Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Blaðsíða 18
18 Fréttir Erlent Vikublað 21.–23. apríl 2015
„Tortryggni og tauga-
veiklun ræður ríkjum“
n Norskir feðgar svindluðu á Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu fyrir þremur árum
Á
dögunum fór fram eitt
virtasta alþjóðlega skákmót
heims, Dubai Open. Mótið
laðar árlega að sér fjöld-
ann allan af atvinnumönn-
um jafnt sem áhugamönnum enda
mótsstaðurinn áhugaverður og
verðlaunin góð. Sá fáheyrði atburð-
ur átti sér hins vegar stað í topp-
baráttu mótsins að stórmeistar-
inn Gaioz Nigalidze var staðinn að
svindli og rekinn með skömm úr
mótinu. Nigalidze er enginn venju-
legur stórmeistari. Hann er ríkjandi
skákmeistari Georgíu, eins sterkasta
skáklands heims.
Svindlið komst upp í sjöttu um-
ferð mótsins þegar Nigalidze mætti
armenska stórmeistaranum Tigr-
an Petrosian. Þeir höfðu nokkrum
mánuðum áður mæst á móti í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
Þar hafði Nigalidze sigur í innbyrðis
viðureign þeirra og grunsemdir Petr-
osian vöknuðu í kjölfarið. „Hann fór
óeðlilega oft á salernið,“ er haft eftir
armenska stórmeistaranum.
Þegar þeir mættust svo í Dúbaí
hélt georgíski stórmeistarinn upp-
teknum hætti og fór reglulega á sal-
ernið. „Ég elti hann nokkrum sinn-
um og tók eftir því að hann fór alltaf í
sama klefann, þó að aðrir væru laus-
ir. Ég kvartaði í kjölfarið til skákstjóra
sem fóru og könnuðu málið.“ Inni
á klósettinu fannst farsími, vafinn í
klósettpappír, þar sem staðan í skák-
inni milli Petrosian og Nigalidze
blasti við á skjánum. Óumdeilt var
að Georgíumaðurinn hafi látið öflugt
skákforrit malla á stöðunni og í kjöl-
farið var skákin dæmd töpuð á hann
og honum vísað úr mótinu. Hann
á yfir höfði sér langt keppnisbann.
Stórmeistarar í skák þurfa yfirleitt
að treysta á það að fá boð á alþjóð-
leg skákmót. Yfirleitt er í boði flugfar-
ið, gisting og vasapeningar sem duga
eiga fyrir fæði og öðru. Það er ljóst
að slík boð munu ekki hrúgast inn til
Nigalidze eftir þetta atvik.
Hlutfallslega fá atvik sem
skemma mikið útfrá sér
„Þetta er ekki í fyrsta sinn á nýliðn-
um árum sem upp kemst um svindl
á alþjóðlegum skákmótum,“ seg-
ir Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands. „Miðað við þann
fjölda sem keppir á alþjóðlegum
mótum um allan heim þá eru atvikin
hlutfallslega mjög fá en þau skemma
verulega út frá sér. Svo getur farið að
tortryggni og taugaveiklun ráði ríkj-
um þegar eftirliti er ábótavant,“ segir
Gunnar.
Helstu mót send
beint út á netinu
Skáklistin er framarlega í upplýs-
ingamiðlun á netinu. Helstu mót
eru send út í beinni útsendingu á
netinu þar sem hver leikur í hverri
skák birtist í rauntíma á vefnum. Í
bakgrunninum malla svo sterkustu
skáktölvur heims, sem eru yfirleitt
sterkari en fremstu skákmeistarar
heims, og þær upplýsa áhorfendur
um hver sé besti leikurinn í hverri
stöðu. Þetta skapar freistingar fyrir
óprúttna aðila.
Miklar öryggiskröfur á helstu
mótum
„Það hafa verið dæmi um það að
keppendur svindli með snjallsím-
um eins og gerðist í Dúbaí en einnig
þekkist það að vitorðsmenn séu
með í ráðum. Í raun og veru þarf
slíkur aðstoðarmaður ekki að vera
sleipur skákmaður, það nægir að
fylgjast með beinum útsendingum
og reyna svo að koma upplýsing-
um til keppandans með einhverj-
um hætti,“ segir Gunnar. Að hans
sögn eru þó öflug gæsla á sterkustu
skákmótunum auk þess sem skák-
menn eru duglegir við að tilkynna
um einkennilega hegðun. „Í haust
fer fram Evrópumót skáklandsliða
í Reykjavík sem er einn stærsti við-
burður sem Skáksamband Íslands
hefur staðið fyrir. Á því móti verður
mikil gæsla. Símar verða bannaðar í
keppnissalnum og keppendur þurfa
að ganga í gegnum málmleitarhlið
fyrir keppni. Einnig eru öll sam-
skipti bönnuð milli keppenda og
annarra á meðan viðkomandi situr
að tafli.“
Gunnar hefur þó ekki miklar
áhyggjur af þessari meintu ógn.
„99,9% skákmanna eru strang-
heiðarlegir keppnismenn en það
eru alltaf örfá skemmd epli sem
koma óorði á hina. Tölvur tefla
öðruvísi en manneskja af holdi og
blóði og því er yfirleitt nokkuð aug-
ljóst ef menn eru að svindla með
því að nota slíkan hugbúnað. Æru-
missir þeirra sem nást innan skák-
samfélagsins er slíkur að ég hef litlar
áhyggjur af því að þetta verði ein-
hver faraldur.“
Ungur Norðmaður staðinn að
verki á Reykjavik Open
Fyrir þremur árum átti sér stað
athyglisvert mál á Alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem fram
fór í Hörpu. Þar voru norskir feðgar
staðnir að verki við að hafa rangt við.
Skákir piltsins voru ekki í beinni út-
sendingu en fyrirkomulagið var á
þann veg að faðirinn kom og leit á
skákborðið, brá sér síðan frá og setti
stöðuna inn í forrit í snjallsíma. Svo
kom hann aftur að borðinu og kom
upplýsingum til drengsins með ýms-
um hætti. „Það fannst sími á hon-
um og þar blasti við staðan sem var
á borðinu hjá drengnum. Hann hélt
því fram að hann hafi bara verið að
fylgjast með og reyna að átta sig á
hvernig skákin væri að fara. Sekt
hans var hins vegar óumdeild að
okkar mati og feðgarnir voru rekn-
ir úr mótinu. Þeir hafa ekki sést á Ís-
landi síðan. Við litum svo á að dreng-
urinn, sem var barn að aldri, væri í
raun fórnarlamb frekar en söku-
dólgur. Hann hefur haldið áfram að
tefla síðan úti um allan heim og án
þess að sambærileg atvik hafi komið
upp aftur. Hann er velkominn aftur
til landsins til að spreyta sig en það
sama gildir þó ekki um föður hans,“
sagði Gunnar að lokum. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Nigalidze Stórmeistarinn fagnaði sigri á alþjóðlegu skákmóti í Al-Ain í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum í desember 2014. Hálfu ári síðar var hann gripinn glóðvolgur við svindl á
virtu móti í Dúbaí. Hann á yfir höfði sér keppnisbann og skákferillinn er líklega að engu orðinn.
Skjáskot frá útsendingu Chess24 Svona lítur bein útsending frá sterkustu skákmótum
heims út. Leikirnir í skákinni birtast í rauntíma og síðasti leikur svarts, Kf7-g8 er merktur með
blárri ör. Fjölmargar myndavélar gefa áhorfendum ýmis sjónarhorn frá mótinu og fyrir neðan
er athugasemdagluggi. Neðst má svo sjá uppástungur eins sterkasta skákforrits heims,
Stockfish, um þrjá bestu möguleika hvíts. Keppendur þyrftu því í raun bara snjallsíma til þess
að fá þessar upplýsingar. Þess vegna er öryggisgæsla á stærstu skákmótum heims orðin mikil.
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands Að hans sögn koma
svindlmál reglulega upp í skáksamfélaginu
en þó séu atvikin hlutfallslega fá miðað
við hve margir spreyti sig á alþjóðlegum
skákmótum um allan heim.
„Hann er velkominn
aftur til landsins
til að spreyta sig en það
sama gildir þó ekki um
föður hans.
Gunnar Björnsson, forseti
Skáksambands Íslands
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is