Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 8
Helgarblað 12.–15. júní 20158 Fréttir
Ólafur Þór Hauksson Óvissa ríkir um
hvað Ólafur Þór mun taka sér fyrir hendur.
Mynd Sigtryggur Ari
Óvissa varðandi
sérstakan saksóknara
Frumvarp liggur í bið á Alþingi
Ó
vissa er uppi varðandi það
hvort embætti sérstaks sak-
sóknara verði lagt niður 1. júlí
næstkomandi, eða eftir tæpar
þrjár vikur.
Frumvarp um breytingar á lögum
um meðferð sakamála, þar sem gert
er ráð fyrir því að leggja embættið
niður, hefur verið lagt fram á Alþingi.
Þar hefur það ekki enn farið í gegn-
um aðra umræðu. Nýtt embætti hér-
aðssaksóknara á að taka við þeim
verkefnum sem sérstakur saksóknari
hefur ekki lokið við.
„Það er ekkert öruggt fyrr en
frumvarpið er komið þarna í gegn.
Þetta er til meðferðar á þinginu og
við verðum að sjá hvernig framvind-
an verður,“ segir Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari. Hann
bætir við að mikil áhersla sé lögð á
að afgreiða frumvarpið á þessu þingi.
Ólafur Þór segir þessa stöðu ekki
hafa áhrif á málin sem eru í rann-
sókn hjá embættinu. „Þess er gætt að
halda áfram þeirri vinnu sem þar er
og láta þetta ekki hafa áhrif á hana.“
Vegna þessarar óvissu er einnig
óvíst hvað hann sjálfur mun taka sér
fyrir hendur. „Það er ekkert sem ligg-
ur fyrir.“
Yfir 60 mál eru í rannsókn hjá sér-
stökum saksóknara. Þar af tengjast
undir tuttugu þeirra hruninu og eru
nokkur þeirra í bið. „Það hefur ver-
ið lögð aðaláhersla á að klára rann-
sóknarþáttinn. Það er svolítið af mál-
um hjá saksóknurum enda hafa þeir
verið önnum kafnir í dómsstörfum
í vetur. Það var verið að klára þetta
stóra Kaupþingsmál sem tók mjög
langan tíma. Það losnar aðeins um
fólk þegar það er búið,“ segir Ólafur,
sem býst við að dómur verði fljótlega
kveðinn upp í því máli. n freyr@dv.is
Stundin vill safna
allt að 25 milljónum
Um helmingur upphæðarinnar færi í kostnaðinn við að koma fjölmiðlinum af stað
S
tjórn félagsins samþykkti
heimild um hlutafjár-
aukningu upp á 25 millj-
ónir króna en það er ekki
víst að það verði metið
nauðsynlegt að nýta alla þá heim-
ild,“ segir Jón Trausti Reynisson,
framkvæmdastjóri Útgáfufélags-
ins Stundarinnar ehf. og einn rit-
stjóra fjölmiðilsins, aðspurður um
hversu mikið eigi að auka hlutafé
þess í hlutafjáraukningu sem nú
stendur yfir.
„Tekjurnar hafa byggst upp
mjög hratt þannig að sú upphæð
sem við söfnuðum í upphafi hefur
fleytt okkur mjög langt inn í sjálf-
bærni en henni ætti að vera náð
um þessar mundir. Hins vegar
erum við að vinna í þessari hluta-
fjáraukningu og búumst við að
þurfa á endanum 10 til 15 milljón-
ir til að þekja allan upphafskostn-
aðinn á þessu. Það væri mjög
óeðlilegt að ná að stofna þetta án
þess að það væri einhver sérstakur
startkostnaður sem þyrfti að brúa,“
segir Jón.
gætu endað í 60%
Stundin er í eigu Jóns Trausta,
Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur
ritstjóra, Heiðu B. Heiðarsdóttur,
Jóns Inga Stefánssonar og einka-
hlutafélagsins Góður punktur,
sem er aftur í eigu Reynis Trausta-
sonar, fyrrverandi ritstjóra DV,
og Halldóru Jónsdóttur sjúkra-
liða. Allir fimm hluthafarnir eiga
fimmtungshlut í félaginu en að
sögn Jóns gætu þeir endað með
samtals 60 prósenta hlut fari svo
að öll 25 milljóna króna heimildin
verði fullnýtt.
„Hlutafjáraukningin gengur
mjög vel. Til að byrja með voru
nokkrir aðilar sem komu til okk-
ar og buðust til að leggja hlutafé í
þetta. Þá erum við að tala um lægri
upphæðir eins og milljón króna
eða slíkt sem skiptir þó heilmiklu
máli fyrir okkar rekstur. Það eru
engir stórathafnamenn eða eitt-
hvað slíkt. En varðandi það hverj-
ir nákvæmlega verða hluthafar
þá verður það tilkynnt eins fljótt
og mögulegt er þegar við verðum
búin að ná þeim áfanga sem við
þurfum.“
ræða við fjárfesta
Eins og kom fram í síðasta helgar-
blaði DV þá var greint frá ákvörðun
stjórnar útgáfufélagsins, um að
ráðast í hlutafjáraukninguna, á
vef Fjölmiðlanefndar í lok maí. Í
fréttinni kom fram að nýir hlut-
hafar geta ekki keypt sig inn í fé-
lagið fyrir hærri upphæð en tvær
og hálfa milljón króna. Þar full-
yrti DV að eigendur fjölmiðilsins
hefðu meðal annars rætt við fjár-
sterka einstaklinga úr íslensku við-
skiptalífi. Jón Trausti segir það rétt
en bætir við að í slíkum tilvikum
hafi eingöngu verið leitað til þeirra
sem séu líklegir til að vilja styðja
frjálsa og óháða fjölmiðlun.
Stundin gaf í síðustu viku út sitt
fimmta tölublað og rekur einnig
vefmiðil. Fjölmiðillinn var stofn-
aður með tilstuðlan hópfjármögn-
unar í gegnum vefsíðuna Karolina
Fund sem skilaði á endanum um
45 þúsund evrum, eða tæpum 6,7
milljónum króna. n
„Til að byrja með
voru nokkrir aðil-
ar sem komu til okkar og
buðust til að leggja hluta-
fé í þetta
Hlutaféð aukið Þau Jón Ingi Stefánsson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Jón Trausti Reynisson og Heiða B. Heiðarsdóttir eiga öll fimmt-
ungshlut í fjölmiðlinum.
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is
Svartamarkaðs-
brask með miða
á landsleikinn
Svarti markaðurinn með miða á
landsleik Íslands gegn Tékklandi
er fjörugur. Talsvert hefur ver-
ið um það að fólk auglýsi miða til
sölu á bland.is sem og á þræðin-
um „Brask og Brall“ á Facebook. Yf-
irleitt er fólk að fiska og óskar eftir
tilboði í von um að sem hæst verð
fáist. Sá kræfasti á bland.is, notandi
að nafni lizard, býður miðann á 25
þúsund krónur stykkið. Hins vegar
er hann með þrjá miða í boði og því
er ágætur afsláttur í boði, þrír mið-
ar á 60 þúsund krónur.
KSÍ reynir þó að koma í veg fyr-
ir slíka endursölu og því geta kaup-
endur lent í því að miðarnir verði
ógiltir. Samkvæmt heimildum DV
fékk fyrirtæki eitt nokkra miða og
einn þiggjandi auglýsti miðana til
sölu. Þá var brugðist við og sá að-
ili fékk óþægilegt símtal frá fyrir-
tækinu auk þess sem miðarnir voru
afturkallaðir. „Við bregðumst við
öllum ábendingum, með þeim úr-
ræðum sem við höfum, hvort sem
það er einn miði eða tíu,“ segir Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Flugslys í
Hverahlíð
Fisflugvél þurfti að nauðlenda
við Hverahlíð á fimmtudag. Dav-
íð Pálsson var á leiðinni austur á
Selfoss er hann varð vitni að nauð-
lendingunni. Davíð náði ljósmynd-
um af atvikinu og kom til hjálpar á
vettvangi og hringdi í Neyðarlínuna.
Tveir farþegar voru í vélinni en
áverkar þeirra eru ekki taldir alvar-
legir.