Morgunblaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 7
Við undirrituð, rektorar allra háskóla á Íslandi, lýsum þungum áhyggjum
af málefnum háskóla landsins. Fjármálaáætlun hins opinbera fyrir árin
2017–2021 gerir ráð fyrir heildarútgjaldaaukningu til uppbyggingar ýmissa
innviða samfélagsins - en skilur háskólana eftir.
Úttektir Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sýna að íslenskir
háskólar eru verulega undirfjármagnaðir og fá helmingi lægra framlag á
hvern nemanda en háskólar annars staðar á Norðurlöndum.
Háskólar eru ómissandi fyrir þróun íslensks samfélags. Þeir búa ungt fólk
undir þátttöku í atvinnulífi og samfélagi og gera því kleift að hafa
frumkvæði og áhrif til farsældar fyrir þjóðfélagið allt. Við fullyrðum að
áframhaldandi undirfjármögnun háskólastigsins mun hafa verulega
neikvæð áhrif á háskólanám, rannsóknir, menningarstarf og nýsköpun
og þar með samfélagsþróun og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.
Við óbreytt ástand geta háskólarnir ekki starfað áfram með eðlilegum
hætti. Háskólastarfi á landinu er stefnt í hættu.
Við skorum því á stjórnmálamenn, sem nú bjóða sig fram til Alþingis, að
láta verkin tala. Fjárfesting í háskólum er fjárfesting í velsæld, atvinnutæki-
færum og í framtíðinni.
Jón Atli Benediktsson
rektor Háskóla Íslands
HÁSKÓLAR Í HÆTTU
- yfirlýsing frá rektorum háskóla á Íslandi
Ari Kristinn Jónsson
rektor Háskólans í Reykjavík
Eyjólfur Guðmundsson
rektor Háskólans á Akureyri
Vilhjálmur Egilsson
rektor Háskólans á Bifröst
Fríða Björk Ingvarsdóttir
rektor Listaháskóla Íslands
Björn Þorsteinsson
rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Erla Björk Örnólfsdóttir
rektor Háskólans á Hólum