Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Page 27
Umræða Stjórnmál 27Helgarblað 12.–15. júní 2015 Minnistöflur www.birkiaska.is Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel eldri borgurum, lesblindum og nemendum í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Bodyflex Strong Bodyflex Strong mýkir liðamót og dregur úr verkjum í þeim og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.  Birkilaufstöflur Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á vökva- jafnvægi bæði líkama og húðar og örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum, losar vatn úr líkamanum og dregur úr bólgum. Evonia færir hárrótinni næringu og styrk til þess að efla hárvöxt. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia Ráðgáturnar miklu um Guðmund og Geirfinn Það er rétt sem sagt hefur verið í um- ræðum um hugsanlega endurupp- töku málanna að það myndi létta nokkru fargi af þjóðinni ef sannleik- urinn kæmi einhvern tíma í ljós. Það myndi líka hlífa okkur við alls kyns glannalegum fullyrðingum og stað- hæfingum sem oft heyrast. Margir hafa fullyrt, bæði í ræðu og riti, að hér hafi verið framin svívirðileg rétt- armorð, og hafa jafnvel gengið svo langt að segja að öllum sem mál- in rannsökuðu og véluðu um hafi er dómarnir voru felldir löngu verið orðið ljóst að þau sem dæmd voru hafi hvergi komið nærri, og að dóm- arnir hafi bara verið kveðnir upp til að lægja einhverjar öldur í þjóðfé- laginu. Þótt slíkar fullyrðingar hafi kannski verið settar fram af góðum hug þá verður fólk samt að átta sig á að í þeim felst ásökun á hendur öðr- um mönnum um ekki minni glæpi, þ.e.a.s. að dómararnir allir, bæði í undirrétti og Hæstarétti, hafi, gegn betri vitund og af kaldrifjaðri fúl- mennsku, fórnað lífi og hamingju umræddra ungmenna, í þágu ein- hverra óskilgreindra hagsmuna. En mér finnst það ekki geta hafa ver- ið svo. Við hljótum að ætla að þeir menntuðu og grandvöru menn sem dómana skipuðu hafi talið sig vera að gera rétt, að þeir hafi dæmt eftir bestu vitund – hafi verið sannfærðir um sekt hinna ákærðu. Hvernig sem á því stendur. Og þar spila eflaust inní hinar víðtæku og margendur- teknu játningar sem fram komu, bæði við lögregluyfirheyrslur og fyrir dómi, á ýmsum stigum málsins – en þær játningar hljóta einnig að teljast með hinu stóru ráðgátum þessara undarlegu mála. n Gæði og góð þjónusta í 80 ár! glæsilegt úrval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.