Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Side 28
Helgarblað 12.–15. júní 201528 Fólk Viðtal
Þ
að er ekki hlaupið að því að
hitta Katrínu, enda brjál-
að að gera hjá henni, bæði
á Alþingi og á öðrum víg-
stöðvum. Reyndar gerði
hún ráð fyrir að þingstörfum yrði
lokið þegar viðtalið færi fram en sú
varð ekki raunin. Enda mörg stór
mál óafgreidd. Fyrst þegar blaða-
maður mælti sér mót við Katrínu
náði hún ekki til Reykjavíkur í tæka
tíð vegna seinkunar á flugi sem hún
kom með til landsins. Í næstu tilraun
var hún óvænt kölluð á formanna-
fund. En loksins náðum við saman.
Hún er nýkomin af skólaslitum sona
sinna þegar blaðamaður hittir hana
á Alþingi, að vonum stolt af árangri
þeirra. En Katrín og maður henn-
ar, Gunnar Sigvaldason, eiga þrjá
drengi á aldrinum 4 til 9 ára.
Farin að draga mörk
Hún biðst afsökunar á hringlinu
með viðtalið en tekur fram að svona
sé þetta oft í starfi þingmannsins og
þess vegna geti hún aldrei skipulagt
meira en einn dag í einu. Og varla
það. „Ég varð mjög pirruð yfir þessu
þegar ég byrjaði hér á þingi árið
2007, að það var aldrei hægt að vita
hvað dagurinn bar í skauti sér. Var
ég að fara heim í kvöldmat? Eða var
ég að ná þessu eða hinu? En ég hef
lagað mig að aðstæðum og er sjálf
farin að draga mörk. Ég hef mjög
oft hætt við eitthvað út af þinginu
en stundum verð ég að halda mínu
plani. Ég er eiginlega komin á þann
stað eftir átta ár að mér finnst ekki
hægt að sleppa sumu, þrátt fyrir
þingið. Og þess vegna mætti ég á
skólaslitin í morgun þrátt fyrir þing-
ið,“ segir hún og brosir. Hún hefur
lært að forgangsraða og þrátt fyr-
ir miklar annir í vinnunni verður
fjölskyldan stundum að ganga fyr-
ir. „Þingið er auðvitað mikilvægt,
en þetta er ekki fjölskylduvæn-
asti vinnustaður í heimi, og það er
því svolítið á manns eigin ábyrgð
að draga mörk. Sérstaklega þegar
komið er fram yfir hefðbundna
starfsáætlun.“
Katrín segir stundum skrýt-
ið að tala um Alþingi sem vinnu-
stað, þótt vissulega sé það vinnu-
staður í ákveðnum skilningi. En
á sama tíma er um að ræða sam-
kundu kjörinna fulltrúa – sem flæk-
ir málin. „Ég hugsa ekki um Alþingi
eins og vinnustað. Þetta er ekki eins
á venjulegum vinnustað þar sem
fólk mætir í vinnuna, lýkur sínum
skyldum, áorkar einhverju og fer
heim. Oft líður mér eins og ég hafi
ekki gert neitt allan daginn, því
ég er bara búin að vera að tala. Og
árangurinn kemur oft mjög seint
fram,“ segir hún hreinskilin.
Mikil breyting við hrunið
Áður en Katrín settist á Alþingi hafði
hún lítið leitt hugann að því hvernig
þingmennskunni væri háttað, enda
var markmið hennar aldrei að verða
þingmaður. Hún hafði bara mikinn
áhuga á stjórnmálum og vildi starfa
á þeim vettvangi. Og úr varð að sá
áhugi leiddi hana inn á þing. Hún á
því erfitt með að svara hvort eitthvað
hafi komið henni á óvart varðandi
þingmennskuna. „Það að vera þing-
maður breyttist mjög mikið árið 2008,
eftir hrun. Það hefur verið meira álag
og miklu gagnrýnni umræða. Sem er
bæði erfitt fyrir þingmenn en líka já-
kvætt. Enda er virkt aðhald í stjórn-
málum mjög mikilvægt.“
En Katrín náði lítið að upplifa
þingið eins og það var fyrir hrun.
Hún var ólétt þegar hún settist á
þing 2007 og fór fljótlega í fæðingar-
orlof. Sneri svo aftur í september
2008, rétt áður en Ísland lagðist
á hliðina. „Þá skall þetta á og það
voru eiginlega meiri skil í því held-
ur en að setjast inn á þing. Þótt ég sé
bara búin að vera hérna í átta ár, þá
er það nánast eins og mannsaldur,
svo mikið hefur gengið á,“ segir hún
og skellir upp úr.
Fær líka gagnrýni
Katrín hefur ítrekað verið valin vin-
sælasti stjórnmálamaðurinn og sá
stjórnmálamaður sem fólk ber hvað
mest traust til í könnunum. Nú síð-
ast í könnun MMR frá því í apríl
þar sem hún var í öðru sæti á eftir
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís-
lands. En tæp 50 prósent aðspurðra
sögðust bera mikið traust til henn-
ar. Katrín er hógværðin uppmáluð
þegar blaðamaður minnist á vin-
sældirnar en þykir auðvitað vænt
um það traust sem borið er til
hennar. „Mér finnst þetta auðvitað
jákvætt en þetta er líka rosa pressa.
Mér finnst mikilvægt að bregð-
ast ekki þessu trausti. En auðvit-
að eru skiptar skoðanir á mér eins
og öllum öðrum. Ég hef alveg feng-
ið harða gagnrýni, sem fylgir því að
vera til og vera í stjórnmálum. Þótt
mér þyki mjög vænt um traustið
þá vil ég ekki leggja of mikið upp
úr því. Þetta getur verið hverfult
og hlutirnir geta breyst mjög hratt í
pólitík. Ég reyni bara að halda mínu
striki og eini mælikvarðinn eru
kosningar hverju sinni.“
En almenningur, þvert á flokka,
ber ekki bara mikið traust til Katrín-
ar í því starfi sem hún gegnir í
dag, heldur hefur hún einnig ver-
ið orðuð við forsetaembættið. Hún
hlær og verður upp með sér þegar
blaðamaður tjáir henni að hún hafi
fengið flest atvæði lesenda DV yfir
þá sem þeir vildu sjá sem forseta
Íslands, í óformlegri könnun sem
gerð var á dv.is í vikunni.
Útilokar ekki forsetaframboð
En gæti hún hugsað sér að fara í for-
setaframboð? „Fólk hefur verið að
máta mig og fleiri í það hlutverk,
sem er ósköp eðlilegt í ljósi þess
að það eru kosningar á næsta ári.
Og ég hef verið spurð hvort ég geti
hugsað mér að fara í forsetafram-
boð. En mér finnst ég ansi ung, bara
39 ára, og á lítil börn. Ég hef ekki
séð mig fyrir mér í þessu hlutverki
og hef satt best að segja ekki verið
að stefna á það. En auðvitað verð ég
upp með mér að einhverjum skuli
detta þetta í hug. Þó mér finnist það
eiginlega ótrúlegt að einhverjum
skuli hafa dottið þetta í hug,“ segir
hún kímin. „En ég sinni bara þeim
verkefnum sem ég hef tekið að mér
af heilum hug, meðal annars að
vera formaður flokksins og sitja hér
á Alþingi.“
En þótt hún eigi erfitt með að
sjá sig fyrir sér á Bessastöðum, þá
viðurkennir hún að hafa leitt hug-
ann að möguleikanum eftir að fólk
fór að máta hana í embættið. Henni
fannst það einfaldlega skylda sín.
„En ég hef engin plön hvað þetta
varðar,“ segir hún, án þess að útiloka
hvað síðar kann að verða í lífinu.
Meyr inni í sér
Líkt og Katrín bendir á þá koma
vinsældir hennar í könnunum ekki
í veg fyrir að hún fái á sig gagn-
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur setið á þingi í átta ár.
Í könnunum er hún ítrekað valin sá stjórnmálamaður sem fólk ber hvað mest
traust til og hefur verið orðuð við embætti forseta Íslands. Sjálf er hún hógværðin
uppmáluð og kippir sér lítið upp við þá umræðu, þótt henni þyki vænt um traustið.
Hún tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega og finnst hún alltaf vera tvítug í anda. Hún er
heilluð af glæpasögum en í þeim fær hún útrás fyrir þá spennu sem hún upplifir ekki
í hræðilega venjulegu lífi sínu, eins og hún orðar það sjálf. Blaðamaður settist niður
með Katrínu í einu skúmaskota Alþingis og ræddi meðal annars um fjölskylduna,
fyrsta ólétta ráðherrann, glæpasögurnar og tilhneiginguna til að segja alltaf já.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Finnst
hún alltaf
vera tvítug
„Það var mjög gaman að
vera fyrsti ráðherrann til
að verða ófrískur í embætti