Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Síða 2
Vikublað 24.–26. mars 20152 Fréttir
Á
rið 2014 var tæpur þriðjung-
ur barna ekki í reglulegu tóm-
stundastarfi. Þetta er talsvert
meiri fjöldi en árið 2009 þegar
hlutfallið var 14,3 prósent. Þetta
kemur fram í tölum sem Hagstofa
Íslands birti á mánudag.
Þar kemur meðal annars fram að
árið 2014 hafi 11,4 prósent barna á
Íslandi, á aldrinum 0 til 17 ára, búið
á heimilum sem áttu mjög erfitt með
að láta enda ná saman og 7,7 pró-
sent á heimilum sem skorti efnisleg
gæði. Þetta hlutfall lækkaði lítillega
frá árinu 2013, eða um 2,9 prósentu-
stig; hlutfallið undir lágtekjumörk-
um um 2,2 prósentustig og hlutfall-
ið sem skorti efnisleg gæði um 0,6
prósent.
Í frétt um málið á vef Hagstof-
unnar segir að það sé fremur fá-
títt að börn á Íslandi skorti tiltekin
lífsgæði. Undantekningin sé þó lítil
regluleg þátttaka í tómstundaiðju.
„Árið 2014 voru 37,9 prósent barna
í lægsta fimmtungi tekjudreifingar-
innar ekki í reglulegri tómstunda-
iðju samanborið við 20,3 prósent í
hæsta fimmtungnum. Það á einnig
við um 45,1 prósent barna foreldra
sem aðeins höfðu lokið grunnnámi
samanborið við 27,5 prósent barna
foreldra sem höfðu lokið háskóla-
námi,“ segir í umfjöllun á vef Hag-
stofunnar. n
einar@dv.is
Þriðjungur ekki í tómstundastarfi
Hlutfallið hefur vaxið verulega á undanförnum árum
Efnisleg gæði 7,7 prósent
barna bjuggu á heimilum sem
skorti efnisleg gæði á síðasta ári.
5,5 milljónir
í bætur
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til
að greiða karlmanni 5,5 milljón-
ir króna vegna mistaka sem gerð
voru við greiningu þegar maður-
inn úlnliðsbrotnaði.
Maðurinn var í marki í
knattspyrnuleik þann 22. desem-
ber 2005 þegar hann fékk boltann
í höndina. Við það fettist upp á
úlnliðinn og leitaði maðurinn til
Heilsugæslustöðvarinnar í Ólafs-
vík daginn eftir. Áverkinn var
greindur sem tognun og setti vakt-
hafandi læknir þrýstingsumbúðir
um höndina.
Maðurinn leitaði aftur á
heilsugæslustöðina 17. febrúar
2006 vegna verkja og þar var hon-
um ráðlagt að nota úlnliðsskeiða-
band. Hann leitaði svo í þriðja
sinn til heilsugæslunnar þann 23.
ágúst 2006 og þá fyrst var honum
vísað til handaskurðlæknis. Þar
kom í ljós að bein var brotið við
úlnliðinn.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur kemur fram að brotið hefði að
öllum líkindum gróið hefði mað-
urinn verið settur í gips strax. Var-
anleg örorka mannsins var metin
átta prósent.
É
g gæti ekki verið klárari í
þetta,“ segir Ingólfur Ragn-
ar Axelsson, sem undirbýr sig
nú af fullum krafti fyrir það að
klífa hæsta fjallstind jarðar,
Everest.
Fjörutíu daga leiðangur
Undanfarna mánuði hefur hann
verið í Himalaja-fjöllunum í Nepal
og Norður-Indlandi þar sem hann
hefur æft stíft á degi hverjum. „Það
er myndarlegur hóll hérna við
hliðina sem er 3.500 metra hár. Ég
hef aðeins verið að klífa hann,“ seg-
ir kappinn, sem er núna staddur á
Indlandi en fer til Nepal í næstu viku
þar sem lokaundirbúningurinn fyr-
ir Everest, sem er 8.848 metra hátt,
hefst. Leiðangurinn stendur yfir í
um fjörutíu daga og stefnan er sett
á að vera kominn niður af tindinum
dagana 20. til 25. maí.
Aflýst vegna snjóflóðs
Í fyrra ætlaði hann að verða sjö-
undi eða áttundi Íslendingurinn
til að fara upp Everest en Vilborg
Arna Gissurardóttir var á sama tíma
og hann í grunnbúðum við fjallið.
Hann var búinn að koma sér vel fyr-
ir í búðunum þegar öllum leiðöngr-
um var aflýst vegna snjóflóðs sem
féll 18. apríl, í Khumbu-ísfjallinu.
Þar fórust sextán sjerpar.
Hræddur en fer varlega
Aðspurður segist Ingólfur Ragnar
að sjálfsögðu vera hræddur við að
klífa Everest, sérstaklega eftir slys-
ið í fyrra, sem er það mannskæð-
asta í sögu Everest. „Maður er alltaf
smeykur við að klífa svona hátt fjall
en það er ljóst að menn fara mun
varlegar nú, ári eftir svona stórslys.
Það þýðir samt ekkert að fara á fjall-
ið og vera skíthræddur. Það verð-
ur bara að taka ákvörðun og standa
við hana,“ segir hann og kveðst ekki
geta verið reiðubúnari en einmitt
núna. „Ég vona að ég fái heiðar-
legan möguleika á að klifra fjallið.
Það er í mínum verkahring að koma
mér í form og greiða leiðangurinn.
Ég get ekki stjórnað fjölda þátta sem
hafa áhrif á hvort ég kemst á topp-
inn. Snjóflóð eða verkföll sjerpa eru
óviðráðanlegar breytur en að sjálf-
sögðu geri ég allt sem í mínu valdi
stendur til að klára þetta,“ segir
hann.
Kostar 3,5 milljónir króna
Ingólfur er með söfnun í gangi til
að greiða hluta leiðangurskostnað-
ar og hefur meðal annars biðlað til
fyrirtækja um að styrkja hann. Þau
geta styrkt hann um 50 til 500 þús-
und krónur og fyrir hæstu upp-
hæðina býðst hann m.a. til að setja
fána þeirra á topp Everest. Everest-
leiðangur kostar frá 3,5 milljónum
króna og vonast hann til að ná að
safna sem mestu.
Var í þremur störfum
Í fyrra kom Ingólfur heim í maí og
vann þrjú störf til að klára að greiða
Everest-leiðangurinn og allt sem
honum fylgdi. Hann notaði íslensku
aðferðina og vann frá morgni til
kvölds þrjú störf, á kaffihúsi Stúd-
entakjallarans, í garðaþjónustunni
Allt fyrir garðinn og þess á milli
sem leiðsögumaður hjá Guide to
Iceland.
„Ég var loksins búinn að greiða
niður ferðina síðasta febrúar og svo
borga ég næstu ferð núna í apríl.
Þetta er bara yfirdrátturinn þangað
til ég vinn í Lottó, en án gríns þá læt-
ur maður þetta bara reddast,“ segir
Ingólfur hress. n
Það þýðir ekki að vera
skíthræddur á Everest
Ingólfur Ragnar Axelsson undirbýr sig af krafti fyrir Everest og ætlar sér upp á tindinn í maí
Ætlar sér á Everest
Ingólfur Ragnar Axelsson
vonast til að vera kominn
niður af tindi hæsta fjalls
veraldar 20. til 25. maí.
Mynd SIgtRygguR ARI
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Trúboðar í
Fjarðabyggð
Áhöfn færeyska trúboðaskipsins
Juvel II mun heimsækja Fjarða-
byggð dagana 6.–10. maí næst-
komandi. Þar ætlar áhöfn skips-
ins að kynna kristna trú fyrir
íbúum sveitarfélagsins.
Skipinu, sem var áður í eigu
dönsku landhelgisgæslunnar,
hefur síðustu sumur verið siglt til
Grænlands þar sem um tuttugu
manna áhöfn þess hefur staðið
fyrir námskeiðum um kristna trú
og gefið íbúum fátækari byggða
landsins bæði Biblíur og fatn-
að. Kristniboðastarfið á rætur að
rekja til ársins 1977 þegar hóp-
ur kristinna manna í Færeyjum
ákvað að kaupa eldri bát og fara í
trúboð til nálægra landa.
Úra og skart-
gripaverslun
Heide Glæsibæ
Við erum líka á Facebook
Tilvalin
ferming-
argjöf
„Ég var loksins
búinn að greiða
niður ferðina síðasta
febrúar og svo borga ég
næstu ferð núna í apríl.