Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Page 10
10 Fréttir Vikublað 21.–23. apríl 2015Graníthöllin
Legsteinar
GLER LEGSTEINA
GS 1002
Mál: Sökkullinn er 85x40x10cm.
Glerið er 65x55x8cm.
Steinninn er 65cm hár.
Verð kr. 589.000,-
innifalin uppsetning á stór höfuðborgarsvæðinu*
GS 1003
Mál: Sökkullinn er 140x40x10cm.
Glerið er 100x55x8cm.
Steinninn er 65cm hár.
Verð kr. 689.000,-
innifalin uppsetning á stór höfuðborgarsvæðinu*
*
Fr
í u
pp
se
tn
in
g
m
ið
as
t v
ið
u
pp
se
tn
in
gu
á
h
öf
uð
bo
rg
ar
sv
æ
ði
nu
o
g
ná
gr
an
na
by
gg
ða
lö
gu
m
. M
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g
up
ps
el
da
r v
ör
ur
.
Opnunartími: mánudaga - föstudaga 900 til 1800
laugardaga 1100 til 1600
555 3888Bæjarhrauni 26 220 Hafnarfirði
Nánari upplýsingar á:
RáðheRRabílstjóRaR fá
laun á við þingmenn
n Yfirvinna er meirihluti af launum ráðherrabílstjóra n 150 yfirvinnustundir í einum mánuði
F
öst mánaðarleg heildarlaun
ráðherrabílstjóra í fimm
ráðuneytum eru 600–700
þúsund krónur. Þar af eru
laun fyrir yfirvinnu meira en
helmingur mánaðarlaunanna á bil-
inu 300–400 þúsund krónur. Þetta
kemur fram í fyrirspurn DV til ráðu-
neytanna. Til samanburðar er þing-
fararkaup alþingismanna rúmar
650 þúsund krónur.
Fimm ráðuneyti af átta svöruðu
fyrirspurn um mánaðarlaun bíl-
stjóranna; forsætisráðuneytið, vel-
ferðarráðuneytið, atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið, umhverfis-
og auðlindaráðuneytið og utanrík-
isráðuneytið. Innanríkisráðuneytið
og mennta- og menningarmála-
ráðuneytið töldu það ekki sam-
ræmast persónuverndarlögum að
gefa upp launakjörin. Fjármála- og
efnaghagsráðuneytið lét DV aðeins í
té upplýsingar um árslaun bílstjóra.
Hæst í utanríkisráðuneytinu
Af ráðuneytunum fimm voru laun
bílstjóra í mars síðastliðnum hæst í
utanríkisráðuneytinu, eða 701.203
krónur. Þar á eftir kom forsætisráðu-
neytið með 681.258 krónur, því næst
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið með 656.207 krónur, síðan
velferðarráðuneytið með 644.144
krónur og lestina rak umhverfis- og
auðlindaráðuneytið sem greiðir bíl-
stjórum 604.744 krónur í laun.
Til taks kvölds og morgna
Yfirvinna er stór hluti af starfi ráð-
herrabílstjóra, enda þurfa þeir að
vera til taks bæði kvölds og morgna
við hin ýmsu tækifæri, hvort sem
um er að ræða helgar eða virka
daga. Sem dæmi um þetta er vinnu-
tími bílstjóra í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu að meðaltali
12 klukkustundir á dag.
Einnig sinna bílstjórarnir oft
fleiri störfum innan ráðuneytanna.
Til að mynda sinnir bílstjóri utan-
ríkisráðuneytisins ýmsum verkefn-
um á aðalskrifstofu þess þegar færi
gefst frá öðrum skyldustörfum. Í
svari ráðuneytisins segir jafnframt
að bifreiðarstjórar hinna ýmsu ráð-
herra gegni einnig hlutverki ör-
yggisvarða þeirra og hefur til dæm-
is bifreiðarstjóri utanríkisráðherra
lokið námskeiðum þar að lútandi.
150 klukkutímar í einum
mánuði
Þegar yfirvinna bílstjóranna er
skoðuð nánar þá eru föst yfirvinnu-
laun í velferðarráðuneytinu, þar
sem tveir bílstjórar starfa fyrir heil-
brigðisráðherra og félags- og hús-
næðismálaráðherra, 344.263 krón-
ur. Ofan á það bætist mánaðarlegt
orlof á yfirvinnuna sem nemur
44.892 krónum og eru heildaryfir-
vinnulaun því 389.155 krónur. Föst
mánaðarlaun þeirra eru að sama
skapi töluvert lægri, eða 255.000
krónur. Í atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu, þar sem bílstjór-
ar sinna einnig tveimur ráðherr-
um, eru föst yfirvinnulaun 385.761
króna á meðan föst mánaðar- eða
dagvinnulaun eru 251.854 krónur.
Hjá mennta- og menningar-
málaráðuneytinu var fjöldi yfir-
vinnutíma bílstjóra á síðasta ári
mestur 150 klukkutímar í einum
mánuði en minnstur 60 tímar. Hjá
forsætisráðuneytinu voru saman-
lagt 996 yfirvinnustundir unnar á
síðasta ári eða að jafnaði 83 klukku-
tímar í mánuði.
17 milljónir í velferðarráðu-
neytinu
Fimm ráðuneyti veittu svör um
heildarlaunakostnað bílstjóra árið
2014. Hjá velferðarráðuneytinu var
hann hæstur, enda starfa tveir ráð-
herrar í því ráðuneyti. Kostnaður-
inn nam 15.739.690 krónum, eða
7.855.144 krónum hjá „bílstjóra A“
og 7.884.546 krónum hjá „bílstjóra
B“. Þar fyrir utan var útlagður kostn-
aður vegna afleysingabílstjóra rétt
rúm ein milljón króna. Samanlagð-
ur nam kostnaðurinn því tæpum 17
milljónum króna.
Samanlagt 50 milljónir
Næsthæstur var kostnaðurinn hjá
fjármála- og efnahagsráðuneytinu
eða 10,1 milljón króna þar sem inni-
falin eru laun afleysingabílstjóra.
Næst kom utanríkisráðuneytið
með 8.182.823 krónur og kostnað-
urinn hjá forsætisráðuneytinu nam
7.948.442 krónum. Loks var heildar-
launakostnaðurinn 7.759.248 krón-
ur hjá atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytinu.
Samanlagt nam launakostnað-
urinn í þessum fimm ráðuneytum á
síðasta ári 49.730.203 krónum.
Utanríkisráðuneytið hæst
Svör bárust frá öllum átta ráðu-
neytunum varðandi rekstrar- og
viðhaldskostnað bifreiða þeirra.
Þegar kostnaðurinn er skoðaður
kemur í ljós að hann var nokkuð
misjafn, enda mismunandi skýr-
ingar að baki tölunum. Hæstur var
hann í utanríkisráðuneytinu. Það
rekur fjórar bifreiðar, þar af eina ráð-
herrabifreið og nam kostnaðurinn
4.426.746 krónum. Næsthæstur var
hann í atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytinu, þar sem ráðherrarn-
ir eru tveir, eða 4.045.591 króna.
Í velferðarráðuneytinu nam
kostnaðurinn 3.552.594 krónum en
þar eru ráðherrabifreiðarnar einnig
tvær. Fjórði hæsti kostnaðurinn
var í umhverfis- og auðlindaráðu-
neytinu, eða 2.745.482 krónur. Á
þessum tíma var ráðherrabifreiðin
rekin bæði fyrir ráðherra umhverf-
is- og auðlindamála og ráðherra
sjávarútvegs- og landbúnaðar, þar
sem viðkomandi ráðherra gegndi
báðum embættum.
22 milljónir í rekstur og viðhald
Næst kemur kostnaðurinn við ráð-
herrabifreið forsætisráðuneytisins
sem nam 2.703.128 krónum á síð-
asta ári og þar á eftir kemur inn-
anríkisráðuneytið með kostnað
upp á 1.917.821 krónu. Í mennta-
og menningarmálaráðuneytinu
var hann 1.745.525 krónur. Lægsti
kostnaðurinn var í fjármála- og
efnahagsráðuneytinu, 828.024
krónur.
Samanlagt nam rekstrar- og við-
gerðarkostnaður ráðuneytanna
vegna bílanna 21.964.911 krónum á
síðasta ári. n
Laun bílstjóra
í mars 2015
n Utanríkisráðuneytið: 701.203 kr.
n Forsætisráðuneytið: 681.258 kr.
(Þar af föst mánaðarlaun 269.688 kr.)
n Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið: 656.207 (þar af föst
mánaðarlaun 243.854 kr. og föst
mánaðarleg yfirvinna 385.761 kr.)
n Velferðarráðuneytið: 644.144 kr.
(Þar af föst mánaðarlaun 255.000 kr. og
föst mánaðarleg yfirvinna 389.155 kr.)
n Umhverfis- og auðlindaráðuneytið:
604.774 kr. (Þar af föst mánaðarlaun
257.345 kr. og föst mánaðarleg yfirvinna
347.429 kr.)
Heildarlauna-
kostnaður
bílstjóra 2014
n Velferðarráðuneytið:
16.749.820 kr.
n Fjármála- og efnahags-
ráðuneytið: 10.100.000 kr.
n Utanríkisráðuneytið: 8.181.823 kr.
n Forsætisráðuneytið: 7.948.442 kr.
n Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið: 7.759.248 kr.
Samanlagður launakostnaður:
49.730.203 kr.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir Föst
yfirvinnulaun bílstjóra í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu, þar sem Ragnheiður
Elín Árnadóttir er iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, eru um 385 þúsund krónur á mánuði.