Morgunblaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016
✝ Margrét AnnaJónsdóttir
fæddist á Ísafirði
20. júlí 1925. Hún
lést á Landspítalan-
um 27. september
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Páls-
son Andrésson,
fæddur 18. maí
1889, d. 3. febrúar
1970, og Þorgerður
Kristjánsdóttir, f. 17. ágúst
1888, d. 5. apríl 1935.
Systkini Margrétar eru Björg
Aðalheiður Jónsdóttir, f. 1915,
d. 1998, Kristján Jón Markús
Jónsson, f. 1916, d. 1918, Krist-
ján Jón Magnús Jónsson, f.
1918, d. 2002, Tryggvi Andrés
Jónsson, f. 1920, d. 2002, Guð-
björg Rósa Jónsdóttir, f. 1921,
d. 2014, Þorgerður Sigríður
Jónsdóttir, f. 1922, d. 2003,
Lovísa Guðrún Jónsdóttir, f.
1924, d. 2003, Sigurbjörg Ásta
Jónsdóttir, f. 1926, og Valdimar
Sigurbjörn Jónsson, f. 1928, d.
2001.
Margrét giftist 24. desember
1950 Sigurði Gunnsteinssyni, f.
4. febrúar 1925, d. 1. mars 2008,
foreldrar hans voru hjónin
Gunnsteinn Eyjólfsson, f. 1893,
d. 1972, og Gróa Þorleifsdóttir,
f. 1896, d. 1991. Börn Margrétar
og Sigurðar eru: 1)Gunnsteinn
Sigurðsson, fv. skólastjóri og
bæjarstjóri í Kópavogi, f. 26.
ágúst 1950, maki Dýrleif Egils-
Baldur Hrafn. b) Sigurður, f.
1986, í sambúð með Ástu Rakel
Hafsteinsdóttur, f. 1987. Börn
þeirra eru Dagur, Karen Eva og
Jón Hafsteinn. c) Lena Margrét,
f. 1998. Fyrir á Jón Grétar dótt-
urina Maríu, f. 1977, gift Helga
Hjörleifssyni, f. 1979. Börn
þeirra eru: Berglind Rán, Arn-
heiður og Þorgerður Freyja. 4)
Anna Sigríður Sigurðardóttir
skrifstofumaður, f. 1. febrúar
1966, maki Guðni Einarsson,
forstjóri/rafeindarvirki, f. 14.
maí 1969. Börn þeirra eru: a)
Einar, f. 1988, unnusta Rut Val-
geirsdóttir, f. 1988. b) Sigrún
Anna, f. 1993. c) Ásdís Eva, f.
2004.
Starfsferill Margrétar hófst á
Ísafirði en hún starfaði í Félags-
bakaríinu þar. Þaðan lá leið
hennar í síldarvinnslu á Siglu-
firði áður en hún fór til Vest-
mannaeyja til að aðstoða systur
sína sem þar bjó. Í Vestmanna-
eyjum starfaði Margrét m.a. við
Efnalaugina Straum, þar sem
hún kynnist maka sínum Sig-
urði. Árið 1958 flutti fjölskyld-
an, þá komin með tvö börn, bú-
ferlum frá Vestmannaeyjum og
settist að í Kópavogi þar sem
hún bjó til æviloka. Á árum sín-
um í Kópavogi starfaði Margrét
sem húsmóðir, vann í fisk-
vinnslu og lengi við verslunar-
störf bæði í Liverpool og Hatta-
búð Reykjavíkur. Margrét var
virk í tengslum við skátastarf í
Kópavogi og starfaði með Urt-
um sem samanstóðu af mæðrum
skáta og hjálparsveitafólks í
Kópavogi, einnig var hún virk í
Kvenfélagi Kópavogs.
Margrét Anna verður jarð-
sungin frá Digraneskirkju í dag,
6. október 2016, klukkan 13.
dóttir, fv. náms-
ráðgjafi og kenn-
ari, f. 4. apríl 1953.
Börn þeirra eru: a)
Ester, f. 1971, maki
Már Þórarinsson, f.
1971. Börn þeirra
eru Rakel, Arnór
Már, Gunnsteinn
Már og Hrannar
Már. b) Árni, f.
1974, maki Unnur
Birna Reynisdóttir,
f. 1976. Barn þeirra er Dýrleif
Árný, fyrir á Unnur dæturnar
Angelinu Sigríði og Viktoriu
Cristínu. c)Hallfríður, f. 1980.
Barn hennar er Sóley Björk. d)
Sigríður Alma, f. 1986, í sambúð
með Ásgeiri Hauki Einarssyni,
f. 1985. Börn þeirra eru Að-
alsteinn Egill og Guðný Rut. 2)
Þorgerður Ester Sigurðardóttir
markaðsstjóri, f. 24. júní 1953,
maki Einar Ólafsson forstjóri, f.
29. febrúar 1956. Börn þeirra
eru: a) Ólafur Páll, f. 1982, í
sambúð með Þóru Hrund Guð-
brandsdóttur, f. 1986. Barn
þeirra er Einar Kári. b)Margrét
Anna, f. 1984, í sambúð með
Halldóri Brynjari Halldórssyni,
f. 1984. 3) Jón Grétar Sigurðs-
son, flugmaður/flugvirki/-
forstjóri, f. 5. janúar 1959, maki
Sveinbjörg Eggertsdóttir fjár-
málastjóri, f. 18. nóvember
1960. Börn þeirra eru: a)Guðný
Lára, f. 1984, í sambúð með
Brynjari Eiríkssyni, f. 1982.
Börn þeirra eru Þórdís Edda og
Móðir mín, Margrét Anna
Jónsdóttir, fæddist á Hlíðarenda
á Ísafirði 20. júlí 1925. Systkinin
á Hlíðarenda voru 10 og var
mamma áttunda í röðinni. Aðeins
Ásta systir hennar er eftirlifandi
af þessum stóra systkinahópi.
Samheldni barnanna á Hlíðar-
enda var mikil. Móðir mín var
mjög ung þegar systkinin misstu
móður sína, en móðursystir
hennar Guðrún kom þá inn á
heimilið og gekk þeim í móður-
stað. Á Hlíðarenda var rekið
myndarlegt bú með bæði kýr og
kindur. Heyskapur skipaði því
stóran sess. Jón afi minn stjórn-
aði barnahópnum af miklum
skörungsskap við þessi störf.
Heyjað var inni á Fossum og í
Súðavík, en þangað var um lang-
an veg að fara.
Móðir mín var ung þegar hún
yfirgaf Ísafjörð og hélt til Siglu-
fjarðar með Ástu systur sinni í
síldarvinnu. Samband þeirra
tveggja var alla tíð mjög náið og
mikill samgangur á milli fjöl-
skyldna þeirra.
Leið mömmu lá síðan til Vest-
mannaeyja þar sem foreldrar
mínir kynntust. Þau unnu saman
í Efnalauginni Straumi, sem faðir
minn rak. Jafnframt vann hann
sem umboðsmaður Loftleiða í
Vestmannaeyjum og sá um flugið
þar. Í Vestmannaeyjum byggðu
foreldrar mínir sér hús að Hilm-
isgötu 13. Árið 1958 flutti fjöl-
skyldan í Kópavog að Lindavegi
7, sem síðar varð Hrauntunga 7. Í
Kópavogi hefur móðir mín búið
allar götur síðan.
Fjölskyldan var móður minni
afskaplega mikils virði. Hún
fylgdist með afkomendunum af
lífi og sál. Setti sig inn í allt sem
þeir tóku sér fyrir hendur og tók
þátt eins og hún gat. Móðir mín
var stálminnug fram á síðasta
dag. Mundi eftir öllum afmælis-
dögum og vissi hvað allir voru að
sýsla við. Oft var glatt á hjalla við
eldhúsborðið hjá henni þar sem
alltaf var til heimabakað meðlæti.
Móðir mín hafði alltaf mikla
þörf fyrir að hreyfa sig og fara út
á meðal fólks. Hún átti líka lengi
hjól sem hún notaði mikið. Hún
var mjög félagslynd. Var í hópi
skátamæðra sem kölluðu sig Urt-
urnar, var í Kvenfélagi Kópavogs
og tók þátt í félagsstarfi eldri
borgara. Hún var í dagvistun í
Sunnuhlíð tvo daga í viku síðustu
árin. Þar naut hún frábærrar
umönnunar sem vert er að þakka
fyrir.
Móðir mín var lengst af mjög
heilsuhraust og svarað yfirleitt
um hæl þegar spurt var um líðan
hennar: „Ég er betri í dag en í
gær.“
Þegar kemur að kveðjustund
er mér efst í huga hvað hún var
okkur og þakklæti fyrir öll árin
sem hennar naut við.
Því aðeins færð þú heiðrað og metið
þína móður,
að minning hennar verði þér alltaf
hrein og skír,
og veki hjá þér löngun til að vera
öðrum góður
og vaxa inn í himin þar sem
kærleikurinn býr.
(Davíð Stefánsson)
Gunnsteinn Sigurðsson.
Í dag kveðjum við elskulega
móður okkar með miklum trega
og söknuði. Eftir stutt en mjög
erfið veikindi hefur hún kvatt sitt
jarðneska líf.
Elsku mamma, þín er og verð-
ur sárt saknað, einstök móðir og
vinur okkar allra og ömmu-
barnanna allra. Uppeldinu var
sinnt af hjartahlýju og gæsku.
Margs er að minnast, elsku
mamma, og vert er að nefna allar
ferðirnar sem við fórum saman
innanlands og utan, samheldin
fjölskylda með eindæmum, við
kusum að lifa lífinu saman, taka
þátt í daglegu amstri hvert með
öðru. Öll höfum við börnin og
flest barnabörnin verið búsett í
Kópavogi í næsta nágrenni við
þig og pabba. Mömmu fannst
gott að vita af okkur innan seil-
ingar og við af henni, eins og sagt
er.
Vinur barnabarnanna varstu
og tíðar heimsóknir báru vitni um
slíkt. Gaman fannst þér að grín-
ast með þeim og þú vissir alltaf
hvað hvert og eitt var að aðhaf-
ast. Öll afmæli í fjölskyldunni
mættir þú í og þú varst alla tíð
mikil félagsvera og vildir vera
innan um annað fólk, taka þátt í
félagsstarfi og láta gott af þér
leiða.
Yndislegt var að fylgjast með
ykkur Urtukonum hittast hvern
mánudagsmorgun yfir kaffibolla,
sem þú gast tekið þátt í fram yfir
90 ára afmælið og Jórunn var svo
elskuleg að sækja þig á bílnum
sínum. Félagsstarfi aldraðra í
Kópavogi hafðir þú mikla ánægju
af og eins starfsemi Kvenfélags
Kópavogs. Margar dagsferðirnar
fórstu með þeim í gegnum árin.
Dagskráin var vel skipulögð alla
vikuna allt fram undir það síðasta
– Urtukonur á mánudögum –
Sunnuhlíð á þriðjudögum – Jó-
hanna að þrífa á miðvikudögum –
Sunnuhlíð á fimmtudögum, já svo
sagðist þú eiga frí á föstudögum
og mættir sofa út, en vonaðir að
það yrðu nú matarboð eða eitt-
hvað um að vera yfir helgina og
ekki var það verra ef þú fékkst
bíltúr í leiðinni. Skemmtilega
ferð áttum við stelpurnar með
þér í Bíó Paradís að sjá bíómynd
frá Ísafirði sl. vetur og að lokinni
mynd var komið við á Hamborg-
arabúllunni og keyptir hamborg-
arar og franskar og haldið heim
til þín með góðgætið. Svona
stundir áttum við margar og er
yndislegt að minnast.
Þú varst höfðinginn í fjölskyld-
unni okkar. Þú varst alltaf til
staðar fyrir okkur og við gerðum
okkar allra besta til að vera til
staðar fyrir þig. Þú ert og verður
fyrirmynd okkar á svo mörgum
sviðum og munum við reyna okk-
ar allra besta og fara að fordæmi
ykkar pabba hvað varðar fjöl-
skyldutenginguna og önnur
tengsl.
Margs er að minnast og margs
er að sakna, en eitt er víst að allar
þessar dýrmætu stundir og
minningar með þér munum við
varðveita og ylja okkur við um
ókomin ár. Með miklu þakklæti
fyrir að hafa átt þig að sem móð-
ur og besta vin alla þessa löngu
ævi og kveðjum við þig og biðjum
góðan Guð að blessa þig og erum
fullviss um að pabbi hefur tekið
vel á móti elskunni sinni.
Elskulega móðir mín,
minnist ég við gæðin þín,
þegar geisli um gluggann minn
af góðvild sinni kemur inn.
(Elín Sigurðardóttir)
Jón Grétar og Sveinbjörg,
Þorgerður Ester og Einar,
Anna Sigríður og Guðni.
Elsku amma, það er mikil sorg
í hjörtum okkar nú þegar þú hef-
ur kvatt okkur. Dagurinn sem þú
kvaddir var mjög fallegur, litir
haustsins skörtuðu sínu fegursta
og fuglarnir sungu í góða veðr-
inu.
Við munum varðveita allar
þær minningar sem við eigum um
þig í hjörtum okkar. Þakklæti er
okkur efst í huga þegar við minn-
umst þín, það hafa verið algjör
forréttindi að alast upp með
ömmu eins og þér. Þú elskaðir
þegar við fjölskyldan komum
saman og gerðum okkur glaðan
dag og vildir þú alltaf hafa okkur
í kringum þig. Þú sýndir okkur
svo mikla ást, sama hvað gekk á
og varst ávallt stolt af okkur.
Þú tókst okkur alltaf opnum
örmum og vorum við ávallt vel-
komin í heimsókn. Það var alltaf
gaman að koma í heimsókn til afa
og ömmu á Hlíðarvegi, það var
alltaf nóg að gerast þar. Eftir
andlát afa Sigga var ekki síður
skemmtilegt að koma í heimsókn
til ömmu Möggu í Vogatunguna,
þú tókst alltaf vel á móti okkur og
vildir okkur allt vel. Amma var
alltaf fyrst með fréttirnar, hún
vissi allt um alla fjölskyldumeð-
limina sem eru nú orðnir ansi
margir. Alltaf var boðið upp á
bakkelsi eða brjóstsykur.
Amma, þú naust þess alltaf að
vera vel tilhöfð og ekki léstu spít-
aladvölina síðustu vikur stoppa
þig í því og vildir þú alltaf vera
með varalit. Reglulega var farið í
lagningu og skipt um dress áður
en farið var út úr húsi.
Morgunninn sem við komum
og kvöddum þig í hinsta sinn er
okkur afar dýrmætur.
Við erum afar stolt af þér,
elsku amma. Þú færðir heiminum
fjögur heilbrigð börn og settir á
laggirnar samheldna, metnaðar-
fulla og góða fjölskyldu. Þú hefur
verið mikil fyrirmynd fyrir okkur
og viljum við þakka þér fyrir allar
þær góðu stundir sem við höfum
átt saman og hversu mikið þú
hefur kennt okkur.
Þó söknuðurinn sé mikill þá
vitum við að þú ert frjáls ferða
þinna og kemst allt sem þig lang-
ar að fara. Við erum alveg viss
um að það hafi verið tekið vel á
móti þér, enda hvar sem þú hefur
staldrað við þá hefur þú verið vin-
mörg og fremstur í flokki hefur
verið afi Siggi og aðrir fjölskyldu-
meðlimir og allir hinir vinirnir
hafa fylgt fast á eftir og umvafið
þig allri þeirri ást, hlýju og ham-
ingju sem þú átt skilið. Hvíldu í
friði, elsku amma.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Einar, Sigrún Anna
og Ásdís Eva Guðnabörn.
Þá hefur hún elsku amma okk-
ar kvatt þennan heim og langar
okkur að minnast hennar með
nokkrum orðum.
Það er margt sem kemur í
hugann á kveðjustund. Amma
var einstök kona og var fyrir-
mynd okkar sem eftir stöndum.
Minningabrot innihalda sunnu-
dagsmatarboð á Hlíðarveginum,
amma í essinu sínu að passa að
allir fengju nóg af öllu. Kvöldkaffi
með mjólk og matarkexi, uppá-
haldssætið var hornsætið í eld-
húsinu. Ávaxtagrautur minnir á
ömmu. Allar ferðirnar í Nesvík,
fjöruferðir, grill og varðeldur.
Alltaf vildi amma hafa fólkið sitt
hjá sér og var hún alla tíð með af-
mælisdaga á hreinu og fylgdist
vel með öllum í fjölskyldunni.
Hún var mjög félagslynd og sótti
hún meðal annars félagsstarf
aldraðra og var í Urtunum, hópi
skátamæðra.
Amma var alltaf mjög dugleg
að baka, við verðum að nefna
jólakökur og marengs sem hvort
tveggja skipar stóran sess hjá
fjölskyldunni. Síðustu ár hefur
hefð myndast í stórfjölskyldunni
að jólakökukeppni eða annars
konar baksturskeppni er haldin í
byrjun aðventu þar sem amma
Magga ásamt fleirum sá um dóm-
gæslu.
Við kvenfólkið í fjölskyldunni
höfum síðustu ár einnig haft
saumaklúbba hjá ömmu Möggu
sem hún naut mjög.
Dugnaður og elja einkenndu
ömmu, hún var alla tíð mjög dug-
leg að hreyfa sig, gekk mikið og
hjólaði. Enda bar hún aldur sinn
vel og var kvik í hreyfingum og
teinrétt. Amma kom alltaf hreint
fram og sagði hlutina eins og þeir
voru, oft á eftirminnilegan hátt.
Amma Magga og afi Siggi voru
samrýnd hjón, afi kvaddi fyrir
átta árum og við trúum því að þau
séu sameinuð núna í Guðs ríki.
Elsku amma Magga, takk fyrir
allt sem þú hefur gefið og kennt
okkur.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf
þér.
Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan, sem ól þig og
þér helgaði sitt líf.
Ó, hún var ambáttin hljóð
hún var ástkonan rjóð
hún var amma svo fróð ...
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla’ á fold.
Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöld-
ur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Ástarkveðjur,
Ester, Árni, Hallfríður
og Sigríður Alma
Gunnsteinsbörn.
Það er komið að kveðjustund.
Við kveðjum trausta, góða og
fallega konu, móðursystur okkar.
Magga systir var hún ávallt köll-
uð í okkar fjölskyldu.
Magga hefur skilað farsælu
starfi á langri ævi líkt og hennar
kynslóð sem lagt hefur grunn að
þeirri velsæld sem við búum við í
dag. Magga ólst upp á Hlíðar-
enda á Ísafirði í stórum systkina-
hópi sem alinn var upp í vinnu-
semi og oft löngum vinnudögum.
Skólaganga var því ekki löng en
hefðbundin. Engu að síður var
hópurinn samhentur en þau
misstu móður sína ung. Á Hlíð-
arenda bjó systkinahópurinn
með afa og Gunnu frænku ásamt
fleiri fjölskyldum um tíma. Hús-
næði var af skornum skammti.
Þannig var því farið með Möggu
og hennar fjölskyldu að alltaf var
pláss fyrir okkur bræður að gista
um lengri eða skemmri tíma, þótt
fjögur börn væru þar fyrir.
Áfram héldu þessi góðu tengsl
eftir að við fluttum frá Eyjum,
heimagangar og ávallt velkomn-
ir.
Það er margs að minnast,
sumarfríin, afmælin, hnallþór-
urnar, hátíðir og ferðalög. Okkar
fjölskyldubönd hafa alla tíð verið
mjög sterk. Krakkarnir með
sömu áhugamál í gegnum skáta-
starf ofl. Einnig fengum við
krakkarnir tækifæri til að fara til
Ísafjarðar um sumartíma og taka
þátt í heyskap á Fossum í Engi-
dal eða við heimatúnið þar sem
slegið var og rakað upp á gamla
mátann.
Magga hefur ávallt fylgst vel
með okkur bræðrum og henni var
annt um okkar fjölskyldur. Móðir
okkar hefur misst góða systur.
Þær voru mjög nánar, sem kom
enn betur í ljós hin síðari ár með
daglegu sambandi og heimsókn-
um. Sama má segja um okkur hin
sem eftir stöndum, börn, ætt-
ingja og vini.
Við bræður þökkum samfylgd-
ina. Takk fyrir allt gamalt og
gott.
Margrét Anna
Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju,
laugardaginn 8. október klukkan 14.
Innilegar þakkir til allra sem hafa auðsýnt okkur samúð og
hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar á
Sjúkrahúsinu á Akranesi fyrir góða umönnun.
.
Ásgrímur Stefánsson, Hólmfríður Salóme Jónsd.,
Anna Kristín Stefánsdóttir, Sveinn Haukur Pétursson,
ömmu- og langömmubörn.
Okkar ástkæra
EDDA HEIÐRÚN BACKMAN
lést 1. október. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju mánudaginn 10. október
klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á styrktarsjóð barna hennar,
0301-13-193584 kt: 280989-3129.
.
Arnmundur Ernst B. Björnsson,
Ellen Margrét Bæhrenz,
Unnur Birna J. Backman,
Jóhanna Dagfríður Arnmundsdóttir Backman,
Inga Jónína Backman,
Friðrik Páll Jónsson,
Ernst Jóhannes Backman,
Ágústa Hreinsdóttir,
Valgerður Bergsdóttir,
og fjölskyldur.