Morgunblaðið - 13.08.2016, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
Þjóðlegt,
gómsætt
og gott hpflatkokur@simnet.is
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Tyrknesk yfirvöld munu vinna með
Íran að því markmiði að leysa úr
borgarastríðinu sem geisað hefur í
Sýrlandi í fimm ár og þvingað millj-
ónir Sýrlendinga til að flýja landið,
þrátt fyrir að þjóðirnar tvær hafi til
þessa verið á öndverðum meiði hvað
stríðið varðar.
Sammála um landamærahelgi
Sýrlands
Íran hefur ásamt Rússlandi verið
helsti bandamaður Bashar al-Assad,
forseta Sýrlands, en tyrknesk yfir-
völd telja að friður náist ekki í Sýr-
landi svo lengi sem Assad er við
stjórnvölinn. „Við munum vinna náið
saman í þessum málum eftir þennan
fund. Við erum sammála um margt,
sérstaklega landamærahelgi Sýr-
lands,“ sagði Mevlut Cavusoglu,
utanríkisráðherra Tyrklands, en
hann fundaði með Javad Zarif, utan-
ríkisráðherra Íran, í gær.
Sérfræðingar telja yfirvöld í Rúss-
landi og Íran leitast við að ná sáttum
við Tyrkland um Sýrland í kjölfar
heimsóknar Recep Tayyip Erdogan,
forseta Tyrklands, til Rússlands.
Zarif sagði að bæði Íran og Tyrk-
land vildu leyfa sýrlensku þjóðinni
að ákveða örlög eigin lands. Bæði Ír-
an og Tyrkland vilja vernda landa-
mærahelgi Sýrlands og að framtíðin
sé í höndum fólksins.
Lýstu yfir ótvíræðum stuðningi
við Erdogan
Þrátt fyrir fyrri deilur vegna Sýr-
lands voru Íran og Rússland meðal
fyrstu þjóða sem lýstu yfir ótvíræð-
um stuðningi við Erdogan í kjölfar
valdaránsins misheppnaða og var
heimsókn Zarif til Tyrklands, þar
sem hann hitti Cavusoglu og síðan
Erdogan sjálfan, þýðingarmesta
heimsókn erlends embættismanns
til Tyrklands síðan valdaránið var
framið. Zarif lýsti yfir ánægju með
sættir Tyrklands og Íran.
Íran og Tyrk-
land í samstarf
Framtíð Sýrlands er í höndum íbúa
Sýrlenskir flóttamenn
Fjöldi
flóttamanna
í grann-
ríkjunum
2.728.986
117.168
29.275
1.033.513
249.395
657.203
4.815.540 skráðir flótta-
menn frá Sýrlandi í grannríkjunum
TYRKLAND
EGYPTALAND
NORÐUR-AFRÍKA
LÍBANON
ÍRAK
JÓRDANÍA
Skv.
tölum Flóttamanna-
stofnunar SÞ
52,5%
flóttafólksins
eru börn
3,2%
60+
13,5%
4 ára og
yngri
18,3%
20,9%
5-11
44,1%
TYRKLAND
LÍB.
EGYPTA-
LAND
J.
SÝRL.
Í .
18-59
Eftir
aldurs-
hópum
12-17
Landamæri Kólumbíu og Venesúela
verða opnuð að hluta í dag, eftir að
hafa verið lokuð í tæpt ár. Juan
Manuel Santos, forseti Kólumbíu, og
Nicolas Maduro, forseti Venesúela,
tilkynntu þetta í gær.
Maduro lét loka landamærunum
af öryggisástæðum í fyrra og á sama
tíma var fjölda Kólumbíumanna vís-
að úr landi. Maduro telur að bætt
samskipti ríkjanna og tryggara
ástand á milli þeirra hafi gert ríkis-
stjórnum þeirra kleift að taka fjölda
ákvarðana, meðal annars um opnun
landamæranna.
Landamærin verða opin daglega
frá átta á morgnana til tíu á kvöldin.
Haft var eftir Santos að opnunartím-
inn væri til bráðabirgða „á meðan við
lærum og aðlögum ákvarðanir
okkar“, að því er fréttavefur BBC
greinir frá.
Sameiginleg landamæri Kólumbíu
og Venesúela eru 2.200 km löng. Til
að byrja með
verður leyft að
fara yfir landa-
mærin á fimm
landamærastöðv-
um og eingöngu
fótgangandi.
Stefnt er að því
að opna landa-
mærin að fullu á
ný, en fyrst verði
ríkin að ná sam-
komulagi um ýmis málefni á borð við
öryggi, verslun og orkumál.
Opnuð tímabundið í júlí
Stjórnvöld í Venesúela opnuðu
landamæri ríkjanna í tvígang í júlí-
mánuði til þess að gera fólki kleift að
kaupa matvæli og lyf. Fóru tæplega
200.000 manns til Kólumbíu við þessi
tækifæri, en mikill vöruskortur er nú
í Venesúela vegna alvarlegrar efna-
hagskreppu í landinu.
AFP
Kreppa Ekki leikur allt í lyndi hjá Nicolas Maduro, forseta Venesúela, en
landið er í gríðarlegri efnahagskreppu og þurfa íbúar að þola matvælaskort.
Venesúela opnar
landamærin á ný
Samskipti við Kólumbíu batna
Juan Manuel
Santos
Rússneski herinn hefur flutt háþróaðasta loftvarna-
búnað sinn á Krímskaga. Þetta kom fram í tilkynningu
hersins.
Spenna á milli Úkraínu og Rússlands hefur verið
gríðarleg nýverið vegna ágreinings um Krímskagann
sem, eins og frægt er, kaus árið 2014 að slíta sambandinu
við Úkraínu og sameinast Rússlandi.
Alríkislögregla Rússlands sagði á miðvikudag að hún
hefði hindrað „hryðjuverkaárásir“ leyniþjónustu úkra-
ínska hersins síðustu helgi, en yfirvöld í Úkraínu harð-
neita því að slíkt hafi átt sér stað.
Loftvarnakerfið ber nafnið S-400 „Triumph“ og hefur verið flutt til Sýr-
lands þar sem Rússar eru með sprengjuherferð til stuðnings Bashar al-
Assad, sem er langtímabandamaður Rússlands. Kerfið getur skotið vel á
fjórða tug skotmarka niður samtímis, úr mörg hundruð kílómetra fjarlægð.
SPENNA Á MILLI RÚSSLANDS OG ÚKRAÍNU EYKST
Hágæðaloftvarnakerfi til Krímskaga
Donald Trump, forsetaefni Repú-
blikanaflokksins, segist ekki hafa
verið alvara þegar hann kallaði Bar-
ack Obama, Bandaríkjaforseta, og
Hillary Clinton, forsetaefni demó-
krata, stofnendur hryðjuverka-
samtakanna Ríkis íslams. Trump
birti færslu á Twitter-síðu sinni þar
sem hann gagnrýndi fjölmiðilinn
CNN og spurði: „Skilja þeir ekki
kaldhæðni?“
Með færslunni kveður við nýjan
tón hjá Trump, hann hefur fengið
fjölmörg tækifæri í viðtölum til að
útskýra ummælin sem hann lét falla
í garð Obama og Hillary en ávallt
ítrekað að meiningin hafi verið sú að
Obama hafi stofnað ISIS.
Kaldhæðni
í Trump
AFP
Taumlaus Donald Trump ásakaði Barack Obama og Hillary Clinton um að
hafa stofnað Ríki íslams á kosningafundi í Kissimmee í Flórída.