þetta varðar. Ríkið heldur nú á miklum eignum sem ekki eru sérlega vel komnar í hönd- um þess, meðal annars eru það bankarnir sem eru í samkeppnis- rekstri. Þá má ekki gleyma því að bent hefur verið á að Ísland hafi náð sér hratt út úr hinni alþjóðlegu fjár- málakreppu sem skall á landinu árið 2008 vegna þess að ríkissjóður var nánast skuldlaus. Það verður að hafa þessa staðreynd í huga þegar við sjáum að þótt við seljum Íslands- banka og 30% hlut í Landsbank- anum mun ríkissjóður skulda nærri 700 milljarða.“ Vaxtagjöld ríkissjóðs verða mikil þrátt fyrir bankasölu Morgunblaðið/Þorkell Ríkisfjármál Skuldir ríkissjóðs eru meira en 1.000 milljarðar nú um stundir en ættu að lækka hratt á komandi árum.  Vaxtakostnaður mun nema 39 milljörðum árið 2021 þótt Íslandsbanki verði seldur Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að höfða mál fyrir dómstól- um vegna sölunnar á eignarhlut bankans í Borgun hf. á árinu 2014. Segir í tilkynningu bankans að það sé mat bankaráðs að bankinn hafi farið á mis við fjármuni í viðskipt- unum þar sem bankanum voru ekki veittar nauðsynlegar upplýsingar. Eins og Morgunblaðið greindi frá í frétt þann 17. mars síðastliðinn fól Landsbankinn lögmönnum að undir- búa málsókn vegna sölunnar á eign- arhlutnum í Borgun, til endurheimt- ar þeirra fjármuna sem bankinn hafi farið á mis við í viðskiptunum. Sá undirbúningur virðist nú að baki og bankaráðið hefur ákveðið að efna til málaferla. Í tilvitnaðri frétt blaðsins frá í mars segir að Bankasýslan, sem heldur utan um eignarhlut ríkisins í Landsbankanum, hafi þá nýlega hvatt bankann til að leita réttar síns ef bankinn teldi á sér brotið. Ekki kemur fram í tilkynningunni á hendur hverjum bankinn hyggst sækja málið en ætla má að þar sem bankaráðið telur að bankanum hafi ekki verið veittar nauðsynlegar upp- lýsingar, þá beinist málið að þeim sem bankinn telur bera ábyrgð á því. Fram hefur komið í umfjöllun Morgunblaðsins að Fjármálaeftirlit- ið telji að verklag Landsbankans við sölu á 31,2% eignarhlut í Borgun hafi ekki að öllu leyti samrýmst eðlileg- um og heilbrigðum viðskiptaháttum samkvæmt lögum um fjármálafyrir- tæki. Athugun eftirlitsins bendi til að verklagi hafi verið áfátt og það hafi ekki verið til þess fallið að skila bestri niðurstöðu fyrir bankann. jonth@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Borgun Bankaráðið hefur nú ákveð- ið að stefna vegna Borgunar. Landsbanki í mál vegna Borgunar  Ekki liggur fyrir gegn hverjum mál- ið verður höfðað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.