Morgunblaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016
Anna María Guð-mann, myndlist-armaður, kenn-
ari og kroppatemjari,
eða Amí eins og hún er
oftast kölluð, á 50 ára
afmæli í dag. Hún kenn-
ir á myndlistarsviði við
Verkmenntaskólann á
Akureyri, en það skipt-
ist í textílsvið og mynd-
listarsvið.
„Það eru um 180
nemendur á myndlist-
arbrautinni og 10 kenn-
arar sem kenna á
brautinni. Nei, ég kenni
engar bóknáms-
greinar,“ segir Amí að-
spurð. „Ég kenni verk-
lega partinn sem er það
skemmtilega.“
Amí kennir einnig
líkamsrækt á líkams-
ræktarstöðinni Átaki.
„Ég er búin að kenna í
35 ár í líkamsrækt og
hef tekið allan skalann þar, verið í hlaupum, Jane Fonda leikfimi, pöll-
um, hjólum, að lyfta, í þrekhringjum og fleira og er nánast komin
hringinn og komin svolítið aftur þar sem ég byrjaði.
Svo er maður alltaf eitthvað að mála og teikna, ég er með sýningu í
Ráðhúsinu á Akureyri en hún klárast í endaðan október.
Það er í rauninni svo mikið að gera hjá mér akkúrat núna að ég næ
ekki að gera neitt stórfenglegt í tilefni afmælisins. Það verða bara
fjölskylda og vinir sem hittast á sunnudaginn.
Á afmælisdaginn sjálfan fer ég að sjálfsögðu í vinnuna og dúlla svo
með strákunum mínum seinna um daginn, aðrir fjölskyldumeðlimir
eru út úr bænum. Við strákarnir gerum alveg örugglega eitthvað
huggulegt og maður fóðrar alveg pottþétt aukakílóin. Síðan er planið
að við fjölskyldan förum til útlanda en það gengur mjög illa að ákveða
hvert. Bölvað bras að velja, það er svo mikið í boði, en stefnan er sett á
sólríkt og gott veður.“
Eiginmaður Amí er Adam Traustason, verkfræðingur hjá Eflu.
Synir þeirra eru Trausti Lúkas 14 ára og Breki Mikael 12 ára. Fyrir
átti Amí Þóreyju Lísu Þórisdóttur 21 árs, en hún er nemi í fatahönnun
í Bournemouth á Englandi og er sárt saknað.
Á öskudaginn Amí Guðmann.
Ætlar að fóðra
aukakílóin í dag
Amí Guðmann er fimmtug í dag
G
uðrún fæddist í Reykja-
vík 6.10. 1926 og ólst
þar upp. Þá bjuggu for-
eldrar hennar á Grett-
isgötu. Fjölskyldan bjó
við Haðarstíg, Barónsstíg og víðar
um bæinn þar til foreldrar hennar
festu kaup á íbúð í verkamannabú-
stöðunum í Meðalholti 8: „Pabbi var
stýrimaður og mikið fjarverandi. Ég
var flest sumur með mömmu austur
á Eyrarbakka, oftast hjá Jóu á Bergi
sem var uppeldissystir mömmu. Svo
fór ég með mömmu til Siglufjarðar
sumarið 1939. Togarinn sem pabbi
var á landaði þar svo við dvöldum þar
sumarlangt til að hitta pabba oftar.“
Guðrún var í Austurbæjarskóla
með einstakan kennara, Jón Þórð-
arson, föður Megasar: „ Jón hvatti
mig til að fara í menntaskóla. For-
eldrar mínir studdu það eindregið
svo haustið 1940 byrjaði ég í MR. Ég
var dúx á stúdentsprófi og átti þess
vegna kost á fimm ára styrk til náms
í útlöndum. En ég veiktist í stúdents-
prófunum og hætti því við þau áform.
Þess í stað hóf ég nám í ensku og
frönsku við HÍ. Ég var óánægð í því
námi og byrjaði í læknisfræði í árs-
byrjun 1947. Í miðju læknanámi varð
ég ófrísk og við Páll eignuðumst tví-
bura í desember 1949. Flestum þótti
sjálfsagt að ég hætti í læknanáminu,
komin með tvö börn. En mamma
mátti ekki heyra á það minnst. Hún
sá um tvíburana meðan ég las og
Guðrún Jónsdóttir geðlæknir – 90 ára
Fjölskyldan Guðrún og Páll með börnum sínum Sigurði Páli, Ingibjörgu, Dögg, Jónínu og Jóni Rúnari.
Geðlæknir með allt sitt
traust á Skaparanum
Læknahjónin Guðrún og Páll hafa lifað í farsælu hjónabandi í rúm 67 ár.
Hella Emilía Nótt Arons-
dóttir fæddist 1. sept-
ember 2015 kl. 9.20 á
Sjúkrahúsinu á Selfossi.
Hún vó 2.880 g og var 45
cm. Foreldrar hennar eru
Karen Sif Jónsdóttir og
Aron Bjarki Björnsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSkútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Opnaðu
einfaldlega
– með Yale Doorman
Nýi Yale Doorman stafræni lásinn er einföld og örugg lausn til að opna og
loka útihurðum og innihurðum (IP55). Passar í sams konar úrtak og ASSA
læsingar. Lásinn er hægt að opna með því að slá inn númer, nota kort með
rafrænum nema (Mifare, 3 kort fylgja með) eða með fjarstýringu (aukahlutur).
Mjög auðvelt er að skipta um númer, skipta út korti eða fjarstýringu. Alltaf er
hægt að komast inn með númeri og vandamálið með að gleyma lykli er úr
sögunni. Tengingar eru einfaldar og endingartími rafhlaða er langur.
Útsölustaðir:
Láshúsið ehf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík, sími 557 5100.
Bauhaus, Lambhagavegi 2–4, 113 Reykjavík, sími 515 0800.
Neyðarþjónustan ehf, Skútuvogi 11, 104 Reykjavík, sími 510 8888.