Morgunblaðið - 13.08.2016, Qupperneq 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
✝ Guðný Sig-urbjörg Run-
ólfsdóttir fæddist á
Ásbrandsstöðum í
Vopnafirði 17.
október 1930. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sunda-
búð í Vopnafirði 3.
ágúst 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Guðrún
Jónsdóttir hús-
freyja, fædd 18. maí 1899 í
Leirhöfn í Presthólasókn, dáin
11. mars 1992, og Runólfur
Guðmundsson bóndi og póstur,
fæddur 21. janúar 1898 að
Haga í Vopnafirði, dáinn 4. jan-
úar 1989.
Systkini Guðnýjar: 1) Einar
bóndi á Ásbrandsstöðum, fædd-
ur 2. nóvember 1921, dáinn 30.
mars 2003. 2) Björg Halldóra
húsfreyja að Hlíðarhúsum í
Jökulsárhlíð, fædd 24. júlí 1923,
dáin 3. mars 2013. 3) Gunnar
vörubílstjóri, fæddur 27. mars
1927. 4) Kristín bóndi og hús-
freyja að Ásbrandsstöðum,
fædd 6. desember 1928, dáin
25. maí 2015. 5) Sigrún bóndi
og húsfreyja á Ásbrands-
stöðum, fædd 8. júlí 1934. 6)
fríði G. Kristjánsdóttur, fædd 8.
febrúar 1958. Börn þeirra: a)
Alfreð Pétur, f. 21. janúar 1983
í sambúð með Ylfu Helgadótt-
ur, f. 13. júlí 1988. b) Kristján
Óli, f. 14. febrúar 1985. c) Sig-
urður Grétar, f. 12. febrúar
1987, í sambúð með Selju Jant-
hong, f. 31. janúar 1986. Dóttir
þeirra er Jasmín Líf. d) Hall-
dór, f. 30. apríl 1991. 3) Krist-
björg Erla, fædd 3. júní 1966. Í
sambúð með Haraldi Jónssyni,
fæddur 22. apríl 1955. Börn
þeirra eru Jón, f. 25. ágúst
1993, og Guðný Alma, f. 7.
október 2004.
Guðný og Alfreð hófu búskap
á Fagurhól í Selárdal í Vopna-
firði árið 1956 en fluttu í Torfa-
staði í Vesturárdal 1961 og
bjuggu þar til 2002 er þau
fluttu í kauptúnið á Vopnafirði.
Barnaskólanám Guðnýjar var í
farskóla í Vopnafirði en síðar
stundaði hún nám í Alþýðuskól-
anum á Eiðum og Húsmæðra-
skólanum á Löngumýri. Á
yngri árum starfaði hún m.a. á
Akureyri einn vetur. Með bú-
skap á Torfastöðum vann hún
við Torfastaðaskóla og í hjúkr-
unarheimilinu Sundabúð á
Vopnafirði, en aðalstarf hennar
um ævina var erilsamt starf
húsmóður í sveit.
Útför Guðnýjar verður gerð
frá Vopnafjarðarkirkju í dag,
13. ágúst 2016, og hefst athöfn-
in klukkan 14. Jarðsett verður í
Hofskirkjugarði.
Lára húsfreyja á
Hámundarstöðum í
Vopnafirði og síðar
á Akureyri fædd 8.
júlí 1934.
Eftirlifandi eig-
inmaður Guðnýjar
er Alfreð Péturs-
son, fæddur 26.
nóvember 1929.
Foreldrar hans
voru Kristbjörg
Magnúsdóttir og
Pétur S. Pétursson.
Dóttir Guðnýjar og Að-
alsteins Valdimarssonar á Ak-
ureyri er Bára, fædd 2. febrúar
1951, gift Heiðari Þórðarsyni,
fæddur 22. janúar 1945, dáinn
4. september 2012. Börn þeirra:
a) Þórður Fannberg, f. 20. jan-
úar 1970. Hann er kvæntur
Fjólu Borg Svavarsdóttur, f. 25.
mars 1976, og eiga þau tvö
börn: Þór Ísak og Báru Frey-
dísi. b) Sigurbjörg Ásgerður, f.
18. febrúar 1971, gift Borgari
Ævari Axelssyni, f. 9. apríl l
1972. Börn þeirra: Heiðbjört
Bára og Axel Þór. Börn Guð-
nýjar og Alfreðs: 1) Drengur,
dó í fæðingu 27. júní 1957. 2)
Sigurður Pétur, fæddur 16.
september 1959, kvæntur Dan-
Elsku amma mín og nafna er
fallin frá og vil ég minnast
hennar með nokkrum orðum.
Mínar fyrstu minningar um
ömmu eru þegar ég fór ung að
árum austur á land í sveit til
hennar. Það reyndist mér erfitt
fyrstu dagana, langt í burtu frá
foreldrum og heimahögum. En
amma hafði traustan og hlýjan
faðm sem tók svo vel á móti mér
að allir erfiðleikar hurfu fljót-
lega úr huga mér. Árin eftir það
fór ég austur í sveitasæluna
með tilhlökkun í huga.
Amma kenndi mér iðjusemi
og að hafa alltaf eitthvað fyrir
stafni daginn á enda, enda yf-
irdrifið nóg að gera í sveitinni.
Ef minna var að gera við al-
menn sveitastörf þá var tiltekt á
bænum vinsæl iðja hjá ömmu.
Því snyrtimennska var í miklu
fyrirrúmi bæði inn og úti.
Gömlu dansana lærði ég af
ömmu. Þegar færi gafst frá
sveitastörfunum var eldhúsgólf-
ið notað sem dansgólf þar sem
tekinn var snúningur við tónlist-
ina í útvarpinu. Amma hafði svo
gaman af því að dansa.
Bestu lummur og kleinur í
heimi bakaði amma á Torfastöð-
um. Einnig hafði hún brjóstsyk-
ur í náttborðsskúffunni sem var
í sérstöku uppáhaldi hjá mér.
Henni er ég og verð ævinlega
þakklát fyrir að móta heima-
kæra stúlku, herða upp með
hlýju og umhyggju sem einung-
is bestu ömmur geta framkall-
að.
Hvíldu í friði, elsku amma, og
takk fyrir okkar samleið í lífinu.
Þín nafna, eins og þú kallaðir
mig.
Sigurbjörg Á. Heiðarsdóttir.
Kær frænka mín og fóstur-
systir er látin. Hún hefur ef-
laust orðið hvíldinni fengin, eftir
heilsuleysi undanfarin ár. Mig
langar að minnast hennar í
nokkrum orðum, en árin eru að
verða 70 síðan ég kom í Ás-
brandsstaði þriggja ára gömul,
nýbúin að missa mömmu. Þar
ólst ég upp hjá móðursystkinum
mínum, með þeim Guðnýju og
Sigrúnu. Þessi bernskuár liðu
við leik og störf. Ég naut þess
að vera langyngst og margir til
að dekra við mig. Guðný var ein
af þeim. Á þessum árum fóru
ungar stúlkur til aðstoðar á öðr-
um bæjum. Hún fór t.d. að
prestsetrinu Hofi og ég fékk
sem unglingur að vera hjá henni
þar í nokkra daga. Þar sagði
hún mér margt um lífið og til-
veruna, sem ég hef oft hugsað
um.
Árin liðu, Bára dóttir hennar
fæddist og þar eignaðist ég
raunverulega eina fóstursystur
í viðbót. Svo kom til sögunnar
ungur bóndasonur, sem fór að
venja komur sínar í Ásbrands-
staði. Ég var ekkert óskaplega
hrifin, því ég vissi að þá færi
hann með þær mæðgur báðar
norður í Fagurhól, sem er í Sel-
árdal í Vopnafirði. Það fannst
mér vera óralangt í burtu. Þetta
var nú bara eigingirni í mér og
seinna breyttist það þegar ég
fór að koma í heimsókn og mér
líkar alveg ljómandi vel við hann
Alfreð. Nokkrum árum seinna
flutti svo fjölskyldan í Torfa-
staði og bjó þar myndarbúi. Á
þessum árum urðu hjónin fyrir
þeirri miklu sorg að missa
dreng í fæðingu, blessuð sé
minning hans. Tveimur árum
seinna fæddist annar drengur,
Sigurður Pétur. Á leið með
hann heim af fæðingardeildinni
á Akureyri var mér treyst til að
sitja með hann í aftursætinu á
bílnum hans pabba heim til
Vopnafjarðar. Þá voru ekki bíl-
belti eða barnastólar. Allt gekk
þó vel. Nokkrum árum seinna
fæddist svo lítil stúlka, Krist-
björg Erla, sem nú býr á Ás-
brandsstöðum ásamt sinni fjöl-
skyldu.
Guðný hafði mjög gaman af
söng og dansi og lærði meira að
segja aðeins á orgel í Fagradal,
en þar var hún í nokkrar vikur.
Hún sagði oft að sig hefði lang-
að að læra meira en úr því varð
ekki. Erla dóttir hennar og börn
hafa haft meiri tækifæri til þess
og hún naut þess að hlusta á þau
spila fyrir sig. Handavinna var
hennar líf og yndi og marga flík-
ina saumaði hún á mig.
Guðný og Alfreð ferðuðust
um landið þegar tími gafst og
komu nokkrum sinnum til okkar
Hermanns á Höfn. Það voru
alltaf góðar stundir og margt
rifjað upp.
Síðast hittum við Guðnýju í
byrjun júlí á hjúkrunarheim-
ilinu Sundabúð, en þar hefur
hún dvalið síðustu árin. Þá voru
kraftarnir að dvína en sama
hugsunin um okkar fólk. Ég
fann samt þá að þetta yrði
sennilega í síðasta skiptið sem
við myndum hitta hana. Það
verður alltaf tómarúm þegar ná-
kominn ættingi deyr, en huggun
að eftir langa ævi er hvíldin oft-
ast kærkomin.
Ég vil að lokum þakka Guð-
nýju öll gömlu árin og við Her-
mann og okkar fjölskylda vott-
um Alfreð og afkomendum
þeirra innilega samúð. Einnig
systkinum hennar, Gunnari,
Sigrúnu og Láru.
Blessuð sé minning þín.
Þín frænka,
Heiðrún.
Guðný Sigurbjörg
Runólfsdóttir
Siggu Eyþórs
kynntust flest okk-
ar haustið 1981
þegar hún tók við
leiklistarhópnum í
Hagaskóla. Frá fyrsta degi kom
aldrei annað til tals en að hóp-
urinn skapaði sín eigin verk.
Sem leikstjóri setti Sigga eflaust
mark sitt á lokaútkomuna, en
aldrei svo einhverjum þætti hún
taka af okkur völdin. Á þessum
árum vann Sigga jafnframt
barna- og unglingaefni fyrir
Ríkisútvarpið, þar sem hún
beitti svipuðum vinnubrögðum.
Hún treysti börnum og ungling-
um til að skapa eigið efni en
hjálpaði til við framsetninguna
þegar þurfti. Sigga fór enda ein-
hvern veginn svo létt með að
samsama sig hverjum þeim sem
hún vann með þá stundina.
Óhætt er að fullyrða að við er-
um orðin ansi mörg sem nutum
Sigríður
Eyþórsdóttir
✝ Sigríður Ey-þórsdóttir
fæddist 21. ágúst
1940. Hún lést 22.
júlí. Útför Sigríðar
fór fram 3. ágúst
2016.
þeirra forréttinda
að vinna með henni,
í Hagaskóla sem og
víðar.
Á framhalds-
skólaárunum var
enginn leiklistar-
tengdur vettvangur
óháður skólunum í
borginni. Okkur
langaði þó að vinna
frekar saman og
þegar fréttist af
norrænni leiklistarhátíð fyrir
leikhópa var haldið á fund
Siggu. Hún þurfti ekki að hugsa
sig um, tók að sér leikstjórn og
fékk jafnframt son sinn, Eyþór,
til liðs við hópinn. Ungmenna-
leikfélagið „Veit mamma hvað
ég vil?“ var stofnað í mars 1985
því nú skyldi haldið í víking á
leiklistarhátíð í Finnlandi með
samnefnt leikrit. Efnistökin
voru í samræmi við nafngiftina
nema kannski hvað Siggu varð-
aði, enda fannst okkur hún eina
mamman sem vissi hvað við
vildum. Leikritið sömdum við að
mestu á stofugólfinu heima hjá
Siggu og eins í húsinu góða á
Eyrarbakka, þangað sem við
sóttum innblástur í verkið.
Ferðin til Finnlands er okkur
afar minnisstæð fyrir margar
sakir, ekki síst þó samveran
með Siggu Eyþórs sem ávallt
hafði ráð undir rifi hverju og
létti öllum lund með sínum
skemmtilega og oft hárbeitta
húmor. Í framhaldinu var hóp-
urinn stækkaður frekar, taldi á
endanum á annað hundrað ung-
menna og setti upp fjölmörg
verk. Stærsta sýningin var ef-
laust götuleikhúsið á afmæli
Reykjavíkurborgar þar sem há-
punkturinn var þegar ógurlegt
skrímsli varnaði för um Tjarn-
arbrúna, en var loks fjarlægt af
þyrlusveit landhelgisgæslunnar
við mikinn fögnuð áhorfenda.
Nokkrum árum síðar þegar fé-
lagið var lagt niður komu í ljós
einhverjar eignir á bankabók.
Þeim fjármunum var að hluta
varið í að heiðra óeigingjarnt
framlag Siggu og afganginum
ánafnað Bandalagi íslenskra
áhugaleikfélaga til kaupa á
stórri ljósritunarvél. Formanni
bandalagsins varð að orði að
aldrei hefði leikfélagi verið slitið
með þvílíkum kostum.
Þegar sól hnígur sitja minn-
ingar eftir um ókomna tíð. Sig-
ríður Eyþórsdóttir var okkur
mentor og mikill áhrifavaldur á
uppvaxtarárunum, en ekki síður
kær vinur allt til enda. Fyrir
það verðum við ævinlega þakk-
lát.
Ásdís Ingþórsdóttir, Felix
Bergsson, Gunnar Pálsson,
Hilmir Snær Guðnason,
Vilhjálmur Hjálmarsson og
Þórir Bergsson.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Okkar elskulegi sonur,
EINAR ÁRNI ÞORFINNSSON,
Vallargerði 26, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Lindakirkju
mánudaginn 15. ágúst klukkan 13.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á ÍFR.
.
Soffía Guðmundsdóttir, Þorfinnur Finnlaugsson.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BERGUR JÓNSSON,
Hverfisgötu 33, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 13. Blóm
og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Hjartaheill.
.
Gunnhildur B. Þorsteinsdóttir,
Ólöf Bergsdóttir, Jóhann V. Sveinbjörnsson,
Svanhildur M. Bergsdóttir, Rúnar Þór Egilsson,
Þorbjörg Bergsdóttir, Þórður Steinar Lárusson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AUÐUR HAUKSDÓTTIR,
Lindargötu 57, Reykjavík,
áður Kirkjuvegi 17, Selfossi,
lést á Landspítalanum laugardaginn
6. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 15. ágúst klukkan 13.
.
Ólöf Lilja Sigurðardóttir, Davíð Björnsson,
Jóhannes Eggertsson, Herdís Halla Ingimundard.,
Baldvin Eggertsson,
Kjartan H. Eggertsson, Guðrún Þóra Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir minn,
GUNNAR SIGFÚS STEFÁNSSON,
Neðribæ, Borgarhöfn í Suðursveit,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn í
Hornafirði, 9. ágúst. Útför fer fram frá
Kálfafellsstaðarkirkju fimmtudaginn 18.
ágúst klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafa- og minningarsjóð
Skjólgarðs.
.
Þóra Guðríður Stefánsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVAVAR ÁGÚSTSSON,
Grandavegi 11, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 27. júlí.
Útför hans fer fram 17. ágúst klukkan 15 í
Fossvogskirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð
líknardeildar og heimahlynningar Landspítalans.
.
Sif Svavarsdóttir,
Jón Már Svavarsson, Sandra Maria Troelsen,
Rúnar Ágúst Svavarsson, Helga Maggý Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÖRUNDUR ÁKASON,
Lindargötu 20,
lést að heimili sínu 9. ágúst. Útförin fer fram
frá kirkju Óháða safnaðarins mánudaginn
15. ágúst klukkan 15.
.
Aðalsteinn, Ylfa og fjölskyldur.