Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Qupperneq 27
Vikublað 24.–26. mars 2015 Veitingar - Kynningarblað 11
T
ímamót hafa orðið í rekstri
hins vinsæla veitinga-
staðar Kryddlegin hjörtu:
Staðnum á Skúlagötu 17
hefur verið lokað og all-
ur kraftur lagður í starfsemina að
Hverfisgötu 33, sem er í eigin hús-
næði, en eigandinn hefur keypt
þar 360 fermetra húseign.
Veitingastaðurinn Kryddlegin
hjörtu var opnaður þann 29. ágúst
árið 2008. „Við fórum beint inn í
kreppuna,“ segir eigandinn, Íris
Hera Norðfjörð. „En það er lyginni
líkast hvað þetta er búið að
ganga vel og það er vegna
þess að við erum búnar
að vera fjandi duglegar.
Báðar dætur mínar eru
með mér á fullu í þessu
og við virkilega njót-
um þess sem við erum
að gera, ekki síst eftir
lokunina á Skúlagötu
því það er miklu auð-
veldara að einbeita sér
að rekstrinum á einum
stað.“
Hádegisverðarhlað-
borð staðarins er mjög
rómað, en þar eru í boði
fjórar frábærar súpur
með salatbarnum.
Þriggja rétta leikhús matseðill hef-
ur líka gert stormandi lukku en
vinsælt er að borða á staðnum
áður en farið er í leikhús.
Ást og ástríða er
lögð í matargerðina
En hvað einkennir helst matar-
gerðina á Kryddlegnum hjörtum?
„Það er ekki tilviljun að staðnum
var valið þetta nafn, meginþem-
að er að leggja alltaf ást og ástríðu
í matargerðina. Líka þakklæti. Við
eldum ekki eftir uppskriftum held-
ur leggjum líf, sál og sköpun í mat-
argerðina. Við tölum við hráefnið
og þökkum fyrir matinn sem við
fáum til að vinna úr. Þannig glæð-
um við matinn heilögum anda.
Það er mikilvægt að leggja alúð og
kærleika í það sem maður gerir.“
Þess má geta að allur kjúkling-
ur sem notaður er til matargerðar
á Kryddlegnum hörtum er keypt-
ur beint frá bónda en ekki úr verk-
smiðjubúum.
Nýjungar tilheyra rekstri fram-
sækins veitingastaðar og nú bjóða
Kryddlegin hjörtu upp á glúten-
laust brauð og allar kökur eru
glútenlausar.
Kryddlegin hjörtu er á Hverfis-
götu 33 í Reykjavík, síminn er 588-
1818 og netfangið krydd@krydd-
leginhjortu.is. Opnunartími er
mánudaga til miðvikudaga frá
kl. 11.30–21.00, fimmtudaga til
laugardaga frá kl. 11.30–22.00 og
sunnudaga frá kl. 17.00–22.00. n
Ástríða, andi
og þakklæti
Kryddlegin hjörtu:
„Meginþemað er að leggja alltaf ást og ástríðu í matargerðina“
Eigandinn
Íris Hera
Norðfjörð
eigandi og
dóttir hennar
Dagbjört
Norðfjörð
Snorradóttir.