Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Page 19
Vikublað 21.–23. apríl 2015 Fréttir Erlent 19
Betra grænmeti
Betra kjöt
Betri ávextir
Fyrst og
fremst...
þjónusta
Danir gera ráð fyrir góðu sumri
Júlímánuður verður hlýrri, þurrari og sólríkari en í meðalári
G
era má ráð fyrir hlýju sumri
í Danmörku en það gæti þó
orðið vætusamara en oft áður.
Þetta er mat veðurfræðinga
dönsku veðurstofunnar, DMI.
Veðurstofan gaf í vikunni út lang-
tímaspá sem er ætlað að varpa ljósi
á veðurfar í maí, júní og júlí. Sam-
kvæmt spánni verður hiti nokkuð yfir
meðallagi alla mánuðina en úrkoma
gæti einnig orðið yfir meðallagi. Hiti
fyrri hluta maímánaðar verður að
jafnaði 10 til 15 gráður en hækkar í 15
til 20 gráður undir lok mánaðarins.
Veðurfar í júní verður óstöðugra
og má gera ráð fyrir miklum rign-
ingum í bland við sólríka daga. „En
úrkoma og hitastig ætti að vera ná-
lægt meðaltali þegar allt kemur til
alls,“ segir í spánni sem gerir ráð fyrir
að eðalhiti yfir daginn verði um 18,5
gráður í júnímánuði.
Spáin fyrir júlímánuð gefur til-
efni til bjartsýni hjá sólarþyrstum
Dönum. Má búast við því að hann
verði þurrari, sólríkari og hlýrri en í
meðalári. n
Fínt sumar Það gæti borgað sig að skreppa í helgarferð til Danmerkur í júlí. Danska veður-
stofan býst allavega við góðu verði þá.
É
g sagði við hana: „Ég held að
ég sé dóttir þín“,“ segir La-
Sonya Mitchell-Clark, 38
ára kona sem leitað hafði að
blóðmóður sinni um nokkurt
skeið. Það kom henni mikið á óvart
þegar í ljós kom að þær höfðu starf-
að saman, hjá sama fyrirtæki, um
árabil – án þess að vita hvor af
annarri.
Blóðmóðir hennar, Francine
Simmons, hafði gefið La-Sonyu frá
sér, en hún var aðeins fimmtán ára
þegar hún átti hana. La-Sonya var
ættleidd af hjónum og ólst upp við
góðar aðstæður. Foreldrar hennar
hvöttu hana áfram í leitinni að blóð-
móður sinni, en La-Sonya gat litlar
upplýsingar fengið um hana þar til
fyrir skemmstu.
Leitaði á Facebook
Þá veittu heilbrigðisyfirvöld í Ohio
henni aðgang að skjölum um
fæðingu hennar og nafn blóðmóður.
Þegar La-Sonya prófaði að slá nafn-
inu inn á samfélagsmiðilinn Face-
book sá hún að kona með þessu
nafni, í Ohio, starfaði hjá InfoCision,
sama fyrirtæki og La-Sonya vann hjá.
Hún hafði samband við Francine
og greindi henni frá málavöxtum.
Francine hafði sjálf lengi velt því fyrir
sér hvernig hún gæti fundið dóttur
sína, en vissi ekki hvernig hún ætti að
bera sig að. Í ljós kom að þær bjuggu í
nokkurra mínútna fjarlægð frá hvorri
annarri, auk þess sem Francine á
fleiri dætur, þar á meðal eina sem
starfar hjá InfoCision. Francine hafði
unnið þar í 10 ár en La-Sonya í fjög-
ur. Þær höfðu hist og átt í einhverjum
samskiptum, en þekktust þó ekki.
Fagnaðarfundir
Það voru að vonum miklir fagnaðar-
fundir hjá þeim öllum og segist
Francine hafa verið mjög hissa, en afar
fegin. „Ég er enn í áfalli, en þetta er
ótrúlegt,“ segir hún. Francine segir að
það sé yndislegt að fjölskylda hennar
hafi stækkað svo um munar. n
„Ég held að ég
sé dóttir þín“
n Fann blóðmóður sína n Höfðu unnið saman í fjögur ár
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Ég er enn
í áfalli, en
þetta er ótrú-
legt.
Mæðgurnar Það voru
fagnaðar fundir og gleðitár féllu
þegar þær loksins sameinuðust.