Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Síða 24
Vikublað 24.–26. mars 20158 Veitingar - Kynningarblað
„Fagmennskan er í fyrirrúmi“
Galito á Akranesi er aðeins 10 mínútur frá Hvalfjarðargöngunum
G
alito er fjölbreyttur „fjöl-
skyldu“-veitingastaður
á Akranesi sem fagnaði
10 ára afmæli síðastliðið
haust.
„Þetta hefur gengið vel,“ segir
Hilmar Ólafsson annar eigenda
Galito, hinn er Þórður Þrastarson
og hefur hann rekið staðinn frá
upphafi.
„Við höfum lagt allan okkar
metnað og mikla vinnu í þetta hjá
okkur og við höfum fengið góð við-
brögð frá almenningi, þegar mað-
ur er í veitingarekstri úti á landi
þá verðum maður að vera í sem
flestu, þ.e.a.s. fjölbreyttum matseðli
í veitingasalnum okkar, allt frá
pítsum, hamborgurum, salötum og
samlokum upp í „fine dining“,“ segir
Hilmar.
Galito er með rétt dagsins í há-
deginu alla virka daga og keyrir út
mat til fjölda fyrirtækja.
„Við höfum alltaf verið sterkir í
veisluþjónustu og keyrum út veislur
um allt sunnanvert Vesturland og á
höfuðborgarsvæðið,“ segir Hilmar.
Galito er tilvalinn kostur fyrir þá
sem eru að keyra í gegnum göngin
og vilja eitthvað gott að borða því
það er aðeins um 5 mínutna akstur
til Akraness frá göngunum.
Galito restaurant er að Stillholti
16–18 á Akranesi, síminn er 430-
6767, netfangið galito@galito.is
Opnunartími er mánudaga til
miðvikudaga frá kl. 11.30–21.00,
fimmtudaga og föstudaga frá kl.
11.30–22.00, laugardaga frá kl.
12.00–22.00 og sunnudaga frá kl.
16.00–21.00. n
Thali-rétturinn er
sérkenni Hraðlestarinnar
Úrvals indverskur matur á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu
F
yrsti staður Hraðlestarinnar
var opnaður árið 2003 við
Hverfisgötu og í dag eru
staðirnir orðnir fjórir tals-
ins. Þeir eru á Hverfisgötu 64,
Kringlunni og Lækjargötu 8 í Reykja-
vík og Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Sagan á bak við Hraðlestina
Upphaflega var Hraðlestin opnuð
sem lítið útibú við Hverfisgötu út frá
Austur Indíafjelaginu til þess að anna
eftirspurn eftir réttum til þess að taka
með heim.
Aukin eftirspurn og mikill áhugi
Íslendinga á indverskri matargerð
leiddi fljótlega til þess að litla eldhús-
ið við Hverfisgötu var hreinlega orðið
of lítið og greinileg þörf var á fleiri
stöðum.
„Hraðlestin hefur í gegnum árin
lagt ríka áherslu á að bjóða upp á
hollan og bragðgóðan, ekta indversk-
an mat. Kryddið sem við notum flytj-
um við sérstaklega inn og höfum við
aldrei notað msg eða önnur aukaefni.
Við notum eingöngu ferskt gæðahrá-
efni og sleppum öllum sykri í matar-
gerðinni,“ segir Andrea Karlsdóttir,
markaðsstjóri Hraðlestarinnar.
Andrea segir að þau séu afskap-
lega heppin að hafa innan sinna vé-
banda sérmenntaða kokka frá Ind-
landi með áralanga reynslu og
þekkingu á indverskri matargerð.
Margir þeirra hafa verið með frá
upphafi og leggja grunninn að góðri
matar gerð Hraðlestarinnar.
„Í gegnum tíðina höfum við lagt
okkur fram við að hlusta á óskir
viðskiptavina okkar. Margir réttir
hafa bæst við matseðilinn að ósk
fastagesta og nýlega kynntum við til
sögunnar kvöldverðar Thali eftir sér-
staka beiðni frá góðum viðskiptavini.
Það er alltaf gaman að geta orðið við
óskum þeirra sem augljóslega hafa
dálæti á matargerðinni,“ segir Andr-
ea.
Vinsælustu réttirnir
Thali er einn vinsælasti rétturinn
á matseðlinum og er í raun sérkenni
Hraðlestarinnar. Thali er klassískur,
indverskur sérréttur sem saman
stendur af litlum réttum frá ólík-
um héruðum á Indlandi og er bor-
inn fram ásamt hrísgrjónum, raitha-
jógúrtsósu og naan-brauði.
Í hádeginu er boðið upp á sérstak-
an „street-food“-hádegismatseðil. Á
honum eru léttari réttir en á kvöldin,
indverskar pítsur, tikka masala naan
rolls og indverskur kjúklingaborgari
með masala-sætkartöflu frönskum
svo fátt eitt sé nefnt. Á kvöldin eru
svo hefðbundnari réttir á boðstólum
og má nefna rétti eins og hinn sívin-
sæla Tikka Masala, Chicken „65“ og
Madras.
Á matseðlinum er úrval af hollum
og bragðgóðum kjöt- og grænmetis-
réttum. Hægt er að taka matinn með
og njóta heima eða borða á staðnum.
Hraðlestin er tilvalin fyrir hópa í há-
deginu eða á kvöldin og veitingastað-
irnir í Lækjargötu og Hlíðasmára eru
afskaplega hentugir fyrir hópa, stóra
sem smáa.
Afgreiðslutími Hraðlestarinn-
ar Lækjargata 8 S. 578-3838 mán.–
fim. 11.00–22.00 fös. 11.00–23.00 lau.
17.00–23.00 sun. 17.00–22.00 Hverfis-
gata 64A S. 578-3838 virka daga:
17.00–22.00 helgar: 17.00–22.00
Hlíðasmári 8 S. 578-3838 virka
daga: 11.30–22.00 helgar: 17.00–
22.00
Kringlan S. 578-3838 mán.–mið.
11.00–18.30 fim. 11.00–21.00 fös.
11.00–19.00 lau. 11.00–18.00 sun.
13.00–18.00. n