Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Qupperneq 9
Fréttir 9Vikublað 21.–23. apríl 2015
Stóriðjuþrautagangan mikla
festingarsamning við ríkið þar sem
samið var um afslætti af sköttum
og opinberum gjöldum. Nokkrum
mánuðum síðar var tilkynnt að fé-
lagið hefði fallið frá áformum um
kísilver í Helguvík.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
hafa undirritað sjö viljayfirlýsingar
við jafnmörg fyrirtæki á síðustu sex
árum vegna lóða á iðnaðarsvæðinu
í Helguvík. Thorsil er á meðal þeirra
en eins og áður segir horfir fyrirtæk-
ið til framleiðslu kísilmálms á svæð-
inu. Eigendur fyrirtækisins vinna
nú að fjármögnun verksmiðjunnar.
Þeir vilja hefja framkvæmdir í sum-
ar og hafa undirritað fjárfestingar-
samning við ríkið sem Alþingi þarf
að samþykkja.
Samkvæmt upplýsingum DV
stefnir fyrirtækið G2 einnig að fram-
kvæmdum í Helguvík á þessu ári.
Eigendur G2 vilja reisa um tíu þús-
und fermetra verksmiðju í Helgu-
vík sem myndi framleiða dísilolíu
úr notuð dekkjum. Verkefnið hef-
ur verið í undirbúningi í rúmt ár en
áætlaður byggingarkostnaður er um
4,5 milljarðar króna.
Reykjaneshöfn, sem er í eigu
Reykjanesbæjar, hefur einnig lof-
að fyrirtækinu Brúarfossi hf. lóð í
Helguvík undir vatnsverksmiðju.
Ekki hefur fengist nægt fjármagn til
að koma verkefninu af stað og óvist
er hvenær eða hvort framkvæmd-
ir hefjast. Forsvarsmenn verkefn-
is sem ber vinnuheitið Arctic Tyres
hafa að auki fengið vilyrði fyrir
lóð sem og félagið Atlantic Green
Chemicals (AGC) og Fertil ehf. AGC
hefur stefnt að byggingu lífalkóhól-
og glýkólverksmiðju í Helguvík frá
árinu 2008. Fertil hefur ráðist í fru-
máætlun um byggingu áburðar-
verksmiðju hér á landi. Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, lagði í haust fram
þingsályktunartillögu um stofnun
áburðarverksmiðjunnar. Í tillögunni
er lagt til að ríkið fjármagni athugun
á því hvort hagkvæmt sé að reisa 120
milljarða króna verksmiðju í Helgu-
vík eða Þorlákshöfn. n
Helguvík sem fallið hefur verið frá
Bakki við Húsavík
Heildarfjárfesting vegna
verksmiðju PCC er um 300
milljónir dollara eða rúmur
41 milljarður króna.
Mynd FréttaBlaðið/Pjetur
Alcoa
Álver (2006-2011)
Thorsil hf.
Kísilmálmverksmiðja (2011-2014)
KLESCH
Álver (2012)
langur biðtími
Margir íbúar sveitarfélaganna
Norðurþings og Reykjanesbæj-
ar hafa beðið í tæpan áratug
eftir að stórverkefni fari að
skapa störf í heimabyggð.
Einstök markaðsstemning
kolaportid.isOpið laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
ISHIDA WM-NANO
FILMUPÖKKUNARVÉL MEÐ MIÐAVOG
Nánari upplýsingar
á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
Filmupökkunarvél á borð
með Uni 7 sem er nýjasta
miðavog Ishida
Ishida Nano hentar
fyrir pökkun á ávöxtum,
kjöti og fisk
Hægt er að nota
pökkunarvél með eða án
vigtunar og prentunar
Hanna Birna snýr aftur
Hefur verið í veikindaleyfi á þingi eftir afsögnina
H
anna Birna Kristjánsdótt-
ir, fyrrverandi innanríkisráð-
herra og þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, mætir aftur
til starfa á Alþingi eftir viku, þann 27.
apríl næstkomandi. RÚV greindi frá
þessu á mánudag. Upphaflega ætlaði
Hanna Birna að taka aftur þingsæti í
janúar, en var af læknisástæðum ráð-
lagt að taka sér lengra frí frá störfum.
Hanna Birna sagði af sér sem innan-
ríkisráðherra 21. nóvember síðast-
liðinn, en þá hafði Gísli Freyr Val-
dórsson, aðstoðarmaður hennar,
játað að hafa lekið trúnaðargögnum
um tvo hælisleitendur og íslenska
konu úr innanríkisráðuneytinu til
fjölmiðla. Hann hafði gengið til fund-
ar við Hönnu Birnu nokkrum dögum
áður og greint henni frá málavöxtum.
„Trúnaðarbrot Gísla Freys gagn-
vart mér, ráðuneytinu og almenn-
ingi öllum er algjört og alvarlegt.
Gísli Freyr hefur ítrekað haldið fram
sakleysi sínu, ekki aðeins gagnvart
yfirvöldum og fjölmiðlum, heldur
einnig gagnvart samstarfsfólki sínu
og yfirmönnum í ráðuneytinu,“ sagði
Hanna Birna í yfirlýsingu sem hún
sendi fjölmiðlum eftir að Gísli hafði
játað. Nokkrum dögum síðar óskaði
hún eftir því að fá að láta af embætti
innanríkisráðherra. n
Á alþingi Hanna Birna mætir aftur til
starfa á Alþingi hinn 27. apríl næstkomandi.