Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Page 37
Lífsstíll 21Vikublað 24.–26. mars 2015
Heill heimur af pylsum!
Hrísateig 47
Pylsur á pönnuna
en einnig úrvals skinkur og álegg á veisluborðið
að ógleymdri svínasultunni, beikoninu og ýmsu öðru góðgæti.
Gæðapylsur og skinkur án allra auka-
og fylliefna og án MSG. Framleiddar eftir
uppskriftum frá öllum heimshornum.
Íslenskt kjöt – íslensk framleiðsla!
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
UPPFYLLIR
SKILYRÐI
NÁLARAUGANS
Paleo
GABS
SCD
Þ
essi kaka er uppáhalds-
útgáfan mín af sænsku
klessukökunni (s. kladd-
kaka) sem er eins konar
norræn gerð af franskri
súkkulaðiköku. Í hvorugri er lyfti-
duft sem gerir að verkum að þær
verða þéttari í sér og klessulegar eða
blautar án þess þó að vera hráar.
Smekkstriði eru rökrædd
Svíar geta rökrætt endalaust um
hvernig besta kladdkökuuppskriftin
sé. Hvort í henni eigi að vera
súkkulaði eða kakó – smjör eða
olía að hluta til og ýmislegt fleira.
Þessi atriði fara eftir smekk en eru
engu að síður mikið þrætuefni. Svo
eru aðferðir við baksturinn enda-
laust fjölbreyttar. Allt er gert til að
ná rétta súkkulaðikeimnum og réttu
áferðinni, sem skal vera blaut, en
ekki hrá.
Undanfarið hefur orðið mjög vin-
sælt að gera ýmiss konar útgáfur af
þessari köku svo hún bragðist öðru-
vísi en hafi sömu áferð. Að sjálfsögðu
hefur bragðið þá verið árstíðarbund-
ið; saffran á jólunum, marsípan á
vorin, kanill þegar dagur kanilsnúð-
anna nálgast, og svo framvegis.
Grunnuppskrift að
sænskri klessuköku
Grunnuppskriftin er óhemjugóð
bæði með kaffinu eða í eftirrétt
með rjómaslettu eða ískúlu. Svo er
hægt að breyta henni með alls kyns
ábreiðum sem henta við mismun-
andi tækifæri.
n 3,75 dl sykur
n 4 egg
n 2 dl kakó
n 2 tsk. vanillusykur
n ½ tsk. flögusalt
n 2,5 dl hveiti
n 200 g smjör
Aðferð: Hitið ofninn í 175 gráður.
Bræðið smjör og kælið. Blandið
rösklega saman við kælda smjörið
kakói, vanillusykri, flögusalti og
sykri. Eggin eru hrærð saman, eitt í
einu og síðast er hveitinu bætt út í.
Ekki hræra of mikið eða harkalega
þegar þarna er komið sögu.
Smyrjið hringlaga bökunar-
form með smjöri og stráið hveiti
yfir. Hristið vandlega svo að hveitið
dreifist vel í formið. Hellið deiginu í.
Bakið í um það bil 30 mínútur. Kak-
an má vera dálítið laus í sér þegar
hún er tekin út. Látið kólna alveg
áður en ábreiðan er sett á. n
Ofurútgáfan!
Hér kemur ofur-kladdköku-sprengjan.
Hrískúlum er bætt í deigið og ábreiðan
er úr poppi og karamellu. Sætt, salt og
syndsamlegt!
Súkkulaðikaka með poppi og
karamellu
Viðbót í kökudeigið:
n 100 g hrís (Freyju)
Þegar deigið er komið í
formið er hrísinu hellt
yfir. Ýtið hrískúl-
unum vandlega
niður í deigið með
fingrunum.
Ábreiðan:
n 10 fudge-bitar (fást á nammibarnum)
n 1 tsk. smjör
n 2 msk. rjómi
n 2–3 dl popp
Bræðið fudge-bitana í litlum potti ásamt
teskeið af smjöri. Blandið rjómanum
saman við þegar bitanir eru byrjaðir að
bráðna. Látið allt bráðna saman svo úr
verði fljótandi karamellusósa. Ef sósan er
of þykk má bæta við rjóma.
Dreifið poppinu yfir kökuna og hellið kara-
mellusósunni í mjórri bunu yfir poppið.
Það er alls ekki verra að bera kökuna fram
með ís eða þeyttum rjóma.
Sænsk klessukaka með
poppi og karamellu
n Kaka með óteljandi möguleika n Einn grunnur og margar ábreiður
Límónuábreiða
n 100 g rjómaostur
n 1,5 dl flórsykur
n 1 dl kókos
n 1 límóna (fínt rifinn börkurinn utan af
ásamt safanum)
n 50 g smátt saxað hvítt súkkulaði.
Öllu blandað vandlega saman og smurt
yfir kælda kökuna. Fallegt er að geyma
smávegis af rifna límónuberkinum og
dreifa yfir hvítt kremið.
Kaffiábreiða
n 50 g brætt smjör
n 1 msk. kakó
n 2 msk. vanillusykur
n 3 dl flórsykur
n 3 msk. sterkt kaffi
Öllu blandað vel saman og kælt. Smurt
yfir kökuna.
Hnetuábreiða
n 100 g núggat
n 50 g hnetur að eigin vali. Gott að hafa
t.d. saltaðar pistasíuhnetur.
Núggati brætt og smurt yfir kælda
kökuna. Hneturnar saxaðar og dreift yfir.
Berjaábreiða
Fersk ber að eigin vali! Hér er tilvalið að
skera niður jarðarber og hrúga ofan á –
eða nota bláber eða hindber. Endalaust
er hægt að prófa sig áfram. Flest ber
fara vel með súkkulaðikökunni.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Uppáhaldsútgáfan
Öðruvísi útgáfa af
sænskri klessuköku.
Mynd SiGtRyGGUR ARi
Kakan tilbúin
Þær gerast varla
girnilegri kökurnar.