Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 2
Helgarblað 12.–15. júní 20152 Fréttir
Lífrænt
Valið besta
heilsuefnið
Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni,
Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
www.thebeautyshortlist.com
Best Health Supplement - Overall Wellbeing
Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt,
fegrar og frískar húðina
Bætir meltingu, gerir líkamann basískan,
kemur á réttu pH gildi
Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku,
einbeitingu og vellíðan
Spirulina, Chlorella & Barleygrass
Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru,
eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu.
Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks
upptaka og nýting á næringarefnum.
120 hylki.
Getur ekki ekið
göngin í sólskini
Kristján Jóhannesson þarf að aka Hvalfjörðinn ef birtan er of mikil úti
K
ristján Jóhannesson, 64 ára
Garðbæingur, getur ekki ekið
í gegnum Hvalfjarðargöngin
þegar mikil birta er úti.
Ástæðan fyrir því, að hans
sögn, eru augasteinaskipti sem hann
gekkst undir. „Ef það er sólskin þá get
ég ekki keyrt göngin,“ segir Kristján,
sem telur að flestir sem hafa gengist
undir augasteinaskipti glími við sama
vandamál. Augasteinninn sé svo lengi
að aðlagast snöggri birtuskerðingu.
Engu máli skipti þótt hann noti sól-
gleraugu. Það geri bara illt verra.
Ekur Hvalfjörðinn í staðinn
Í staðinn fyrir að keyra göngin hef-
ur Kristján þurft að aka Hvalfjörðinn,
sem tekur að sjálfsögðu mun lengri
tíma. „Mér finnst það leiðinlegt en
annars er Hvalfjörðurinn skemmti-
legur að mörgu leyti.“
Malbikið gleypir ljósið
Spurður nánar út í vandræðin sem
hann lendir í þegar hann ætlar að aka
um Hvalfjarðargöngin segir hann:
„Ég sé nánast ekkert fyrr en eftir smá-
stund. Svarta malbikið gleypir síðan
mikið af ljósinu þannig að lýsingin
nýtist ekki. Það þyrfti að vera bíla-
stæði fyrir innan göngin þar sem
maður gæti lagt og jafnað sig áður
en maður héldi áfram,“ segir hann.
„Þetta er ekki gott fyrir sjónskerta.“
Kristján segist hafa rætt við starfs-
mann Spalar um hvort ekki væri hægt
að malbika göngin með ljósara efni
og jafnvel mála veggina hvíta en fátt
var um svör.
Lýsingin þrefalt meiri en 2007
Marinó Tryggvason, öryggisfulltrúi
Spalar, segist ekki hafa fengið neinar
kvartanir varðandi lýsinguna. Búið
sé að þrefalda lýsinguna í Hval-
fjarðargöngunum frá árinu 2007,
sem hafi kostað tugi milljóna króna.
Ástæðan sé staðlar sem Evrópu-
sambandið gefur út sem þarf að
vinna eftir.
Eitt þúsund ljós í göngunum
„Við vorum á undan kvörtununum.
Reglugerðirnar hafa breyst hratt
og við höfum fylgt þeim. Árið 2007
byrjuðum við að taka þetta inn og
lukum við þetta 2012,“ segir Marinó
og bætir við að lýsingin sé í raun enn
betri en staðlarnir kveði á um. Í dag
eru ljósin tæplega eitt þúsund tals-
ins. Mikil vinna fari í að halda þeim
hreinum og skipta um perur. „Það
þarf að þurrka af öllum lömpum
nokkrum sinnum á ári og skipta um
perur þegar bilar. Það er heilmikið
mál að fara yfir öll ljósin.“
Lýsingin aldrei talin slæm
Marinó segir að mjög mikill mun-
ur sé á lýsingunni eftir þessar
breytingar. „Þegar þú kemur inn
í göngin, sama hvorum megin þú
ert, kemurðu inn í mikla lýsingu.
Svo fjarar hún út en eykst þegar þú
kemur út svo að birtujöfnunin verði
betri.“
Hann segir að lýsingin hafi aldrei
verið talin slæm í göngunum og að
öll skilyrði hafi verið uppfyllt þegar
þau voru opnuð árið 1998. Fylgt hafi
verið norskum reglum sem þá voru
í gildi.
Hvítir veggir ekki möguleiki
Spurður hvort komið hafi til greina
að mála veggina hvíta segir hann
að ýmislegt hafi verið rætt, meðal
annars það. „Ég held að það hafi
verið sameiginleg niðurstaða að
gera það ekki. Það hefði verið erfitt
í framkvæmd að viðhalda litn-
um. Það hefði allt orðið dökkt eða
skítugt strax.“ n
Rökkursjónin versnar með aldrinum
Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, segir að
augasteinsaðgerðir hafi ekki þessi áhrif á sjónina sem
Kristján talar um. „Þvert á móti tekur fólk eftir því að
það birtir til eftir augasteinsaðgerðir. En fólk er mis-
jafnt og augun misjöfn. Þessar aðgerðir ganga oftast
vel en ekki alltaf. Það er margt sem getur komið þar til,“
segir Einar. „Hins vegar er það svo að rökkursjónin hjá
okkur versnar með aldrinum. Eftir því sem við verðum
eldri sjáum við verr í myrkri.“
Fyrir utan göngin Kristján Jóhannesson segir
göngin henta illa þeim sem eru sjónskertir.„Það þyrfti að vera
bílastæði fyrir inn-
an göngin þar sem mað-
ur gæti lagt og jafnað
sig áður en maður héldi
áfram.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Þriggja daga samfélagshátíð
Almenningur og stjórnmálamenn ræða saman
E
ygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra, setti
Fund fólksins á útisvæðinu við
Norræna húsið í gær. Um er að
ræða líflega þriggja daga hátíð í Nor-
ræna húsinu og næsta nágrenni dag-
ana 11.–13. júní. Fjölmörg félagasam-
tök verða með starfsemi alla hátíðina
og eru um 200 viðburðir á dagskrá.
„Tilgangurinn er að gefa fólkinu
í landinu og stjórnmálamönnum
tækifæri til að hittast og skapa þar
með öðruvísi umræðuvettvang. Þetta
er tækifæri fyrir hagsmunasamtök
og stjórnmálaflokk til þess að kynna
sínar hugsjónir með því að halda
fundi og viðburði,“ segir Ilmur Dögg
Gísladóttir, kynningarstjóri Norræna
hússins. „Fundurinn er haldinn að
norrænni fyrirmynd. Sömu helgi fer
fram árlegur slíkur fundur á Borg-
undarhólmi í Danmörku en þar eru
3.000 viðburðir á dagskrá,“ segir Ilm-
ur. „Þetta er afslappaðri vettvangur og
við hvetjum fólk til að standa upp frá
lyklaborðinu, mæta á staðinn og hitta
fólk augliti til auglitis. Þá vill umræð-
an verða hófstilltari, kurteislegri. Við
erum að vona að hér skapist ný hefð
sem hafi jákvæð áhrif á samfélagið og
samfélagsumræðu og að allir eigi er-
indi,“ segir Ilmur Dögg að lokum. n
bjornth@dv.is
Ungmenni
fengu ekki
að kaupa vín
Ekkert ungmenni á aldrinum 17
og 18 ára fékk afgreiðslu í Vínbúð-
um í Grindavík og Reykjanesbæ
og öll voru þau spurð um skilríki.
Þetta er niðurstaða könnunar sem
Samsuð (samtök félagsmiðstöðva
á Suðurnesjum) gerði undanfarn-
ar fimm vikur.
Aldurstakmark til að kaupa
áfengi í Vínbúðunum er 20 ár.
Væntanlegar eru niðurstöður um
sölu sígarettna og munntóbaks
í þessari viku en nýverið voru
nemendur í 9. bekk fengnir til að
kanna hvort þeir fengju að kaupa
slíkan varning. Niðurstöður úr
þeirri könnun er áhyggjuefni að
því er kemur fram á vef Grinda-
víkurbæjar.
500 spjaldtölv-
ur afhentar
Kópavogsbær afhenti 500 spjald-
tölvur til kennara í grunnskólum
bæjarins í gær.
Í byrjun næsta skólaárs verða
fyrstu nemendatækin afhent og
þegar innleiðingu lýkur, haustið
2016, munu allir nemendur á
mið- og unglingastigi í grunnskól-
um Kópavogs hafa spjaldtölvur til
afnota.
Með spjaldtölvuvæðingu
skólanna opnast fjölmörg ný
tækifæri í námi og kennslu
en meðal markmiða í
spjaldtölvuvæðingu skólanna
er aukin einstaklingsmiðun og
fjölbreytni náms og kennslu.