Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 19
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Fréttir 19
„Brjóst eru ekkert merki-
legri en hvað annað“
n Eldri kynslóðir baráttukvenna hrifnar af brjósta byltingunni n Kynslóðabil í kvennabaráttunni
Kristín Ástgeirsdóttir
Fyrrverandi þingmaður Kvenna-
listans og framkvæmdastjóri
Jafnréttisstofu.
Stúlkur á Austurvelli Byltingarsinnuð kynslóð ungra kvenna. Mynd Sigtryggur Ari
Sigríður dúna Kristmundsdóttir Fyrrverandi þingmaður Kvennalistans og prófessor í
mannfræði við Háskóla Íslands.
LAKKVÖRN
+GLJÁI
Sterk og
endingargóð
gljávörn!
Made in GerMany
Since 1950
Hefur hlotið
frábæra dóma!
Þorgerður Einarsdóttir Prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands.
segir eina í boðinu hafa tekið eftir
því í sundi að konur á hennar aldri
stæðu naktar í sturtu eins og ekkert
væri en ungu stelpurnar hefðu ver-
ið feimnari, líkt og þær hefðu eitt-
hvað að fela. ,,Og þá veltum við því
fyrir okkur. Hvað hefur gerst? Ég
held að svarið sé klámvæðing.“
Sigríður segir það merkilegt við
brjóstabyltinguna og umræðuna
um kynferðisofbeldi að hvort
tveggja snúi að líkama kvenna.
„Þegar við vorum í Kvennalistanum
vorum við að mótmæla skipulagi
samfélagsins, að á konur væri ekki
hlustað og ekki væri tekið tillit til
þeirra. Líkaminn var ekki umræðu-
efni. Brjóst ekkert merkileg.“
Hún segir að í kringum tíunda
áratuginn hafi hlutirnir farið að
breytast. Í dag finni ungar kon-
ur meira fyrir því að líkami þeirra
sé bæði hlutgerður og niðurlægð-
ur með klámi. Þar af leiðandi verði
líkaminn ókunnugur konunni sem
býr í honum.
„Þessi brjóstabylting felur í
sér mótmæli gegn klámvæðingu,
við að hlutgera líkama kvenna og
niðurlægja hann.“
Að lokum bætir hún við: „Ég hef
rannsakað kvennabaráttu í gegn-
um tíðina og hún kemur í bylgj-
um eins og eldgos. Fyrst mynd-
ast þrýstingur og svo allt í einu
gýs úr sprungunni. Það gaus úr
sprungunni þegar Kvennalistinn
varð til, fréttir af honum bárust út
um allan heim og við urðum allt í
einu heimsfrægar. Ég er ekki frá því
að hér sé mögulega að hefjast ann-
að gos.“ n