Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 42
Helgarblað 12.–15. júní 201534 Skrýtið Sakamál PHILIPPE STARCK Philippe Starck hefur útfært hugmyndir svo lengi sem hann man. Þó háþróaðar hugmyndir hans hafi ekki fengið hljómgrunn kennara hans, var hann þó um tvítugt búinn að afla sér heimsfrægðar og viðurkenningar fyrir hönnun og arkitektúr. Velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að Draghálsi 14-16. Gæði fara aldrei úr tísku Bandóð Barnfóstra n Yoselyn Ortega var barnfóstra n Dag einn umturnaðist hún T ilvera Yoselyn Ortega, fimmt ugrar konu á Man- hattan, stefndi hraðbyri í hundana. Hún bjó í leigu- húsnæði sem var allt of lítið fyrir þann fjölda sem þar bjó og dreymdi um að finna ann- að húsnæði. Íbúðinni deildi Yose- lyn með unglingssyni sínum, systur og frænku og hún ráfaði um stiga- gangana og seldi ódýrar snyrtivörur og glingur til að afla sér meira skot- silfurs. Yoselyn hafði neyðst til að gefa frá sér nýja íbúð og flytja í gamla grenið með syni sínum, var skuldum vafin, niðurdregin og fjarlæg. Einn ná- granna hennar hafði eftir systur Yos- elyn að hún gengi ekki heil til skógar. Óttaðist systir hennar að Yoselyn „væri á barmi taugaáfalls“. Þannig leit þessi hálfkaraða mynd út sem síðar leiddi til hörmulegra atburða fimmtudaginn 25. október 2012. Hryllileg heimkoma Síðla þann dag sneri Marina Krim, þriggja barna móðir á Manhattan, heim í lúxusíbúð sína, enda orðið ljóst að ekki var allt sem skyldi. Fyrr þennan sama dag hafði Mar- ina Krim skilð tvö barna sinna, Leo, tveggja ára, og Luciu, sex ára, eft- ir heima með barnfóstrunni Yose- lyn Ortega. Marina fór síðan með þriggja ára dóttur sína, Nessie, í sundkennslu. Marina og Yose- lyn höfðu sammælst um að hitt- ast með öll börnin í dansskóla að sundkennslunni lokinni. Þegar Yos- elyn mætti ekki leist Marinu ekki á blikuna og hraðaði sér heim á leið. Þegar hún kom heim, um klukkan hálf sex síðdegis, mætti henni hrylli- leg sýn. Blóðbað á baðherberginu Marina Krim gekk inn myrkvaða íbúð sína. Við fyrstu sýn virtist sem íbúðin væri mannauð og því fór Marina niður í anddyri og spurði dyravörðinn hvort hann hefði séð til Yoselyn og barnanna. Þau höfðu, að sögn dyravarðarins, ekki yfirgef- ið bygginguna og því fór Marina aft- ur upp. Hún litaðist um í hljóðri íbúð- inni og kveikti að lokum ljós á bað- herberginu. Sá hún þá sér til mikill- ar skelfingar börn sín í baðkarinu og voru bæði látin, stungin til bana af barnfóstrunni Yoselyn. Til að bæta gráu ofan á svart lá Yoselyn á baðherbergisgólfinu, al- blóðug og greinilega búin að gera tilraun til sjálfsvígs með því að skera sig á háls. Yoselyn hafði þó ekki tek- ist að fyrirkoma sér en var meðvit- undarlaus á gólfinu. Barnfóstra – ekki ræstingakona Ekki lá í augum uppi hví skyndi- lega berserksgangur rann á Yose- lyn, en síðar hafði New York Post eft- ir ónafngreindum lögreglumanni að Krim-hjónin hefðu beðið Yoselyn um að sinna einföldum heimilisverkum. Töldu hjónin að Yoselyn, sem var fjár- þurfi, væri greiði gerður með þeirri beiðni; að hún fengi þá greitt fyrir létt heimilisstörf. En Yoselyn fylltist bræði. „Ég fæ greitt fyrir að gæta barn- anna, ekki að sjá um ræstingar og heimilisstörf,“ var haft eftir henni síð- ar. Að sögn Yoselyn höfðu hjónin boð- ið henni að taka, gegn greiðslu, að sér fimm klukkustunda vinnu aukalega. Í New York Post sagði að Yoselyn hefði reiðst því umrædd aukavinna skar- aðist á við tíma sem hún átti hjá lækni. Krim-hjónin höfðu að sögn einnig viðrað áhyggjur af frammistöðu Yos- elyn nokkrum vikum áður og veitt henni viðvörun. Bíður í fangelsi Yoselyn Ortega var ákærð fyrir tvö morð og var neitað um lausn gegn tryggingu. Henni var enn fremur gert að undirgangast geðmat svo unnt yrði að úrskurða um hvort hún væri sak- hæf. Réttarhöld í máli Yoselyn Ortega hófust í janúar en tíminn verður að leiða í ljós hver örlög verða. n „Ég fæ greitt fyr- ir að gæta barn- anna, ekki að sjá um ræstingar og heimilis- störf.“ Varð tveimur börnum að bana Yoselyn bíður örlaga sinna vegna morðanna. Voðaverk móður Yoselyn með börnum sínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.