Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Side 26
26 Umræða
K
osturinn við það að árum æv-
innar fjölgar er að minninga-
bankinn stækkar stöðugt;
það sem maður hefur fram-
yfir hina yngri er að maður
hefur fengið að lifa fleiri sögulega at-
burði – hinir yngri eiga reyndar flest-
ir eftir að ná manni á endasprettin-
um, en það er önnur saga. Ég man
þegar ég var krakki hvað ég öfund-
aði föður minn að hafa verið uppi í
seinni heimsstyrjöldinni, svo barna-
legt sem það nú er, en hann hafði ver-
ið í Danmörku þegar stríðið braust út
og svo komist heim í frægri ævintýra-
för með Esju um Petsamó í Norður-
Finnlandi – svo unnið eitthvað fyrir
herinn á flugvellinum í Kaldaðarnesi
suðrí Flóa. Sjálfur var maður uppfull-
ur af hetjusögum úr stríðinu, úr bók-
um, bíói og sjónvarpsþáttum eins og
Combat í Kananum.
Hvar varstu þegar þú fréttir um
Kennedímorðið?
Það er stundum sagt að allir muni
hvar þeir voru og hvað þeir voru að
gera þegar tilteknir stórviðburð-
ir gerðust; hjá minni kynslóð og
þeim sem eldri eru er þá oft vísað
til morðsins á Kennedí í nóvember
1963. Reyndar man ég ekki síður ann-
an stórviðburð sem varð nokkrum
dögum fyrr, en það var sjálft Surts-
eyjargosið, sem síðar var kallað svo.
Mér fannst það í fyrstunni að því leyti
ótímabært að miklu merkilegri tíma-
mót voru þá í uppsiglingu, og taldi ég
dagana til þeirra, en það var átta ára
afmæli sjálfs mín – mér fannst þetta
gos í sjónum fyrir sunnan Vestmanna-
eyjar ætla á einhvern hátt að skyggja á
þau væntanlegu tíðindi. Jæja, það leið
svona vika og mér fannst eins og fólk
væri að verða minna uppnumið yfir
þessu gosi, en þá kom ég heim einn
daginn, tveimur dögum fyrir átta ára
afmælið, hafði verið úti í götu, Út-
hlíðinni, að renna mér á skíðasleðan-
um, og þá sat mamma við borðstofu-
borðið náföl og slegin, og sagði: „Það
er búið að skjóta Kennedí Banda-
ríkjaforseta.“ Og þar með var átta ára
afmælið endanlega komið í annað
sætið yfir heimsviðburði.
11. sept.
Úr því ég er byrjaður að rifja svona
upp get ég ekki látið hjá líða að minn-
ast á ellefta september 2001. En þá
um sumarið hafði ég samið við mína
útgefendur um að skila inn nýrri
skáldsögu, og mig minnir að ég hafi
verið búinn að lofa afhendingu hand-
rits fyrir ágústlok. Svo voru liðnir tíu
dagar af september en ég ekki enn
búinn að skila inn bókinni um Þórð
kakala, Óvinafagnaði, og útgefend-
urnir að verða mjög óþolinmóð-
ir, sögðu að ef ég skilaði ekki „strax í
dag“ þá myndi það kosta þá ómælt
vesen og vandræði að ná bókinni á
markað það árið. Ég hafði keppst við,
átti bara eftir langan lista af smáat-
riðum sem ég hafði merkt við, fyrst
og fremst orðalags- og stílatriði sem
ég þurfti að taka afstöðu til, og sá að
ég ætti að geta klárað það allt á ein-
um góðum vinnudegi, næsta dag.
Var svo kominn á lessal þjóðdeildar
Þjóðarbókhlöðunnar strax og hún var
opnuð, ætlaði að einbeita mér allan
daginn og klára bókina. Var kom-
inn vel á veg svona upp úr hádeginu
þegar ég ákvað að rétta úr mér, fór
upp á kaffistofuna og fékk mér ein-
hverja hressingu, sat þar einn í þung-
um þönkum. Fór svo niður í seinni
lotu dagsins, en er ég gekk framhjá
fatahenginu heyrði ég konu sem þar
stóð á tali við einhvern, enn klingir
mikil og heldur rám rödd hennar í
eyrum mér, stórreykingarödd og jafn-
vel viskí: „Nú eru þeir líka búnir að
sprengja þinghúsið í Washington!
Þetta er bara styrjöld!“ Ég var dálítinn
tíma að meðtaka þetta, var búinn að
sitja við tölvuna niðri í lessal í svona
tíu mínútur og hugsa um álitamál um
orðalag þegar ég gerði mér grein fyrir
að það hlyti að vera eitthvað meira en
lítið í gangi í heiminum. Lokaði tölv-
unni, fór heim og kveikti á CNN og sá
tvíburaturnana falla. Skilaði hand-
ritinu daginn eftir. En einhvern veg-
inn fannst mér þetta ríma allt saman,
Sturlungaöldin og ellefti september.
Og sakamálin frægu ...
Ég er ekki að rifja þessa reynslu mína
upp vegna þess að ég haldi hana svo
merkilega í sjálfu sér, heldur að fara
alveg aftur í Surtseyjargos og þannig
til að segja hversu ég man langt aft-
ur, og þá fyrir aldurs sakir mun frem-
ur en visku. Og einu sem allir þekkja
man ég að segja frá vegna þess að ég
var á dögum og jafnvel kominn til
nokkurs þroska þegar það allt gerð-
ist, og það eru hin sígildu og eilíft
umtöluðu sakamál kennd við Guð-
mund og Geirfinn. Það er reynd-
ar ekki auðvelt að ræða þau mál án
þess að eiga á hættu að valda fólki
sárindum; eitt sinn hafði ég morð-
mál í skáldsögu (Kvikasilfri 1984) –
það var síðan sviðsett í Borgarleik-
húsinu sem „Íslenska mafían“ – og
þótt þar sé mjög fátt líkt með hin-
um umtöluðu sakamálum þá taldi
frænka mín, Erla Bolladóttir, að þar
væri ég að sneiða að henni og hafði
um það þung ummæli síðar í eig-
in bók. En um sekt og sýknu veit ég
auðvitað ekki meira en flestir aðrir,
verð þó að segja að þau sem ég þekki
eitthvað af sakborningum, Erla og
Guðjón Skarphéðinsson, virka ekki
þannig að þau séu líkleg til að fara
með ofbeldi á hendur öðru fólki.
En því er ég að tala um þetta hér, og
með þessum formála, að aðeins við
sem erum komin um og yfir miðjan
aldur munum þessa daga og þau ár
sem atburðirnir gerðust, en margt
það blaðafólk og álitsgjafar sem um
þetta fjalla voru ekki fædd þá og hafa
greinilega ekki heldur kynnt sér efn-
isatriði, nema þá mjög yfirborðslega
– hafa til að mynda ekki lesið hinn
ítarlega hæstaréttardóm sem nú
er rætt hvort skuli endurskoðaður.
Þetta er greinilegt á mörgu því sem
maður les eða heyrir í fjölmiðlum og
líka á sumu fólki sem um þetta talar
og hefur jafnvel mjög ákveðnar skoð-
anir á því sem gerðist eða á að hafa
gerst, en veit samt ósköp lítið.
Tvö en ekki eitt mál
Þannig hefur maður oft heyrt og les-
ið í fjölmiðlum að undanförnu að
lögmaður Guðjóns vilji að hann verði
hreinsaður af ásökunum í „Guð-
mundar- og Geirfinnsmálinu“, en
þeir sem þannig tala vita greinilega
ekki að þetta voru tvö mál, og nefnd-
ur sakborningur hefur aldrei verið
bendlaður á nokkurn hátt við annað
þeirra. Svo tala margir og skrifa um
að Erla vilji fá sig hreinsaða af dómi
um morð, en skoði menn hæstarétt-
ardóminn þá sést að hún var tæp-
ast meira en vitni, samkvæmt niður-
stöðum dómaranna – í öðru málinu
er sagt að hún hafi komið þar að
sem menn voru að burðast með lík,
en í hinu málinu er sagt að hún hafi
orðið vitni að átökum. Sá furðu þungi
dómur sem hún þó fékk, þrjú ár ef
ég man rétt, skýrist þá trúlega frekar
af gremju réttarkerfisins yfir að hún
hafi átt að trufla framgang réttvísinn-
ar með röngum sakargiftum á hend-
ur mönnum úti í bæ – en það eins og
annað í þessum efnum er allt með
furðu miklum ólíkindum.
Kemur hið sanna í ljós?
Kannski á hið sanna einhvern tíma
eftir að koma á daginn í þessum
málum. Ef til vill finnast einhvern
tíma leifar hinna horfnu manna, eða
kannski á einhvern tíma einhver eftir
að koma fram sem veit meira en aðr-
ir um afdrif þeirra, og segja söguna.
Helgarblað 12.–15. júní 2015
FamilyCamp er íslenskur tjaldvagn sem er hannaður og smíðaður til að standast
íslenskar aðstæður. Kassinn á FamilyCamp er smíðaður úr trefjaplasti með
15 mm einangrun í hliðum og 10 mm í loki. Undir rúmi er geymsla og hægt er
að lyfta rúmbotni upp til að komast í hana en geymslan virkar einnig sem einangrun
undir rúmi. Seglið er saumað úr 100% bómull sem gerir FamilyCamp einstaklega
hlýjan og notalegan. FamilyCamp er með svefnpláss fyrir fjóra í tveimur
herbergjum. FamilyCamp er léttur aðeins 310 kg. en með burðargetu
upp á 240 kg. hann er á galvaniseraðri grind með AL-KO flexitorum og
13” felgum. Það tekur ekki nema örfáar mínútur að reisa vagninn
og setja upp fortjaldið.
VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
Verð kr. 1.470.000,- með fortjaldi.
Einar Kárason rithöfundur skrifar
Þér að segja
Ráðgáturnar miklu um Guðmund og Geirfinn
Erla Bolladóttir „Þau
sem ég þekki eitthvað af
sakborningum, Erla og Guðjón
Skarphéðinsson, virka ekki
þannig að þau séu líkleg til að
fara með ofbeldi á hendur öðru
fólki.“ Mynd SigTryggur Ari
11. september „Lokaði tölvunni, fór heim og kveikti á CNN og sá tvíburaturnana falla. Skilaði
handritinu daginn eftir. En einhvern veginn fannst mér þetta ríma allt saman, Sturlungaöldin og
ellefti september.“ Mynd rEuTErS
Morðið á Kennedy „Og þar með var átta ára afmælið endanlega komið í annað sætið yfir
heimsviðburði.“
„Það er rétt sem
sagt hefur verið í
umræðum um hugsan-
lega endurupptöku mál-
anna að það myndi létta
nokkru fargi af þjóðinni
ef sannleikurinn kæmi
einhvern tíma í ljós. Það
myndi líka hlífa okkur við
alls kyns glannalegum
fullyrðingum og staðhæf-
ingum sem oft heyrast.