Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Page 41
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Fólk Viðtal 33
rétta út hönd eftir aðstoð. „Þetta er
svo flókið. Gerendur eiga sér fjöl-
skyldu, systkini, maka og vini en
allt í einu standa þeir einir, makinn
jafnvel skilur við þá og fjölskyldan
afneitar þeim. Það vantar áfalla-
teymi til að grípa fjölskyldu gerand-
ans. Það er ekki nóg að setja ger-
endur bara í fangelsi, það verða að
vera til úrræði fyrir bæði þolendur
og gerendur. Það er auðvelt að sitja
við tölvuskjáinn og skrifa að það
eigi að hengja þá eða skjóta en svo
ef þetta er allt í einu ástvinur þinn?
Ætlarðu þá að skjóta hann eða
hengja? Svona orðræða er heldur
ekki góð fyrir þolendur. Litli strák-
urinn sem les þetta elskar pabba
sinn þótt hann vilji að misnotkun-
in hætti. Hann vill ekki að pabbi
verði skotinn, hengdur eða að það
verði skorið undan honum. Og þess
vegna segir hann síður frá. Gerandi
í kynferðisofbeldi er oft einhver
sem hefur náin tengsl við þig, ein-
hver sem þér þykir vænt um. Þess
vegna er þetta svo flókið. Þér get-
ur þótt vænt um manneskjuna en
hatað það sem hún gerir.“
Fyrirgaf sjálfri sér
Jokka vill ekki nafngreina sína ger-
endur. „Ég tala við þetta fólk í dag
en er ekkert að eltast við að hafa það
í mínu lífi. Ég hef fyrirgefið þeim
en ég get ekki fyrirgefið það sem
þau gerðu, verknaðinn. Ég skilaði
skömminni og fyrirgaf mér að hafa
lent í þessu. Það var það stærsta; að
geta lifað með sjálfri mér. Ég segi
frá tengslum mínum við mína ger-
endur þegar ég tala við nemendur
í skólum en ég mun ekki gera það í
opinberu viðtali, jafnvel þótt ég sé
komin svona langt. Fyrir einhverja
hljómar það ef til vill eins og þöggun
en það er það flókna við þetta. Það
er svo erfitt þegar manni þykir vænt
um gerendurna. Fólk verður að gera
þetta á sínum hraða.“
Þolendur koma fyrr
Aflið er Jokku afar hugleikið en
ástæðan fyrir því að hún stígur
fram með sína sögu er að miklu
leyti til að vekja athygli á starf-
inu þar. „Ég er á vakt allan sólar-
hringinn og alltaf með símann
á mér. Við vorum með tæplega
þúsund einkaviðtöl í fyrra og höf-
um fundið fyrir meiri ásókn eft-
ir Beauty Tips-byltinguna, eins og
alltaf þegar kynferðisbrot koma í
umræðuna. Þetta er eina vinnan
þar sem maður vildi óska að mað-
ur hefði ekkert að gera. Aflið er fyrir
allt ofbeldi og bæði fyrir konur og
karla og á þeim sjö árum sem ég hef
starfað þarna hefur margt breyst.
Umræðan er opnari í þjóðfélaginu
og þolendur koma fyrr til okkar.
Ennþá er fólk að koma sem hef-
ur þagað í 30 ár en fleira fólk kem-
ur fyrr, sem er gott. Við förum líka
með fólk upp á neyðarmóttöku eftir
nauðgun eða árás ef eftir því er ósk-
að, förum með fólki í skýrslutökur
og hjálpum konum að flýja suður í
Kvennaathvarfið. Því miður er ekk-
ert kvennaathvarf hér á Akureyri en
þörfin er virkilega til staðar bæði
fyrir landsbyggðina og einnig fyrir
konur á höfuðborgarsvæðinu sem
gætu þá valið að koma hingað.“
Auðveld bráð
Jokka hefur aldrei farið troðnar
slóðir. Þessi 44 ára verðandi amma
keyrir um á mótorhjóli og skart-
ar fjölda húðflúra. Svo er hún líka
skáld, tenór í kirkjukór og eldspú-
ari og ætlar að gifta sig í sum-
ar og vill nota þetta tækifæri til að
þakka sambýlismanninum, Óðni
Snæ Björnssyni, fyrir þann styrk
og stuðning sem hann hefur sýnt
henni. „Það er ekki mín leið að fara
troðnar slóðir og hefur aldrei ver-
ið. Ég hef aldrei haft þörf til að vera
eins og allir hinir,“ segir hún og játar
því að það hafi verið erfitt að kom-
ast yfir svona erfiða reynslu. „Það
er hægt en til þess þarf maður að
vinna alla vinnuna sjálfur. Ég hef
lært svo ótal margt af öllu því fólki
sem ég hef mætt í lífinu. Hver ein-
asta manneskja hefur kennt mér
eitthvað, gott eða slæmt, það fer
bara eftir því hvernig þú horfir á
lífið. Kynferðisofbeldi hefur klár-
lega verið til eins lengi og mann-
skepnan. Við erum á réttri leið en
næsta skref eru fræðsla, forvarnir,
umræða og eftirlit með þeim sem
standa okkur næst og eftirlit með
þeim sem brjóta af sér.
Ég var auðveld bráð. Þegar búið
er að brjóta á manni einu sinni er
erfitt að bera hönd fyrir höfuð sér.
Það gátu allir valtað yfir mig, ég
vissi ekki mörkin og þurfti að læra
að búa þau til,“ segir Jokka sem
neitar því að eiga erfitt með að
meðtaka ljótleikann sem fylgi starf-
inu. „Ég hef farið á ótal námskeið
og setið ráðstefnur til að afla mér
verkfæra og svo nota ég mína eig-
in reynslu. Þetta starf hefur frekar
hjálpað mér að vinna í mínum mál-
um en hitt. Það er gefandi að sjá
muninn á fólki, konur sem mæta
mörgum tonnum léttari eftir nokk-
ur viðtöl. Svo fær maður þetta allt
svo margfalt til baka. Annars væri
maður ekki í þessu.“ n
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin f
PLANKAPARKET
840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Bældi niður minningarnar
Hamingjusöm Jokka ætlar að giftast sambýlismanni sínum í sumar. Mynd Úr persónulegA sAFninu
ung mamma Jokka varð móðir tvítug. Eftir
enn eitt áfallið valdi hún að láta föðurfjöl-
skylduna um drenginn. Mynd Úr persónulegA sAFninu
„Hann vill
ekki að
pabbi verði skot-
inn, hengdur eða
að það verði skorið
undan honum
Jokka Jokku-nafnið
festist snemma við
Jóhönnu Guðnýju.
Mynd Auðunn níelsson
Fer ótroðnar slóðir Jokka er 44 ára verð-
andi amma sem keyrir um á mótorhjóli og
ein af fáum sem getur titlað sig eldspúara.
Mynd Auðunn níelsson