Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Blaðsíða 26
Vikublað 21.–23. apríl 201526 Lífsstíll
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Gerðu daginn eftirminnilegan
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Veisluréttir úr smiðju meistarans · Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Skírn · Ferming · Útskrift · Brúðkaup
Í
fyrra varð Helga Bergmann fyrsti
Íslendingurinn til að heimsækja
stærsta helli heims, sem er í Víet
nam. Hang Son Doong hellirinn
var uppgötvaður af heimamann
inum Ho Khanh árið 1991. Það var
ekki fyrr en árið 2009 sem hann
fékk alþjóðlega viðurkenningu sem
stærsti hellir í heimi en þá fyrst var
hellirinn rannsakaður almennilega.
Árið 2014 ákváðu svo yfirvöld að gera
tilraun og gefa út 238 leyfi fyrir ferða
menn til að heimsækja þessa nátt
úruperlu og Helga var í þeim hópi.
Sá myndir af frá National
Geographic sem heilluðu
„Ég sá grein á netinu þar sem
Huffington Post auglýsti þessa
ferð ásamt myndum frá National
Geographic. Þær gjörsamlega heill
uðu mig sem og sú staðreynd að
þetta var í fyrsta skipti sem ferða
mönnum bauðst að heimsækja hell
inn. Þetta var tilraun og alls ekki ljóst
hvort áframhald yrði á. Ég sótti strax
um og þurfti að senda inn allar upp
lýsingar sem gætu bent til þess að
ég væri hæfur ferðalangur, með
al annars benti ég á reynslu mína af
göngu og fjallaferðum innanlands
og það að ég væri með köfunarpróf
og reynslu af fallhlífarstökki. Tveim
ur dögum síðar fékk ég svo meldingu
um að ég hefði verið valin,“ sagði
ævin týrakonan Helga Bergmann.
Var við það að afboða sig
Hún reyndi svo að sannfæra aðra
um að koma með sér án árangurs og
þegar kom að því að greiða þyrfti fyr
ir ferðina og staðfesta hana var hún
komin með talsverða bakþanka. „Ég
sat svo við tölvuna, alveg að fara að
afboða mig, þegar ég rakst á grein um
tíu ástæður þess að ferðast einn og þá
vissi ég að þessa ferð ætti ég að fara,
að ég myndi læra eitthvað af henni,“
sagði Helga og hlær. Í kjölfarið bókaði
hún fimm vikna ferð og nýtti tækifær
ið til að ferðast um Víetnam og Laos.
„Leiðangurinn í hellinn tók sjö daga.
„Við vorum um einn og hálfan dag að
komast að honum og á leiðinni var
gist í öðrum stórum helli. Við gistum
svo í sjálfum hellinum í heilar þrjár
nætur enda mikið að skoða. Þetta er
í miðjum frumskógi og gríðarlega af
skekkt. Það er ekkert farsímasam
band og engin farartæki komast að
hellinum, hvorki þyrlur né ökutæki,“
sagði Helga.
„Léttara en ég reiknaði með“
Aðspurð hvort ekki hefði verið um
mikla þrekraun að ræða sagði Helga:
„Þetta var í raun léttara en ég reikn
aði með þó að byrjunin hafi ekki lofað
góðu. Alls lögðu þrjátíu manns af stað
í leiðangurinn, þar af átta ferðamenn
eins og ég. Ein bandarísk kona gafst
upp eftir þrjátíu mínútur enda var
mikil bleyta og flughált í frumskóg
inum. Stuttu seinna rann svo ann
ar leiðangursmaður til og slasaði sig
á fæti og þá kom smá beygur í mann,
út í hvað var ég komin?! En restin af
ferðinni gekk vel þó að hættur leynd
ust við hvert fótmál. Við vorum alltaf
að ösla í vatni og ég var blaut í fæt
urna alla ferðina. Að auki vorum við
veislumatur í augum blóðsugna.“
„Það magnaðasta sem ég hef
upplifað“
Hang Son Doonghellirinn þykir
ótrúleg uppgötvun enda er um sér
stakt vistkerfi að ræða. Þar hafa
plöntur og lífverur fengið að þróast í
fullkominni einangrun um langa hríð
og þar finnast lífverur sem þekkjast
hvergi annars staðar. Ástæðan fyrir
því að hellirinn fannst ekki fyrr er sú
að hann er afar óaðgengilegur og það
mátti Helga reyna. „Þegar kom að
hellisopinu þurftum við að síga niður
um 20 metra til þess að komast nið
ur í sjálfan hellinn. Svo var vaðið yfir
neðanjarðará sem náði okkur upp að
mitti. Það er ekki hægt að lýsa hellin
um með orðum né stærð hans. Þetta
er það magnaðasta sem ég hef upp
lifað, eins og að koma í aðra veröld,“
sagði Helga áköf. „Hvert sem maður
leit var eitthvað nýtt. Þrjú hundruð
milljón ára steingervingar af plöntum
og dýrum, hvítar hellalýs, ótrúlegar
hellaperlur og mikill og undarlegur
gróður,“ sagði Helga. Hellisloftið hefur
í tímans rás hrunið á tveimur stöðum
og þar með á dagsbirta greiðan að
gang að sumum pörtum hellisins og
þar með einstakur gróður. „Við feng
um góðan tíma til að skoða okkur um
en ég vildi að sjálfsögðu fara alla leið
og við vorum tvö sem klöngruðumst
að The Great Wall of Vietnam sem er
ótrúlegur dropasteinsveggur innst
í hellinum. Það kom ekki til greina
að vera komin alla þessa leið og ekki
kanna allan hellinn,“ sagði Helga.
Helga var afar ánægð með að hafa
lagt upp í þetta ævintýri og sagði að
það væri auðvelt að ferðast einn um
Asíu og hættulítið. „Ég er strax byrjuð
að skipuleggja næstu ævintýraferð, “
sagði Helga hlæjandi að lokum. n
„Eins og að koma
í aðra veröld“
Helga Bergmann var fyrsti Íslendingurinn sem heimsótti stærsta helli heims
Í stærsta helli heims Helga sést hér á toppi „kuðungsins“ en svo nefndu þau þennan
klett sem var svo sannarlega kjörinn vettvangur fyrir myndatöku.
Á leið úr helli
svalanna Var
uppgötvaður 1991.
Í frumskóginum
Ævintýrin voru við hvert fótmál.
Í hellinum Lengst í fjarska sést maður
með bakpoka uppi á svokallaðri galdra-
kerlingu.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Við hellisopið
Afar óaðgengilegur hellir.