Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 30

Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 30
Stuttu eftir lok Evrópumótsins í knattspyrnu heyrði ég af tilviljun viðtal við formann KSÍ á Bylgj- unni. Þar greindi hann frá því að KSÍ ætti, eða væri að fara, í við- ræður við Reykjavíkurborg um stækkun og breytingar á Laug- ardalsvelli. M.a. kom fram hjá for- manni að fjarlægja ætti hlaupa- brautir sem umlykja knattspyrnuvöllinn. Ef sú verður raunin hefur KSÍ tekist það sem hefur verið óskadraumur sam- bandsins frá því það eignaði sér Laugardalsvöll. Sambandið lítur á völlinn sem sína einkaeign og vill engar frjáls- íþróttir. Nú er mál að linni. Ef af þessu verður er Laugardals- völlur ekki leng- ur þjóð- arleikvangur og þessum hug- myndum um að úthýsa frjálsum íþróttum verða menn að mótmæla. Sigurður Jónsson, fyrrverandi leikmaður meistaraflokks Vals í knattspyrnu. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Þjóðarleikvangur? 30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Um er að ræða 382 fm atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð. Húsnæðið er tvær eining- ar en í dag er það leigt út sem ein eining. Í húsnæðinu hefur verið rekin verslun sama aðila um langt skeið og í gildi er leigusamningur við traustan leigutaka til langs tíma. Hér er á ferðinni góður fjárfestingarkostur. Verð 165 millj.kr. Til sölu húsnæði að Suðurlandsbraut 54, Reykjavík. Frekari upplýsingar í síma 660 7500 Mannkynið var árið 1975 um 4,0 milljarðar, árið 2000 um sex og svo árið 2014 7,0 og er áætlað yfir átta millj- arðar árið 2025. Þriðj- ungur mannkyns étur í sig sjúkdóma eða í hel með 2-5 sinnum of- neyslu prótíns en rest- in er vannærð meira eða minna. Það er nefnilega prótínið sem allt snýst um við fjölgun mannkynsins því að við þurfum daglega níu lífsnauðsyn- legar amínósýrur (innihalda nitur eða köfnunarefni) í fæðunni til að byggja og endurnýja líkamann. Af öllum dýra- og jurtaprótínum er sojabaunin með eitt mesta og besta prótínið og tilsvarar það gæðum prótíns mjólkur og eru bæði með 96% allra 9 amínósýranna í réttum hlutföllum. Kjöt og fiskur eru bara með 75%. Af belgávextinum soja er hvað mest ræktað í heiminum í dag en mestallt sojamjölið fer í fóður til kjöt- og mjólkurframleiðslu sem skilar bara 20% áfram til mannsins. Sojajurtin er upprunnin í Kína og hefur verið ræktuð þar í a.m.k.yfir 5.000 ár og staðið að mestu undir prótín- og fituþörf þeirra í gegnum tíðina. Hún hefur breiðst til ná- lægra landa í Suðaustur-Asíu. Jurt- in þarf meginlandsloftslag og mikla sól, en er harðger og þolir þurrka. Hún varð fyrst þekkt í Evrópu eftir 1700 og fyrst ræktuð í Tékkóslóv- akíu og Rúmeníu við ákjósanleg skilyrði. Það er svo upp úr 1800 að hún berst til BNA og eftir fyrra heimsstríðið verður þar sprenging í ræktun og fór mestallt í dýrafóður þar til á 20. öldinni. Sojabaunir eru tiltölulega ódýrar í framleiðslu og vinnslu í stað kjöts sem kjöt- líki (TVP=texture vegetable protein), og sem sojamjólk og gerj- uðu afurðirnar tofu, sufu, tamari, miso, natto miso, tempeh o.fl. og þá sem prótíngjafi í mat. FAO lítur því til hennar sem eins tækifæris í baráttunni við prót- ínskortinn fyrir sívaxandi mann- fjölda. Baunin er 90% forðanæring, 8% hýði og 2% kím. 100 g baunir gular eða grænar hafa að geyma 28- 56 g prótín, 12-26 g fitu, 30 g sykra (lítið af hvítsykri) og óvatnsleys- anlegra trefja og svo 3,5-6,0 g stein- efna. Fleiri efni eru í bauninni eins og fytoestrogen (isoflavionar), fy- tosterolar sem eru ríkir fosfat- gjafar, lechitín, A, B, C, E og K vít- amín og steinefni (einkum auðfrásogað Fe, Ca og Mg) . Til eru hundruð afbrigða af sojajurtinni svo unnt ætti að vera að finna þá teg- und sem passar loftslagi á mörgum stöðum í heiminum. Edamame er hollt japanskt snakk með bjór og eru dökkgrænar ferskar baunir not- aðar. Yfirleitt þarf að sjóða soja- baunir fyrir neyslu í um klukku- stund en bara í vatnsbaði eða gufu til að sundra efnum sem gera melt- ingarhvatann trypsín óvirkan. Eins og með flestar baunir má láta soja- baunir spíra en ekki lengur en 4 daga. Sojamjöl inniheldur t.d. í 100 g 357 kcal orku, 39% prótín, 21% fitu, Ca 197 mg, Fe 6,2 mg, A-vít. 140 A.E., B1 vít. 0,77 mg, B2 vít. 0,28 mg og sé mjölið fituskert verða önnur gildi hærri og því soja eitt magnmesta prótínmjöl jurtaríkisins með 96% nýtanlegar amínósýrur og nálgast fiskimjöl með um 70% prót- ín en bara 75% nýtanlegt af am- ínósýrunum 9. Þá er sojaolía mjög holl með 1,5-3,0% lechitín og mörg fituleysanleg vítamín og svo hátt innihald fleirómettaðra línól-(48- 55% fitusýra) og sérstaklega línól- ínsýru (8-10% fitusýra) sem báðar eru lífsnauðsynlegar. Sojabrauð eru einu brauðin sem eru basamynd- andi í líkamanum (PRAL-gildi þess er -9,07 /100 g en flest önnur brauð hafa um +4 eða súrt að sögn Þjóð- verjans a Vormann ). Sojabrauð gætu því stórbætt sýru-basa jafn- vægi margra. Bara blöndun 5-15% sojamjöls í mismunandi brauðkorn stórbætir nýtni prótínanna 9 í brauðunum. Það skyldi þó aldrei verða svo að baunin sem hefur haldið Kínverjum á lífi um árþúsundir eigi eftir að bjarga mannkyninu. Verður sojabaunin bjargvættur mannkyns? Eftir Pálma Stefánsson »Mannkynið þarf mik- ið af hollu og ódýru prótíni í framtíðinni og er sojabaunin og afurðir úr henni líklegri en dýraprótín. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. Það er eitthvað skrýtið í gangi í Reykjavík. Á meðan húsnæðisvandamál ungs fólks og tekju- lágra fara sífellt versn- andi þá er ekki verið að mæta þörfinni um ódýrt húsnæði. Í stað- inn er nær eingöngu byggt miðsvæðis á dýr- asta stað í bænum á svæði þar sem alls konar flækjustig tefja alla uppbyggingu. Ásókn ferða- manna í þetta svæði er síðan það mik- il og vaxandi að nær engar líkur eru á ódýru húsnæði á þessu svæði á næstu árum. Með stefnu sinni að þvinga þéttingu byggðar, má segja að Reykjavíkurborg hafi ákveðið að sinna eingöngu lúxusvandamáli í ferðamannaiðnaðinum, en horfa framhjá bráðavandanum. Slík af- staða er ábyrgðarhluti, því langan tíma tekur að leysa húsnæðisvanda ungs fólks og tekjulágra ef stærsta sveitarfélagið stimplar sig út með þessum hætti. Áratugur í úrlausn ef ekkert breytist Í miðbænum er öll uppbygging í eðli sínu hægari vegna alls konar flækjustigs í skipulags- vinnu. Meiri þrengsli og hæsta lóðaverðið keyra síðan byggingarkostnað upp í hæstu hæðir. Of mikil þétting í grónu hverfi getur síðan leitt til alls konar vandamála síðar meir þegar inn- viðir anna ekki hinu aukna álagi. Veg- ir stíflast, bílastæði vantar, holræsa- og veitukerfi anna ekki álagi og skól- ar yfirfyllast. Þegar byggja þarf upp slíka innviði, sem samt þurfa að vera áfram í notkun, getur kostnaðurinn orðið margfaldur miðað við ef byggt væri nýtt. Ekkert betra tekur við á nýjum umbreytingasvæðum eins og á Ár- túnshöfða og við Elliðavog þar sem breyta á iðnaðarsvæði í íbúðasvæði. Því að til að sú aðgerð borgi sig, þá þarf íbúðaverðið að bera kostnað við flutning alls iðnaðarhúsnæðisins sem fyrir var, niðurrifs ef ekki er unnt að breyta því, auk alls byggingarkostn- aðarins við nýju íbúðina. Bygging- arkostnaðurinn getur þannig hátt í tvöfaldast og því er meira að segja óvíst hvort að núverandi fast- eignaverð beri slíka framkvæmd. Uppbygging þessara hverfa gengur því hugsanlega út frá því að fast- eignaverð eigi eftir að hækka tölu- vert í viðbót. Horfurnar eru jafnvel enn verri á Reykjavíkurflugvelli, því auk upp- kaupa á landi þá verður einhver að bera kostnaðinn af byggingu nýs flugvallar og uppkaupum og niðurrifi á þeim byggingum sem þar eru fyrir. Einnig má telja verulega óvissu á því hvort af lokun flugvallarins verði þar sem stór meirihluti landsmanna vill halda Reykjavíkurflugvelli. Því munu a.m.k.líða 10-15 ár áður en flugvöll- urinn fer. Gríðarleg fjölgun ferðamanna hef- ur gjörbreytt fasteignamarkaðnum og á örugglega stóran þátt í mikilli hækkun á verði fjölbýlis á höfuðborg- arsvæðinu (sjá mynd). Allar íbúðir miðsvæðis sem ferðamannaiðnaður- inn gleypir ekki fara eingöngu til þeirra sem eru reiðubúnir að borga mun hærra verð fyrir staðsetn- inguna. Slík þróun er ekkert óeðlileg og þekkist t.d. í flestum stórborgum heims. Það er aftur á móti óvenjulegt að samhliða þessari þéttingu byggðar sé ekki verið að mæta þörfum tekju- minna fólks með hraðri uppbyggingu úthverfa. Öríbúðabyggð á Keldum Nóg er af úthverfum í Reykjavík þar sem hægt væri að byggja hratt til að mæta þörfinni. Að Korputorgi er ekki nema 5 mínútna akstur frá Grensásvegi og frá Keldum er ekki nema 3 mínútna akstur. Þessi ónot- uðu svæði hafa það fram yfir miðbæ- inn að auðvelt væri að byggja þar hratt mikið byggingamagn á lág- markskostnaði, en vegna staðsetn- ingar þá mun ásókn ferðamannaiðn- aðarins í þessar íbúðir verða mun minni en í miðbænum. Við Keldur eru 80 hektarar af byggingarhæfu landi sem er að stórum hluta í rík- iseigu. Svæðið liggur að versl- unarsvæðum og nær allar tengingar við gatnakerfið og hjólastíga eru þeg- ar til staðar og því auðvelt að koma við öflugum almenningssamgöngum. Þéttur öríbúðafjölbýliskjarni á þess- um stað gæti því orðið mjög eft- irsóknarvert búsvæði sem hratt gæti mætt þörf markaðarins fyrir hag- kvæmt húsnæði. Borgin misskilur hlutverk sitt Á sama tíma og borgin slugsar við að sinna eðlilegri uppbyggingu hag- kvæmustu svæða er fyrirhugað að eyða stórfé í rándýrar félagslegar íbúðir á dýrasta stað í bænum. Slík verkefni eru hreint fáránleg sóun á almannafé. Félagsleg búsetuúrræði eru fátæktargildra þar sem fólk sem fer að vinna í eigin málum á það á hættu að missa búseturétt ef tekjur fara yfir lágmark. Ef sama fé væri notað í gatnagerð og innviði í ör- íbúðabyggð í Keldnahverfi þá myndu vandamálin leysast af sjálfu sér með sjálfbjarga íbúa. Það er ekki hlutverk borgarinnar að nota aðkomu sína að skipulagsferl- inu til lóðabrasks eða til að þvinga fram útópíudrauma um þéttingu byggðar. Byggð þéttist af sjálfu sér af eðlilegum orsökum án þess að hönd stjórnmálamanna þurfi að koma nærri. Nóg er til af ódýru bygging- arlandi í Reykjavík. Takmörkun á uppbyggingu ódýrustu svæða er meiriháttar aðför að hag ungs fólks og tekjulágra, sem fyrir vikið þurfa að borga mun hærra verð fyrir að fá þak yfir höfuðið. Borgin hefur al- gjörlega brugðist þessu fólki. Öll hækkun fasteignaverðs sem kemur til vegna tilbúins lóðaskorts er gervi- verðmæti, sem auðveldlega þurrkast út þegar næsta fasteignabóla spring- ur og markaðurinn leiðréttir sig. Eft- ir situr almenningur með sárt ennið og skuldugur upp fyrir haus. Reynt að leysa rangt húsnæðisvandamál Eftir Jóhannes Loftsson »Hröð uppbygging öríbúða í úthverfi eins og Keldur gæti leyst húsnæðisvanda ungs fólks og tekjulágra á örskömmum tíma. Jóhannes Loftsson Höfundur er verkfræðingur og frum- kvöðull í stjórn frjálshyggjufélagsins. Húsnæðisverð Síðan Eyjafjallajökull ræsti ferðamannaiðnaðinn árið 2010, hefur verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu vaxið tvöfalt hraðar en verð á einbýli. Nú virðist ferðamannaiðnaðurinn vera að gefa í ef eitthvað er. (Unnið út frá gögnum hagstofunnar og ferðamálastofu.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.