Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Side 12
Vikublað 21.–23. apríl 201512 Fréttir
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem
er undir álagi og fæst við flókin verkefni.
Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og
nemendum í prófum. Dregur úr streitu,
eykur ró og bætir skap.
Bodyflex
Strong
Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur
úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði
burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki
laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Birkilaufstöflur
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva-
jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og
dregur úr bólgum.
Evonia færir hárrótinni næringu og styrk
til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin
bætiefnum sem næra hárið og gera það
gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
1 Marel
Samþykkt á aðalfundi 2015
Stjórnarformaður: 1.200 þúsund kr. á
mánuði (8.250 evrur). Hækkun: 10% milli ára.
Stjórnarmenn: 400 þúsund kr. á mánuði
(2.750 evrur). Hækkun: 10% milli ára.
Stjórn Marel
n Ásthildur Margrét Otharsdóttir, formaður
n Ann Elizabeth Savage
n Arnar Þór Másson
n Helgi Magnússon
n Margrét Jónsdóttir
n Ólafur Guðmundsson
n Ástvaldur Jóhannsson
Árslaun stjórnar alls: 43,2 milljónir
Kostnaður við hvern stjórnarmann: 6,17
milljónir á ári.
Forstjóri Marel
Árni Oddur Þórðarson
Árslaun 2014: 414 þúsund evrur eða 60,2
milljónir króna skv. ársreikningi.
Á mánuði: 5,0 milljónir króna.
Hagnaður árið 2014: 1,8 milljarðar kr.
Arðgreiðslur til hluhafa: 510 milljónir kr.
Miðað við gengi EUR: 145,56
2 Vátrygginga-
félag Íslands
Samþykkt á aðalfundi 2015
Stjórnarformaður: 600 þúsund á mánuði.
Hækkun: 50% milli ára.
Stjórnarmenn: 350 þúsund krónur á
mánuði. Hækkun: 75% milli ára.
Stjórn VÍS
n Guðrún Þorgeirsdóttir, formaður
n Ásta Dís Óladóttir,
n Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir
n Bjarni Brynjólfsson
n Davíð Harðarson
n Helga Jónsdóttir
n Steinar Þór Guðgeirsson
Árslaun stjórnar alls: 32,4 milljónir króna
Kostnaður við hvern stjórnarmann: 4,6
milljónir á ári.
Forstjóri VÍS
Sigrún Ragna Ólafsdóttir
Árslaun 2014: 36,3 milljónir króna skv.
ársreikningi.
Á mánuði: 3 milljónir króna
Hagnaður árið 2014: 1,7 milljarðar króna.
Arðgreiðslur til hluthafa: 2,5 milljarðar
króna.
3 Össur
Samþykkt á aðalfundi 2015
Stjórnarformaður: 958 þúsund á mánuði.
(7.083 dalir). Hækkun: 3% milli ára.
Varaformaður: 575 þúsund á mánuði
(4.250 dalir). Hækkun: 3% milli ára.
Stjórnarmenn: 383 þúsund á mánuði
(2.833 dalir). Hækkun: 3% milli ára.
Stjórn Össurar
n Niels Jacobsen, formaður
n Kristján Tómas Ragnarsson, varafor-
maður
n Arne Boye Nielsen
n Guðbjörg Edda Eggertsdóttir
n Svafa Grönfeldt
Árslaun stjórnar alls: 32,2 milljónir króna.
Kostnaður við hvern stjórnarmann: 6,44
milljónir á ári.
Þetta kosta stjórnir Kauphallarinnar
S
tjórnarmenn í Marel hf. eru
þeir launahæstu í þeim fjór
tán fyrirtækjum sem skráð
eru í Kauphöll Íslands. Stjórn
arformaðurinn, Ásthildur
Margrét Otharsdóttir, er launahæsti
stjórnarformaður skráðra félaga með
1,2 milljónir króna á mánuði en hinir
sex stjórnarmenn Marel fá sem nem
ur 400 þúsund krónum á mánuði hver
fyrir stjórnarsetuna.
Á aðalfundum tíu þessara fyrir
tækja var, eða verður mjög líklega,
samþykkt að hækka laun stjórnar
manna. Hvergi var hækkunin meiri en
hjá Vátryggingafélagi Íslands þar sem
laun stjórnarmanna hækkuðu um 75
prósent en stjórnarformanns um 50
prósent. Sé litið til heildarárslauna
stjórnarmanna íslenskra fyrirtækja
þá er sjö manna stjórn Marel dýrasta
stjórn Kauphallarinnar. Þegar litið er
til kostnaðar á hvern stjórnarmann í
fyrirtækjunum fjórtán þá eru hlutfalls
lega dýrustu stjórnarmennirnir í fimm
manna stjórn Össurar. Stjórnarlaun
hækkuðu um tíu prósent eða meira
hjá fimm af þessum tíu félögum sem
á annað borð hækkuðu laun stjórnar
manna sinna milli ára. Heildar árslaun
allra 74 stjórnarmannanna í Kaup
höllinni nema 313 milljónum króna.
Gremja vegna Granda
Í síðustu viku ætlaði allt um koll að
keyra þegar Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akraness,
upplýsti að samþykkt hefði verið á
aðalfundi HB Granda þann 10. apr
íl að hækka laun stjórnarmanna um
heil 33,3 prósent. Tímasetning hækk
unarinnar hefur verið harðlega gagn
rýnd enda stefnir í einhverja hörð
ustu kjarabaráttu seinni tíma og
verkföll verið boðuð í ljósi þess að
Samtök atvinnulífsins telja sig ekki
hafa svigrúm til að bjóða verkafólki
meira en 3,5 prósenta launahækkun.
Forsvarsmenn HB Granda hafa var
ið ákvörðunina með því að benda á
að stjórnarlaun þar séu með þeim
lægstu í Kauphöll Íslands. Úttekt DV
leiddi í ljós að stjórn HB Granda er í
raun sú næstlægst launaða.
DV fór í gegnum ársskýrslur og að
alfundarsamþykktir allra tólf félag
anna sem skráð eru í Kauphöll Íslands
þar sem skoðuð voru sérstaklega laun
stjórna fyrirtækjanna, hækkun þeirra
milli ára og heildarlaun hverrar stjórn
ar. Tvö félaganna, Reitir og Reginn,
halda aðalfund sinn síðar í mánuðin
um og liggur því endanleg samþykkt
ekki fyrir en upplýsingar um Haga eru
frá því á síðasta rekstrarári. Þar sem
fjöldi stjórnarmanna getur verið mis
munandi var einnig skoðað hver kostn
aðurinn er við hvern stjórnarmann
á ársgrundvelli. Þá voru tekin saman
laun forstjóra fyrirtækjanna, hagnað
ur þeirra fyrir árið 2014 og hversu háar
arðgreiðslur þau greiddu hluthöfum
sínum – sem í mörgum tilvikum eru
helstu lífeyrissjóðir landsins. n
ç Launahæsti formaðurinn
Stjórn Marel er sú dýrasta í Kauphöll
Íslands og formaður hennar, Ásthildur
Margrét Otharsdóttir (t.v.) er launa-
hæsti stjórnarformaðurinn. Hún situr
einnig í stjórn Icelandair Group.
Hækkun hjá flestum
Samþykkt var að hækka
laun stjórnarmanna á
aðalfundum tíu þeirra
fjórtán félaga sem skráð
eru í Kauphöll Íslands.
Hækkunin er mismikil
milli fyrirtækja. Allt frá
2,8 prósentum upp í 75
prósent milli ára.
n Mala gull hjá Marel n Fjórtán stjórnir þéna 313 milljónir á ári n Lægstu launin í Nýherja n Forstjóri Össurar langlaunahæstur
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Meðallaun
stjórnarformanna:
601.392 kr.
á mán.
Meðallaun
stjórnarmanna:
278.478 kr.
á mán.