Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Page 8
8 Fréttir Vikublað 21.–23. apríl 2015
Stóriðjuþrautagangan mikla
B
æjarráð Norðurþings sam-
þykkti í síðustu viku fjár-
heimild vegna vegtengingar
við iðnaðarlóðina á Bakka við
Húsavík. Ástæðan er áform
þýsku fyrirtækjasamsteypunnar PCC
um að reisa kísilmálmverksmiðju á
svæðinu en dótturfélag hennar hefur
lagt fram óendurkræfa tryggingu upp
á 250 þúsund Bandaríkjadali, jafn-
virði 34 milljóna króna, vegna veg-
tengingarinnar.
Verksmiðjan er fullfjármögnuð og
fulltrúar þýska fyrirtækisins undirrit-
uðu í lok mars nýjan raforkusamn-
ing við Landsvirkjun. Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) gerði athugasemdir við
eldri samning fyrirtækjanna og niður-
stöður rannsóknar hennar liggja ekki
enn fyrir.
Í síðustu viku var einnig tilkynnt
um stóran áfanga í öðru kísilverkefni
þegar stjórn United Silicon hf. greindi
frá ákvörðun sinni um að ráða í stöð-
ur forstjóra og rekstrarstjóra fyrir-
tækisins. United Silicon hefur hafið
framkvæmdir við 22 þúsund tonna
kísilmálmverksmiðju í Helguvík í
Reykjanesbæ.
Kísilverkefnin tvö eru því vissu-
lega komin vel af stað. Sagan hef-
ur aftur á móti sýnt að raforkusamn-
ingar, skóflustungur og fögur fyrirheit
eru ekki alltaf trygging fyrir því að
framkvæmdir við mannaflafrek ver-
kefni klárist og störf skapist. DV rifj-
ar hér upp tilraunir sveitarfélaganna
Norðurþings og Reykjanesbæjar til að
koma stórverkefnum á laggirnar.
Beðið í níu ár
Bandaríski álframleiðandinn Alcoa
hóf undirbúning að byggingu 250
þúsund tonna álvers á Bakka við
Húsavík í ársbyrjun 2006. Fulltrú-
ar fyrirtækisins undirrituðu í kjölfar-
ið viljayfirlýsingar við stjórnvöld og
sveitarfélagið Norðurþing, hófu við-
ræður við Landsvirkjun um kaup á
raforku, en sóttu aldrei formlega um
lóð á Bakka. Í október 2011, rúmum
fimm árum síðar, tilkynnti Alcoa að
álverið væri ekki lengur á dagskrá.
Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, fullyrti þá að samningavið-
ræður við álframleiðandann hefðu
aldrei komist af frumstigi.
Tæpu hálfu ári síðar bárust frétt-
ir af áhuga svissneska fyrirtækis-
ins Klesch á að reisa álver á Bakka.
Stjórnendur fyrirtækisins höfðu þá
heimsótt sveitarfélagið og kynnt sér
aðstæður. Formlegar viðræður milli
Norðurþings og Klesch hófust þó
aldrei og hugmyndin fjaraði út.
Landsvirkjun og bæjaryfirvöld í
Norðurþingi áttu þá einnig í viðræð-
um við forsvarsmenn Thorsil hf. og
PCC. Thorsil sótti um lóð á Bakka
undir kísilmálmverksmiðju, samdi
við Landsvirkjun um skilmála lang-
tíma samnings um raforkukaup og í
júní 2012 birtist í dagblöðum auglýs-
ing um drög að matsáætlun vegna
framkvæmdarinnar. Verksmiðjan átti
að skapa 150 bein störf en heildar-
kostnaður verkefnisins átti að nema
37 milljörðum króna. Í janúar 2014
varð ljóst að eigendur Thorsil hefðu
sagt skilið við Bakka en þá var skrif-
að undir samning um hönnun kís-
ilmálmverksmiðju fyrirtækisins í
Helguvík.
Þegar ákvörðun Thorsil lá fyr-
ir áttu kjörnir fulltrúar Norðurþings
enn í viðræðum við franska stórfyr-
irtækið Saint Gobain um 25 þúsund
tonna kísilkarbíðverksmiðju á Bakka.
Forsvarsmenn fyrirtækisins heim-
sóttu Húsavík um mitt ár 2012 og áttu
í kjölfarið í viðræðum um tólf hektara
lóð á svæðinu. Verkefnið, sem er enn í
biðstöðu, á að skapa 68 framtíðarstörf.
Að lokum má nefna verkefni sem
íslenska félagið Klappir Development
ehf. kynnti haustið 2013. Þar er um
að ræða 120 þúsund tonna álver sem
fyrirtækið hyggst byggja á iðnaðar-
svæðinu. Ingvar Unnsteinn Skúlason,
framkvæmdastjóri Klappa Develop-
ment, fundaði með bæjarfulltrúum
Norðurþings í haust en hann hefur
hingað til ekki vilja tjá sig um stöðu
mála.
Mörg fyrirtæki fengið lóðir
Norðurál hefur stefnt að byggingu
360 þúsund tonna álvers í Helgu-
vík frá árinu 2004. Skóflustunga að
fyrsta kerskála álversins var tekin í
júní 2008 en framkvæmdir á lóð fyr-
irtækisins stöðvuðust alveg 2013.
Ekki er ljóst hvaðan raforkan sem
á að knýja framleiðslu álversins á
að koma. HS Orka vill losna undan
samningi um orkusölu til álversins
og hefur hafið gerðardómsferli til að
ná því í gegn. Verkefnið hefur þegar
kostað Norðurál og bandaríska
móðurfélagið Century Aluminum
um 17 milljarða króna.
Áform um framleiðslu kísil-
málms í Helguvík komu fyrst upp
á sjónarsviðið í júlí 2007 þegar
forsvarsmenn Íslenska kísilfélags-
ins ehf. kynntu hugmynd að 50 þús-
und tonna verksmiðju. Hún átti að
skapa um 90 störf í fyrsta áfanga
og heildarkostnaðurinn að nema
um níu milljörðum króna. Í febrúar
2013, tæpum fimm árum síðar, skrif-
uðu fulltrúar félagsins undir fjár-
n Tvö kísilverkefni komin vel af stað n Mörg dæmi um hugmyndir að uppbyggingu á Bakka og í
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Staða verkefna
Framkvæmdir á
lóð hafnar
Stefnt að skóflustungu
á þessu ári
Verkefni á frumstigi
/ í biðstöðu
Framkvæmdir
hófust aldrei
Helguvík
Bakki
Brúarfoss hf.
Vatnsverksmiðja
Artic Tyres
Dekkjaframleiðsla
Atlantic Green Chemicals
Lífalkóhól- og glýkólverksmiðja
G²
Framleiðsla á dísilolíu
Fertil ehf.
Áburðarverksmiðja
Norðurál
Álver
Íslenska kísilfélagið ehf.
Kísilmálmverksmiðja (2007-2012)
Framkvæmdir hafnar
Skóflustunga var tekin að kísilmálmverk-
smiðju United Silicon í ágúst í fyrra.
PCC Bakki Silicon hf
Kísilmálmverksmiðja
Saint Gobain
Kísilkarbíðverksmiðja
Klappir Development ehf.
Álver
United Silicon ehf.
Kísilmálmverksmiðja
Thorsil hf.
Kísilmálmverksmiðja