Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Síða 28
Vikublað 24.–26. mars 201512 Veitingar - Kynningarblað
D
óra Svavarsdóttir stofnaði
fyrirtækið Culina – veitingar
og veisluþjónusta fyrir
þremur árum. Viðskiptin
hafa aukist jafnt og þétt á
þessum tíma og sinnir Culina veislu-
þjónustu fyrir veislur af öllum stærð-
um.
„Við erum að sjá um allt frá
fjögurra manna og upp í 300 manna
samkvæmi,“ segir eigandinn Dóra
Svavarsdóttir. „Ég var kokkur á Á
næstu grösum í nokkur ár og hef sér-
þekkingu á grænmetisfæði og alls
kyns ofnæmi. Ég hef því lagt upp úr
því að sinna þeim hópi, en ég sinni
öllum og þessi þjónusta snýst um
að uppfylla óskir viðskiptavinanna.
Saman vinnum við að því að skapa
eftirminnilegan veislumat því að á
þessum mikilvægu stundum þegar
slegið er upp veislu er maturinn hluti
af upplifuninni og dýrmætum minn-
ingum.“
Algengt er að viðskiptavinir
Culina komi með sínar eigin hug-
myndir og veisluþjónustan hjálpar
til við að útfæra þær og kemur með
sínar eigin hugmyndir á móti.
Viðskiptavinirnir hafa
fjölbreyttan smekk
„Fólk vill oft gera eitthvað sjálft,
stundum verður brauðtertan hennar
mömmu alltaf að vera með og það er
ekki vandamál. Fólk hefur fjölbreytt-
an smekk, sumir vilja prófa eitthvað
nýtt á meðan aðrir vilja hefðbundið
steikarhlaðborð. Við uppfyllum allar
óskir. Við leggjum hins vegar áherslu
á að forðast öll aukaefni og elda allt
frá grunni – slíkur matur er ekki bara
hollari, hann er bragðbetri.“
Dóra segist njóta þess mjög að
eiga samskipti við þá sem eru að fara
að halda veislur og það komi í stað-
inn fyrir samganginn við matargesti
á veitingahúsum þar sem hún starf-
aði áður. Sígandi lukka hefur ein-
kennt reksturinn og hún er mjög
bjartsýn á framtíðina.
Dóra tekur sjálf við öllum pöntun-
um og leiðir síðan verkefnið hverju
sinni með sínu starfsfólki.
Culina – veitingar og veisluþjón-
usta er að Skemmuvegi 12. Tekið er
við pöntunum og fyrirspurnum í
síma 893-5320 og á netfangið dora@
culina.is n
„Maturinn er hluti af upplifuninni“
Draumaveislan gerð að veruleika með Culina
Eigandinn Dóra
Svavarsdóttir.
Veisluborð
Veislumatur
að hætti
Culina.
Sjávarréttasalat
Girnilegt fyrir auga
og bragðlauka.
V
eitingastaðurinn Ráin,
Hafnargötu 19 í Keflavík,
var stofnaður árið 1989
og er talinn einn besti
veitingastaðurinn í
Reykjanesbæ.
Matseðill Ráarinnar eru afar fjöl-
breyttur og girnilegur og allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvort
sem snætt er með fjölskyldunni, í
góðra vina hópi eða ef fólk vill eiga
rómantískan kvöldverð, þá er allt til
staðar á Ránni til að gera stundina
fullkomna.
Fjörugir og vinsælir dansleikir
eru haldnir á staðnum reglulega og
enski boltinn er alltaf í beinni – en
þá laða hagstæð boltatilboð í mat og
drykk fólk að.
„Afar fjölbreytt og vönduð veislu-
og ráðstefnuþjónusta er í boði – fyrir
árshátíðir, brúðkaup, afmæli, ferm-
ingar, erfidrykkjur, skírnarveislur,
móttökur, útskriftarveislur, starfs-
mannaskemmtanir – og raunar
hvaða tilefni sem er. Þægilegt er að
setja saman sína eigin matseðla fyrir
sinn viðburð á heimasíðu staðarins,
rain.is,“ segir Björn Vífill Þorleifsson,
eigandi Ráarinnar. Ráin getur tek-
ið um 300 manns í sæti í tveimur
veitingasölum.
Ráin er á Hafnargötu 19, Keflavík,
síminn er 421-4601, netfang rain@
rain.is Opnunartími er sunnudaga
til fimmtudaga frá kl. 11.00–01.00
og föstudaga og laugardaga frá kl.
11.00–03.00. n
Veitingar, veisluþjónusta og
fjölbreyttar skemmtanir
Ráin – eitt besta veitingahús Reykjanesbæjar
Ráin Frábært útsýni yfir
sjóinn og góður matur.