Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Síða 18
18 Fréttir Helgarblað 12.–15. júní 2015
B
rjóstabyltingunni, sem vart
gerði við sig í mars síðast-
liðinn og fór sem eldur í
sinu um netið og íslenska
fjölmiðla, er ekki lokið. Boð-
að hefur verið til samstöðufundar á
Austurvelli um helgina þar sem fólk
er hvatt til þess að koma saman og
bera sig að ofan. Viðburðurinn ber
yfirskriftina ,,Frelsum geirvörtuna –
Berbrystingar sameinumst!“
Ljóst er að byltingarsinnar eru
flestir af yngri kynslóðinni, en rót
sína á byltingin að rekja til stúlkna
í Femínistafélagi Verslunarskóla Ís-
lands, sem birtu myndir af sér ber-
um að ofan á netinu. Þá standa átta
ungar konur á aldrinum tvítugs
til þrítugs að viðburðinum næstu
helgi.
Yngri kynslóðir landsins eru
leiðandi í þessum efnum. En hvað
segja eldri kynslóðir baráttukvenna
um málið? DV ræddi við þær Krist-
ínu Ástgeirsdóttur, fyrrverandi
þingkonu Kvennalistans og fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisstofu, Þor-
gerði Einarsdóttur, prófessor í
kynjafræði við stjórnmálafræði-
deild Háskóla Íslands, og Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur, fyrrver-
andi þingmann Kvennalistans, sem
nú starfar sem prófessor í mann-
fræði við Háskóla Íslands.
Frelsið skiptir máli
„Ég er mjög ánægð með þetta,“ seg-
ir Kristín þegar blaðamaður slær á
þráðinn til hennar. ,,Það er frábært
að yngri kynslóðir rísi upp og taki á
þessum málum.“
Kristín segist hafa verið á fundi
kvennanefndar Sameinuðu þjóð-
anna í mars þar sem tvö mál hafi
helst verið rædd: „Annað var hrylli-
lega ástandið í Sýrlandi, Nígeríu og
öðrum ríkjum Norður-Afríku en hitt
var ofbeldi á netinu. Ofbeldi í víð-
um skilningi; myndbirtingar, hót-
anir, þegar farið er ófögrum orð-
um um einstaklinga og slíkt. Það er
mikilvægt að tekið sé á þessu.“
Hún segir netið og þann heim
sem það hefur að geyma vera henni
framandi. „Þetta er heimur sem ég
og konur á mínum aldri þekkjum
ekki. En stelpur og yngri konur, í
menntaskóla og aðeins upp, verða
mjög varar við þetta og þá gegndar-
lausu kvenfyrirlitningu sem þessu
fylgir og er nátengd klámvæð-
ingunni sem rignir yfir ungt fólk og
yfirtekur samskipti kynjanna.“
Kristín segist fegin því að stelpur
takin málin í sínar hendur. „Ég verð
að viðurkenna að ég var hissa til
að byrja með og margir femínistar
sömuleiðis. Ein sagði: ég hef ver-
ið að berjast fyrir því að konur séu
klæddar allt mitt líf!“ Málið sé hins
vegar ekki svo einfalt. Kynslóðir séu
mismunandi og ádeilur líka.
„Hér er verið að afhelga lík-
amann og farið beint í kjarna um-
ræðunnar: afhelgun brjósta. Brjóst
eru ekkert merkilegri en hvað ann-
að,“ aðalmálið sé ekki endilega
hvernig farið sé að því.
Hvort konur muni standa ber-
brjósta á sundlaugarbökkum lands-
ins í náinni framtíð sé erfitt að segja.
Hver og ein verði að ákveða það fyr-
ir sig. Það sem skipti máli sé frelsið.
„Það er nú fyndið að rifja það upp
að það tíðkaðist oft hér áður fyrr að
konur væru berbrjósta, síðan, aðal-
lega fyrir tilstilli einhverra banda-
rískra mynda, þar sem nekt var allt í
einu feimnismál, þá breyttist þetta,“
segir Kristín að lokum.
Íslensk kvennabarátta
einkennist af samstöðu
„Mér finnst gríðarlega margt já-
kvætt í þessu,“ segir Þorgerður. ,,Hér
er um valdeflandi hreyfingu að
ræða sem þarf að skilja í sögulegu
samhengi sínu.“
Hún segir efasemdaraddir
helst ganga út á að gengið sé inn á
„forsendur kerfisins“. Með því að
bera brjóst sín telji sumir það vera
nákvæmlega það sem ,,ætlast sé til“
af konum. Fólk verði hins vegar að
hafa í huga að tímarnir séu breyti-
legir.
„Ungir krakkar lifa í veruleika
sem var ekki við lýði þegar eldri
kynslóðirnar upplifðu sín blóma-
skeið. Málið horfir þess vegna öðru-
vísi við eldri kynslóðum en mikil-
vægt er að skilja hverja kynslóð á
hennar eigin forsendum.“
Þorgerður segir viðbrögð við
Free The Nipple-byltingunni í mars
síðastliðinn hafa verið áhrifamik-
il. Samstaða hafi verið mikil meðal
manna og þolenda hefndarkláms.
Valdið hafi eflst í þeirra höndum.
„Svo er annað, auðvitað er margt
tengt þessari byltingu ekki hnökra-
laust. Byltingin er sjálfsprottin og
þá er ekki hægt að ætlast til þess að
hlutirnir séu fullkomlega rökréttir
og skotheldir í hugmyndafræðilegu
tilliti.“
Að lokum bætir Þorgerður því
við að kollegar hennar utan land-
steinanna hafi sýnt íslensku brjósta-
byltingunni mikinn áhuga. Sér-
kenni íslenskrar kvennabaráttu beri
þá helst á góma: Annars vegar hve
samfelld og óslitin íslensk kvenna-
barátta hefur verið í gegnum tíð-
ina, en einnig hin mikla samstaða
milli kvennahreyfinga á Íslandi
þar sem unnið er saman, þrátt fyr-
ir fjölda þeirra og blæbrigðamun.
„Það eru margir sprotar í gangi og
samstaða ríkir milli þeirra, þrátt fyr-
ir blæbrigðamun og efasemdir um
einstök atriði.“
Yngri og eldri sameinist
Sigríður Dúna segir atburði síðustu
mánaða mjög merkilega en brjósta-
byltingin og umræðan um kyn-
ferðisofbeldi fari saman: „Þetta fer
saman: brjóstabyltingin og það sem
hefur verið að gerast í sambandi
við Beauty Tips. Ungar konur láta
raddir sínar heyrast og það er mikið
fagnaðarefni. Jafnvel þótt byltingin
sé ekki svo markviss, en kannski er
of snemmt að segja til um það,“ seg-
ir Sigríður.
Hún leggur jafnframt áherslu á
að mestu máli skipti að frumkvæð-
ið og aflið komi frá þeim sem málið
brennur á: „Brjóstabyltingin brenn-
ur á yngri konum. Kynferðisofbeldi
er umtalað af yngri konum. En hvað
með eldri konur? Mér sýndist eldri
kona skrifa um það á netinu að það
vantaði vettvang fyrir þær sem eldri
eru. Ég segi bara að þær eigi að taka
þátt með stelpunum.“
Gamlir hippar tala um nekt
„Ég sat í boði með konum sem all-
ar voru ungar á hippatímanum. Á
þeim tíma, í kringum 1970, voru
rauðsokkur að brenna brjósta-
haldara um allan heim og vildu
vera frjálsar. Ungar konur notuðu
varla brjóstahaldara og mér datt
ekki í hug að gera það fyrr en ég
byrjaði með barn á brjósti.” Sigríður
„Brjóst eru ekkert merki-
legri en hvað annað“
n Eldri kynslóðir baráttukvenna hrifnar af brjósta byltingunni n Kynslóðabil í kvennabaráttunni
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
„Byltingin er sjálf-
sprottin og þá
er ekki hægt að ætlast
til þess að hlutirnir séu
fullkomlega rökréttir og
skotheldir í hugmynda-
fræðilegu tilliti.