Morgunblaðið - 06.10.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016
Í yfirliti frá Reykjavíkurborg um
mætingar borgarfulltrúa frá
1.1.2016 til 30.6.2016 leyndist villa.
Mætingarhlutfall Sóleyjar Tóm-
asdóttur (V) á fundi borgarstjórnar
var 85% en ekki 58% eins og stóð í
skjalinu.
LEIÐRÉTT
Alls sóttu 88 manns um stöður við
rannsóknir og á skipum Hafrann-
sóknastofnunar. Auglýst var eftir
rannsóknarmanni í Vestmanna-
eyjum og sóttu fjórir um það starf.
46 umsóknir bárust um stöðu há-
seta, 33 um stöðu stýrimanns og
fimm vélstjóraumsóknir. Að auki er
enn verið að taka við umsóknum
um sviðstjórastöður sem tilkomnar
eru vegna sameiningar Veiðimála-
og Hafrannsóknastofnunar.
Kristín Helgadóttur, mannauðs-
stjóri stofnunarinnar, segir í svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins að
reiknað sé með því að ráða tvo
stýrimenn og fjóra háseta og að
þeir muni hefja störf í byrjun næsta
árs. Hún segir ástæður ráðning-
anna þær að fyrirhugað sé meira
úthald á skipunum auk þess sem
ráðningarbann hafi verið hjá ríkinu
á undanförnum árum. Nokkrir
starfsmenn séu við það að fara á
eftirlaun og því sé uppsöfnuð þörf á
starfsfólki. vidar@mbl.is
88 sóttu
um starf
hjá Hafró
Uppsöfnuð þörf
hjá stofnuninni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Árni Friðriksson RE Hafrannsókna-
stofnun auglýsir eftir starfsfólki.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Fjögur Evrópuríki sendu herþotur
til móts við rússnesku Blackjack-
herflugvélarnar sem flugu í gegn-
um Evrópu til Spánar og til baka í
lok síðasta mánaðar. Morgunblaðið
greindi frá því að vélunum hafi
verið flogið 6 til 8 þúsund fetum
undir íslenskri farþegaflugvél á
leið frá Keflavík til Stokkhólms.
Í frétt sem birtist á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC, í gær segir
að Noregur, Bretland, Frakkland
og Spánn hafi öll ræst út herþotur
til að mæta rússnesku vélunum
þegar þær nálguðust lofthelgi
hvers lands. Í frétt BBC segir að
spænskir fjölmiðlar greini frá því
að aldrei hafi þurft að ræsa út her-
þotur til að mæta herþotum ann-
ars ríkis eins sunnarlega og þegar
rússnesku vélunum var flogið í
gegnum Evrópu 22. september.
Í tilkynningu frá franska varn-
armálaráðuneytinu sem vísað er til
í frétt BBC segir að Norðmenn
hefðu verið fyrstir til að taka eftir
rússnesku þotunum. Voru þá send-
ar tvær F-16 vélar til að fylgja
þeim norður fyrir Skotland. Þar
sendi breski flugherinn Typhoon-
þotu sem flaug í veg fyrir þot-
urnar þegar þær voru vestur af
Hjaltlandi. Bretar ræstu út fleiri
þotur sem voru í viðbragðsstöðu
en þær flugu ekki í veg fyrir þot-
urnar.
Þegar rússnesku þoturnar voru
vestur af Írlandi flugu Frakkar
tveimur Rafale-orrustuþotum til
móts við þær. Tvær Rafale-þotur
til viðbótar voru ræstar út af
Frökkum þegar þoturnar nálg-
uðust norðvesturströnd landsins.
Þar sendu Spánverjar tvær F-18
vélar í veg fyrir rússnesku vél-
arnar, skammt norður af Bilbao.
Þar sneru rússnesku vélarnar við
og flugu aftur til Rússlands.
BBC greinir frá því að íslensk
stjórnvöld hefðu kvartað til rúss-
neskra stjórnvalda vegna þess að
herþotunum hafi verið flogið undir
íslenska farþegaþotu.
Herþotur í veg fyrir Rússa
AFP
Herþota Norðmenn voru fyrstir til að taka eftir rússnesku herþotunum.
Noregur, Bretland, Frakkland og Spánn ræstu út þotur
Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra
hefur breytt
reglugerð um
skotvopn, skot-
færi o.fl. í þá veru
að nú er leyft að
setja hljóðdeyfa á
stóra riffla sem
nota miðkveikt
skot. Það á t.d.
við um riffla sem notaðir eru til
hreindýraveiða.
Riffileigandi verður að afla leyfis
lögreglustjóra til að kaupa hljóð-
deyfi og skal skrá deyfinn í skot-
vopnaskrá. Geyma á hljóðdeyfa í
sérútbúnum vopnaskáp. Reglugerð-
in hefur tekið gildi.
Hljóðdeyfar
leyfðir á stóra
veiðiriffla
Ólöf Nordal
SJÓNMÆLINGAR
Í OPTICAL STUDIO
Sjónmælingar (tímapantanir):
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500